Mæla hvort kvikugas streymi til yfirborðs Kristján Már Unnarsson skrifar 27. febrúar 2021 13:31 Sérfræðingur Veðurstofu Íslands, Melissa Anne Pfeffer, mælir kvikugas í Svartsengi síðastliðinn miðvikudag. Vilhelm Gunnarsson Jarðvísindamenn fylgjast náið með því hvort einhverjar vísbendingar sjáist um kvikuhreyfingar í tengslum við jarðskjálftahrinuna á Reykjanesskaga. Einn liður í eftirlitinu eru daglegar mælingar á gasuppstreymi. „
Mælingar hingað til gefa engar vísbendingar um kvikuinnskot í þessari hrinu en sérfræðingar Veðurstofunnar munu halda áfram að mæla gasútstreymi á svæðinu, en ummerki um kvikugös, ef einhver væru, gætu sést í gasmælingum,“ segir á vef Veðurstofunnar. Sara Barsotti, fagstjóri eldfjallavár á Veðurstofu Íslands, við mælingar í Svartsengi. Vilhelm Gunnarsson Sérfræðingar Veðurstofu Íslands hafa síðustu daga farið um svæði eins og Krýsuvík, Svartsengi og Eldvörp. Í Svartsengi hittum við á þær Melissu Anne Pfeffer, sérfræðing á sviði ösku- og efnadreifingar, og Söru Barsotti, fagstjóra eldfjallavár. Þær voru meðal annars að mæla hvort útstreymi radon-gass hefði aukist sem og hvort hitastig hefði hækkað. „Við sáum engar breytingar núna með þessum mælingum,“ sagði Melissa Anne Pfeffer, í viðtali í fréttum Stöðvar 2 á miðvikudag, eftir fyrstu stóru skjálftana. Hún sagði að mælingar á radon-gasi væru síðan bornar saman við jarðskjálfta og hreyfingar jarðskorpunnar sem mælast á gps-tækjum. Melissa Anne Pfeffer og Sara Barsotti eru báðar jarðvísindamenn á Veðurstofu Íslands.Vilhelm Gunnarsson „Það er erfitt að segja núna hvort þetta er kvika eða ekki. Við þurfum meiri gögn,“ sagði Sara Barsotti í viðtalinu á miðvikudag. „Það tekur tíma fyrir gas frá kviku til að koma upp. En við sjáum ekkert skrýtið núna hér,“ sagði Melissa. Hér má sjá vísindamennina að störfum:
Jarðhræringar á Reykjanesi Eldgos og jarðhræringar Grindavík Almannavarnir Tengdar fréttir Sviðsmyndirnar vegna skjálftanna margar og misalvarlegar Jarðeðlisfræðingur segir margar sviðsmyndir í stöðunni þegar horft er á framhaldið. Engar vísbendingar eru um kvikusöfnun en ef af gosi verður býst hann ekki við því að það verði stórt. 27. febrúar 2021 10:30 Telja líklegustu gossvæðin við Trölladyngju og að hraun flæði um mitt Reykjanesið Líklegustu eldgosasvæðin eru við Trölladyngju samkvæmt eldsuppkomuspá Eldfjallafræði og náttúruvárhóps Háskóla Íslands. Ef af gosi verður er líklegast að hraun flæði um mitt Reykjanes. 26. febrúar 2021 23:40 Jarðskjálftinn í kvöld sá þriðji öflugasti í hrinunni Jarðfræðistofnun Bandaríkjanna, USGS, telur jarðskjálftann sem varð á Reykjanesskaga klukkan 22.39 í kvöld hafa verið 4,9 stig að stærð. Veðurstofa Íslands mat skjálftann í fyrstu upp á ýmist 4,3 stig eða 4,7 stig en núna hefur Veðurstofan endurmetið styrk hans og telur hann einnig hafa verið 4,9 stig. 26. febrúar 2021 23:31 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Samfélagið í áfalli vegna málsins Innlent Minnstu smáatriði úthugsuð og til þess gerð að skapa hughrif Innlent „Algjörlega forkastanlegt“ ef stjórnvöld svari ekki beiðninni Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Mig langaði bara að drepa þennan mann“ Innlent Aðskilnaðarsinnar að missa þingmeirihluta í Katalóníu Erlent Ragnar Freyr segist hreinsaður af sök Innlent „Hann hættir bara ekki” Innlent Læknir segir að brottvísun muni ógna lífi sjúklings Innlent Vilja bæta íslenskukennslu fyrir innflytjendur Innlent Fleiri fréttir „Algjörlega forkastanlegt“ ef stjórnvöld svari ekki beiðninni Minnstu smáatriði úthugsuð og til þess gerð að skapa hughrif Samfélagið í áfalli vegna málsins Vilja bæta íslenskukennslu fyrir innflytjendur Ragnar Freyr segist hreinsaður af sök Læknir segir að brottvísun muni ógna lífi sjúklings „Er réttur þinn eða mannréttindi að einhver annar deyði þig?“ Kviknaði í bragga á Egilsstöðum Bíó og plokkfiskur á Patreksfirði um hvítasunnuhelgina Meint fjárkúgun, frelsissvipting og líkamsárás Rannsaka alvarlegt ofbeldisbrot í Árnessýslu Pólitíkin, dánaraðstoð, NATO og kosningar á Sprengisandi „Mig langaði bara að drepa þennan mann“ Grunaðir um rán í miðbænum Aðrir frambjóðendur en efstu tveir eigi töluvert langt í land Sauð upp úr milli bónda og dýraverndunarsinna Kappræðurnar höfðu talsverð áhrif á kjósendur Forréttindi að fá að fylgja fólki í gegnum erfiðasta tíma lífsins Vilja breyta fyrirkomulagi við úthlutun plássa „Maður getur varla ímyndað sér hvað þarf að koma til“ Handtaka hælisleitenda og brottrekstur Hollands úr Eurovision Hitaveitulögn sprakk í Breiðholti Leita enn að þeim sem réðu barnabarninu bana Rigning í kortunum í kvöld „Hann hættir bara ekki” Hótaði lögregluþjónum og fjölskyldum þeirra Vilja að plássum í sumarfrístund sé útdeilt með sanngjarnari hætti Mótmælendur gegn brottvísun hindruðu för lögreglubíls Gætu verið einhverjar vikur í næsta gos Forsetakosningar á Eyrarbakka – munu sakna buffsins frá Guðna Sjá meira
Sviðsmyndirnar vegna skjálftanna margar og misalvarlegar Jarðeðlisfræðingur segir margar sviðsmyndir í stöðunni þegar horft er á framhaldið. Engar vísbendingar eru um kvikusöfnun en ef af gosi verður býst hann ekki við því að það verði stórt. 27. febrúar 2021 10:30
Telja líklegustu gossvæðin við Trölladyngju og að hraun flæði um mitt Reykjanesið Líklegustu eldgosasvæðin eru við Trölladyngju samkvæmt eldsuppkomuspá Eldfjallafræði og náttúruvárhóps Háskóla Íslands. Ef af gosi verður er líklegast að hraun flæði um mitt Reykjanes. 26. febrúar 2021 23:40
Jarðskjálftinn í kvöld sá þriðji öflugasti í hrinunni Jarðfræðistofnun Bandaríkjanna, USGS, telur jarðskjálftann sem varð á Reykjanesskaga klukkan 22.39 í kvöld hafa verið 4,9 stig að stærð. Veðurstofa Íslands mat skjálftann í fyrstu upp á ýmist 4,3 stig eða 4,7 stig en núna hefur Veðurstofan endurmetið styrk hans og telur hann einnig hafa verið 4,9 stig. 26. febrúar 2021 23:31