Ryanair kaupir 210 Boeing 737 Max vélar Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 3. desember 2020 22:50 Ryanair hefur fest kaup á 210 Boeing 737 Max flugvélum. Getty/Nik Oiko Írska flugfélagið Ryanair hefur skrifað undir samning um kaup á 75 Boeing 737 Max flugvélum til viðbótar við 135 sem félagið hafði þegar keypt. Flugbanni, sem sett var á eftir tvö mannskæð flugslys, verður líklega létt í Evrópu í janúar.
Ryanair hefur þegar skrifað undir kaupsamning á 135 flugvélum. Vélarnar 75 sem bætt hefur verið við munu hækka kaupverðið upp í 22 milljarða Bandaríkjadala, sem samsvarar um 2.800 milljörðum íslenskra króna. Nýlega afléttu eftirlitsyfirvöld í Bandaríkjunum flugbanninu eftir 20 mánaða langt flugbann vélanna. Flugöryggisstofnun Evrópusambandsins á enn eftir að aflétta banninu en talið er að það gæti gerst í janúar næstkomandi. Ryanair vonast til þess að það geti tekið við nýju flugvélunum á fyrri hluta næsta árs. Boeing neyddist til þess að taka hönnun vélanna til skoðunar eftir að tvær vélar af 737 Max gerð hröpuðu í Indónesíu og Eþíópíu árin 2018 og 2019. 346 dóu í slysunum. Í kjölfarið vöknuðu upp spurningar um öryggi vélanna og voru þær settar í flugbann á meðan gerðar voru grundvallabreytingar á hönnun þeirra.
Boeing Fréttir af flugi Írland Tengdar fréttir Flugbanni Boeing 737 Max vélanna verður líklega aflétt í janúar Flugbanni Boeing 737 Max vélanna verður aflétt í janúar. Eftirlitsyfirvöld í Bandaríkjunum bundu í síðustu viku endi á 20 mánaða langt flugbann vélanna eftir að tvær slíkar vélar hröpuðu. 21. nóvember 2020 23:36 Senda teymi til að sækja MAX-vélarnar úr eyðimörkinni Bandaríska flugfélagið Southwest Airlines hefur sent teymi flugvirkja í eyðimörkina við Victorville í Kaliforníu þar sem flugfélagið geymir 34 af Boeing 737 MAX-flugvélum sínum. 19. nóvember 2020 15:48 MAX-vélar Icelandair teknar í notkun næsta vor Forstjóri Icelandair Group segir að miðað við fjölda flugferða í núverandi ástandi sé Icelandair með nægilega margar vélar til að anna áætluninni. Bandarísk flugmálayfirvöld gáfu MAX-vélunum grænt ljós til að fljúga á ný í gær. 19. nóvember 2020 07:33 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Davíð Tómas ráðinn framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Einar hættir með Grillbúðina Viðskipti innlent Ballið búið fyrir fullt og allt á B5 Viðskipti innlent Rekstrarafkoma Sýnar ekki ásættanleg Viðskipti innlent Ráðin forstöðumaður hjá OK Viðskipti innlent Snýr aftur til Snjallgagna Viðskipti innlent Farþegum fjölgaði og sætanýting um 85 prósent Viðskipti innlent Hætta skerðingum til stórnotenda Viðskipti innlent „Fólk heldur kannski að það sé saklaust að kaupa eina falsaða tösku“ Atvinnulíf Háttsemi dómara ekki saknæm og Isavia fær því enga milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tekjur Apple drógust saman enn eina ferðina Stofnandi Binance dæmdur fyrir peningaþvætti Sagðir vilja frekar loka TikTok en selja Sækjast eftir fangelsisdómi yfir rafmyntakóngi Mikill samdráttur á hagnaði Tesla Ný kynslóð vélmenna vekur óhug Ólígarkar unnu mál vegna refsiaðgerða fyrir Evrópudómstól Gervigreind Amazon reyndist þúsund Indverjar Rekja meirihluta heimslosunar til 57 framleiðenda Í basli með viðhald og viðgerðir á olíuvinnslum Taylor Swift meðal 265 nýliða á milljarðamæringalista Forbes Wow lifir enn góðu lífi í undraheimi Roosevelt Edwards Sjá meira
Flugbanni Boeing 737 Max vélanna verður líklega aflétt í janúar Flugbanni Boeing 737 Max vélanna verður aflétt í janúar. Eftirlitsyfirvöld í Bandaríkjunum bundu í síðustu viku endi á 20 mánaða langt flugbann vélanna eftir að tvær slíkar vélar hröpuðu. 21. nóvember 2020 23:36
Senda teymi til að sækja MAX-vélarnar úr eyðimörkinni Bandaríska flugfélagið Southwest Airlines hefur sent teymi flugvirkja í eyðimörkina við Victorville í Kaliforníu þar sem flugfélagið geymir 34 af Boeing 737 MAX-flugvélum sínum. 19. nóvember 2020 15:48
MAX-vélar Icelandair teknar í notkun næsta vor Forstjóri Icelandair Group segir að miðað við fjölda flugferða í núverandi ástandi sé Icelandair með nægilega margar vélar til að anna áætluninni. Bandarísk flugmálayfirvöld gáfu MAX-vélunum grænt ljós til að fljúga á ný í gær. 19. nóvember 2020 07:33