Beinbrotnaði á fjórhjólinu

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-GNÁ, var kölluð út í gær vegna slyss …
Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-GNÁ, var kölluð út í gær vegna slyss við Strút á Mælifellssandi. Ljósmynd/Landhelgisgæslan

Fjórhjólamaðurinn sem slasaðist við fjallið Strút á Mælifellssandi í gærkvöldi beinbrotnaði. Hann var með fullri meðvitund þegar björgunarsveitarfólk á vegum Slysavarnarfélagsins Landsbjargar mætti á vettvang.

Greint var frá því í gærkvöldi að þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-GNÁ, hefði verið kölluð út vegna slyss við fjallið. Þyrlan kom vestur frá Ísafirði og flutti manninn á Landspítalann í Fossvogi, að sögn Jóns Þórs Víglundsson, upplýsingafulltrúa Landsbjargar.

Maðurinn var ekki einn á ferð og fékk aðhlynningu frá öðrum á staðnum þangað til viðbragðsaðilar komu til aðstoðar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert