Teitur um Njarðvíkurliðið: Afskaplega daprir, hörmulegir varnarlega, þreyttir og gamlir Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 6. mars 2021 10:31 Njarðvíkurliðið er orðið þreytt og gamalt að mati Teits Örlygssonar. Vísir/Hulda Margrét Teitur Örlygsson, sérfræðingur Dominos Körfuboltakvölds og fyrrum leikmaður Njarðvíkur, var ekki að skafa ofan af því er hann ræddi sitt gamla lið í þætti gærkvöldsins. Hann tætti varnarleik liðsins í sig og sagði liðið gamalt og þreytt. „Ég veit það ekki. Ég er búinn að taka svo mörg „rönt“ hérna yfir Njarðvík síðustu árin að ég hef eiginlega ekki geð í mér. Kannski að Benni [Benedikt Guðmundsson] svari þessi bara núna,“ sagði Teitur aðspurður hvað væri í gangi í Njarðvík. „Þeir eru afskaplega daprir. Það þarf ekkert að benda neinum á það, það vita það allir. Þetta er bara ráðaleysi finnst mér, báðum megin. Hörmulegir varnarlega, það virðist enginn metnaður vera varnarlega. Það er engin liðsvörn og þetta er alltaf einn á einn. Það eru aldrei fimm menn að dekka boltann, allskyns undirstöðuatriði bara hræðileg,“ bætti Teitur við eftir að Benni sendi spurninguna rakleiðis til baka. „Ef þú horfir á Njarðvík eru kannski tveir menn að spila síðasta tímabilið sitt og aðrir – útlendingar – líklega bara í síðasta „gigginu“ sínu. Liðið er bara þreytt og gamalt.“ Nefndi Teitur þá Rodney Glasgow og Kyle Johnson er Kjartan Atli Kjartansson – þáttastjórnandi – spurði út í hvaða erlendu leikmenn um væri að ræða. Teitur telur einnig að Logi Gunnarsson og Ólafur Helgi Jónsson séu að spila sitt síðasta tímabil. „Þetta eru allt saman menn sem eru að spila helling af mínútum og eru í risa hlutverki.“ Um leikinn gegn KR „Það sem gladdi mig mest í gær var Veigar [Páll Alexandersson], fannst hann virkilega flottur. Varnarleikurinn hjá mörgum mönnum – Jón Arnór [Sverrisson] til dæmis - búinn að vera hræðilegur í síðustu leikjum. Varnarleikurinn hjá [Antonio] Hester skelfilegur en mjög flottur í sókn. Maciek [Stanislav Baginski] þarf tíma, hann er líklega besti skotmaðurinn af þeim öllum. Er aðeins of þungur og á eftir að létta sig.“ Benni fór í kjölfarið yfir að það vanti afburðaleikmenn í Njarðvíkurliðið. Allir leikmennirnir séu fínir en það séu engir „toppar“ í liðinu. Hvorki íslenskir né erlendir. „Svo þrífast hinir á svoleiðis leikmanni. Ef þú ert kominn með frábæran leikmann sem getur búið eitthvað til. Þeir geta litið út fyrir að vera rosalega góðir með því að grípa bara boltann einhverstaðar og skjóta honum,“ bætti Teitur við. „Bakvarðarvörnin hjá Njarðvík líka [í vandræðum]. Hún gerir það að verkum að þessir stóru menn í Njarðvík eru mjög oft í villuvandræðum. Vörn og sókn hjá Glasgow og Jóni Arnóri er búin að vera skelfileg. Þegar leikstjórnandinn er að spila illa áttu voðalega lítinn séns á að vinna leiki,“ bætti Teitur við að lokum. Sjá má allt „rantið“ hans Teits sem og innlegg frá Benna og Kjartani Atla í spilaranum hér að neðan. Klippa: Fóru yfir vandræði Njarðvíkur Domino's Körfuboltakvöld er uppgjörsþáttur Stöðvar 2 Sports um Domino's-deildir karla og kvenna í körfubolta og er á dagskrá öll föstudagskvöld. Upptökur af þættinum má nálgast á sjónvarpsvef Stöðvar 2. Domino's-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland. Körfubolti Íslenski körfuboltinn Dominos-deild karla Körfuboltakvöld UMF Njarðvík Mest lesið Þjálfari Orra Steins sáttur: Hann hefur haldið kjafti Fótbolti „Röng ákvörðun af minni hálfu og ég tek fulla ábyrgð“ Íslenski boltinn „Mér leið eins og ég væri í Keanu Reeves mynd“ Íslenski boltinn Hetjan Orri Steinn eftir þrennuna: Besta tilfinning í heimi Fótbolti Hundraðasti sigur Arteta kom gegn erkifjendunum: „Stoltur af leikmönnunum“ Enski boltinn Fyrstir áfram en þjálfarinn meiddist alvarlega þegar leikmaður hans lenti á honum Körfubolti „Ekki boðlegt á þessu getustigi“ Enski boltinn „Hver karfa skiptir máli þannig að ég varð smá reiður“ Körfubolti Dagskráin í dag: Reykjavíkurslagur í Bestu, úrslitakeppni í Subway og NBA ásamt allskonar Sport Uppgjör og viðtöl: KR - Breiðablik 2-3 | Blikar sóttu þrjú stig á grasinu í Vesturbænum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Fyrstir áfram en þjálfarinn meiddist alvarlega þegar leikmaður hans lenti á honum „Hver karfa skiptir máli þannig að ég varð smá reiður“ Uppgjör: Grindavík - Njarðvík 79-83 | Grænar stálu heimavellinum í Smáranum Brunson skaut Philadelphia í kaf LeBron og Davis köstuðu líflínu til Lakers Bucks líklega án beggja ofurstjarna sinna í leik fjögur Góður leikur Tryggva skilaði engu „Kviknaði á okkur og við náðum að slökkva í þeim“ Uppgjör og viðtöl: Keflavík - Stjarnan 93-65 | Ótrúlegur seinni hálfleikur og Keflavík leiðir „Höfum verið að bíða eftir þessu“ Úlfarnir einum sigri frá því að senda Sólirnar í sumarfrí Aþena sendi sterk skilaboð í fyrsta leik Þrjú Suðurnesjalið í undanúrslitum í fyrsta sinn í tuttugu ár Davíð Tómasi bárust ljót skilaboð eftir leik: „Fokking mongolitið þitt“ „Krakkarnir í stúkunni eru byrjaðir að taka upp á þessu líka“ Lakers einu tapi frá því að vera sópað út úr úrslitakeppninni Sjáðu ótrúlegan flautuþrist Þorvaldar Orra „Tel mjög vafasamt að klukkan hafi verið sett af stað á réttum tíma“ „Vakna í hádeginu á morgun og fer að hugsa um Valsarana“ Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu Friðrik Ingi sæmdur gullmerki Njarðvíkur Þórsarar hafa spilað þrjá oddaleiki síðan Njarðvík var síðast í oddaleik Sjokkeruðu Celtics menn með þriggja stiga skotsýningu „Heldur betur búinn að vinna hjörtu Keflvíkinga“ Tekið á móti Tryggva eins og Hollywood stjörnu Hristir hausinn yfir „glórulausum“ og „smásálarlegum“ ummælum Uppgjörið og viðtöl: Haukar 73-75 Stjarnan | Stjarnan áfram eftir naglbít Martin frábær í öruggum sigri „Við erum ekki með stráka sem þurfa að vera hetjur“ Sjáðu mömmu Remy Martin syngja og dansa á hliðarlínunni Sjá meira
„Ég veit það ekki. Ég er búinn að taka svo mörg „rönt“ hérna yfir Njarðvík síðustu árin að ég hef eiginlega ekki geð í mér. Kannski að Benni [Benedikt Guðmundsson] svari þessi bara núna,“ sagði Teitur aðspurður hvað væri í gangi í Njarðvík. „Þeir eru afskaplega daprir. Það þarf ekkert að benda neinum á það, það vita það allir. Þetta er bara ráðaleysi finnst mér, báðum megin. Hörmulegir varnarlega, það virðist enginn metnaður vera varnarlega. Það er engin liðsvörn og þetta er alltaf einn á einn. Það eru aldrei fimm menn að dekka boltann, allskyns undirstöðuatriði bara hræðileg,“ bætti Teitur við eftir að Benni sendi spurninguna rakleiðis til baka. „Ef þú horfir á Njarðvík eru kannski tveir menn að spila síðasta tímabilið sitt og aðrir – útlendingar – líklega bara í síðasta „gigginu“ sínu. Liðið er bara þreytt og gamalt.“ Nefndi Teitur þá Rodney Glasgow og Kyle Johnson er Kjartan Atli Kjartansson – þáttastjórnandi – spurði út í hvaða erlendu leikmenn um væri að ræða. Teitur telur einnig að Logi Gunnarsson og Ólafur Helgi Jónsson séu að spila sitt síðasta tímabil. „Þetta eru allt saman menn sem eru að spila helling af mínútum og eru í risa hlutverki.“ Um leikinn gegn KR „Það sem gladdi mig mest í gær var Veigar [Páll Alexandersson], fannst hann virkilega flottur. Varnarleikurinn hjá mörgum mönnum – Jón Arnór [Sverrisson] til dæmis - búinn að vera hræðilegur í síðustu leikjum. Varnarleikurinn hjá [Antonio] Hester skelfilegur en mjög flottur í sókn. Maciek [Stanislav Baginski] þarf tíma, hann er líklega besti skotmaðurinn af þeim öllum. Er aðeins of þungur og á eftir að létta sig.“ Benni fór í kjölfarið yfir að það vanti afburðaleikmenn í Njarðvíkurliðið. Allir leikmennirnir séu fínir en það séu engir „toppar“ í liðinu. Hvorki íslenskir né erlendir. „Svo þrífast hinir á svoleiðis leikmanni. Ef þú ert kominn með frábæran leikmann sem getur búið eitthvað til. Þeir geta litið út fyrir að vera rosalega góðir með því að grípa bara boltann einhverstaðar og skjóta honum,“ bætti Teitur við. „Bakvarðarvörnin hjá Njarðvík líka [í vandræðum]. Hún gerir það að verkum að þessir stóru menn í Njarðvík eru mjög oft í villuvandræðum. Vörn og sókn hjá Glasgow og Jóni Arnóri er búin að vera skelfileg. Þegar leikstjórnandinn er að spila illa áttu voðalega lítinn séns á að vinna leiki,“ bætti Teitur við að lokum. Sjá má allt „rantið“ hans Teits sem og innlegg frá Benna og Kjartani Atla í spilaranum hér að neðan. Klippa: Fóru yfir vandræði Njarðvíkur Domino's Körfuboltakvöld er uppgjörsþáttur Stöðvar 2 Sports um Domino's-deildir karla og kvenna í körfubolta og er á dagskrá öll föstudagskvöld. Upptökur af þættinum má nálgast á sjónvarpsvef Stöðvar 2. Domino's-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland.
Domino's Körfuboltakvöld er uppgjörsþáttur Stöðvar 2 Sports um Domino's-deildir karla og kvenna í körfubolta og er á dagskrá öll föstudagskvöld. Upptökur af þættinum má nálgast á sjónvarpsvef Stöðvar 2. Domino's-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland.
Körfubolti Íslenski körfuboltinn Dominos-deild karla Körfuboltakvöld UMF Njarðvík Mest lesið Þjálfari Orra Steins sáttur: Hann hefur haldið kjafti Fótbolti „Röng ákvörðun af minni hálfu og ég tek fulla ábyrgð“ Íslenski boltinn „Mér leið eins og ég væri í Keanu Reeves mynd“ Íslenski boltinn Hetjan Orri Steinn eftir þrennuna: Besta tilfinning í heimi Fótbolti Hundraðasti sigur Arteta kom gegn erkifjendunum: „Stoltur af leikmönnunum“ Enski boltinn Fyrstir áfram en þjálfarinn meiddist alvarlega þegar leikmaður hans lenti á honum Körfubolti „Ekki boðlegt á þessu getustigi“ Enski boltinn „Hver karfa skiptir máli þannig að ég varð smá reiður“ Körfubolti Dagskráin í dag: Reykjavíkurslagur í Bestu, úrslitakeppni í Subway og NBA ásamt allskonar Sport Uppgjör og viðtöl: KR - Breiðablik 2-3 | Blikar sóttu þrjú stig á grasinu í Vesturbænum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Fyrstir áfram en þjálfarinn meiddist alvarlega þegar leikmaður hans lenti á honum „Hver karfa skiptir máli þannig að ég varð smá reiður“ Uppgjör: Grindavík - Njarðvík 79-83 | Grænar stálu heimavellinum í Smáranum Brunson skaut Philadelphia í kaf LeBron og Davis köstuðu líflínu til Lakers Bucks líklega án beggja ofurstjarna sinna í leik fjögur Góður leikur Tryggva skilaði engu „Kviknaði á okkur og við náðum að slökkva í þeim“ Uppgjör og viðtöl: Keflavík - Stjarnan 93-65 | Ótrúlegur seinni hálfleikur og Keflavík leiðir „Höfum verið að bíða eftir þessu“ Úlfarnir einum sigri frá því að senda Sólirnar í sumarfrí Aþena sendi sterk skilaboð í fyrsta leik Þrjú Suðurnesjalið í undanúrslitum í fyrsta sinn í tuttugu ár Davíð Tómasi bárust ljót skilaboð eftir leik: „Fokking mongolitið þitt“ „Krakkarnir í stúkunni eru byrjaðir að taka upp á þessu líka“ Lakers einu tapi frá því að vera sópað út úr úrslitakeppninni Sjáðu ótrúlegan flautuþrist Þorvaldar Orra „Tel mjög vafasamt að klukkan hafi verið sett af stað á réttum tíma“ „Vakna í hádeginu á morgun og fer að hugsa um Valsarana“ Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu Friðrik Ingi sæmdur gullmerki Njarðvíkur Þórsarar hafa spilað þrjá oddaleiki síðan Njarðvík var síðast í oddaleik Sjokkeruðu Celtics menn með þriggja stiga skotsýningu „Heldur betur búinn að vinna hjörtu Keflvíkinga“ Tekið á móti Tryggva eins og Hollywood stjörnu Hristir hausinn yfir „glórulausum“ og „smásálarlegum“ ummælum Uppgjörið og viðtöl: Haukar 73-75 Stjarnan | Stjarnan áfram eftir naglbít Martin frábær í öruggum sigri „Við erum ekki með stráka sem þurfa að vera hetjur“ Sjáðu mömmu Remy Martin syngja og dansa á hliðarlínunni Sjá meira
Dagskráin í dag: Reykjavíkurslagur í Bestu, úrslitakeppni í Subway og NBA ásamt allskonar Sport
Uppgjör og viðtöl: KR - Breiðablik 2-3 | Blikar sóttu þrjú stig á grasinu í Vesturbænum Íslenski boltinn
Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu
Dagskráin í dag: Reykjavíkurslagur í Bestu, úrslitakeppni í Subway og NBA ásamt allskonar Sport
Uppgjör og viðtöl: KR - Breiðablik 2-3 | Blikar sóttu þrjú stig á grasinu í Vesturbænum Íslenski boltinn