Búin að skera út allar gangtegundir íslenska hestsins Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 13. maí 2022 19:30 Sigga á Grund við hestana sína fimm með öllum gangtegundum íslenska hestsins, sem hún hefur nú lokið við að skera út. Magnús Hlynur Hreiðarsson Íslenskur hesturinn er í miklu metum og uppáhaldi hjá Sigríði Jónu Kristjánsdóttur, alltaf kölluð Sigga á Grund, útskurðarmeistara í Flóanum, enda var hún að ljúka við að skera út allar fimm gangtegundir hestsins. Auk þess var hún að gera risa drykkjarhorn úr nautgripahorni.
Maður verður hálf orðlaus þegar komið er inn á smíðaverkstæðið hjá Siggu því verkin hennar eru svo glæsileg. Nú var einum af hápunktinum á ferlinum að ljúka hjá henni því hún var að klára að skera út gangtegundir íslenska hestsins en það er fet, brokk, skeið, stökk og tölt. Töltarinn var síðastur í röðinni. Allt skorið út í Linditré. „Já, já, ég er mjög ánægð með þá alla saman. Það var erfiðast að skera út brokkið og skeiðið en fetið var auðveldast,“ segir Sigga. Sigga segist hafa tengst hestunum öllum mjög vel enda búin að eyða mörg hundruð klukkustundum í að skera þá út. Þeir verða nú sýndir í Tré og List í Flóahreppi í einhvern tíma en fara svo aftur heim á Grund. Sigga á Grund með töltarann, sem hún var að ljúka við að skera út.Magnús Hlynur Hreiðarsson En verða þeir þá áfram á Grund eða eru þeir falir? „Nei, þeir eru ekki falir, þeir eru það ekki, þeir verða mér bara til skemmtunar,“ segir hún og hlær. Sigga nær öllum smáatriðunum ótrúlega vel í hestunum, t.d. faxið, taglið, hófunum, höfuðburðinum og lyftingunni eins og á tölthestinum. Sigga á Grund er mikill snillingur þegar kemur að útskurði.Magnús Hlynur Hreiðarsson En það eru ekki bara hestarnir, sem Sigga hefur verið að vinna með, því hún var að klára glæsilegt stórt drykkjarhorn úr nautgripahorni „Já, og svo setti ég náttúrulega bolann upp á hornið, öskuvondan alveg, hann rótar upp þúfunni, sem það stendur á,“ segir Sigga og hlær. Sigga smíðar og sker líka út tóbakshorn, sem eru alltaf vinsæl hjá henni. „Ég held að það sé nú eiginlega engin, sem smíðar þau í dag nema Sigga á Grund, ég held ekki, og ég sker þau náttúrulega út líka.“ Drykkjarhornið, sem Sigga á Grund var að klára en það er nautgripahorn. Bolinn er upp á því. Tóbakshornin eru líka á borðinu.Magnús Hlynur Hreiðarsson En hvað er útskurðurinn að gefa Siggu? „Ég sofna bara með þetta í kollinum á kvöldin og svo bara vakna ég með þetta líka á morgnanna, það er bara yndislegt,“ segir hún brosandi.
Flóahreppur Hestar Menning Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Svandís boðar til blaðamannafundar Innlent „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Erlent Spellvirkinn lætur til skarar skríða á ný Innlent Heyrist meira af kjaftæði um lyf en vísindalegum staðreyndum Innlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent „Fann það þegar ég vaknaði í morgun að þetta var lúmskt áfall“ Innlent Sautján greinst með kíghósta og inflúensan enn að dreifa sér Innlent Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Erlent Horfði á þegar vinur hans réðst á manninn sem braut á dóttur hans Innlent Vilja svör um möguleg „óþægileg hagsmunatengsl“ borgar og RÚV Innlent Fleiri fréttir Börn lögð inn með kíghósta „Við reyndum eins og við gátum“ Framkvæmdanefnd fyrir Grindavík sett á laggirnar Sambærileg rúðubrot í Lækjargötu og á Skólavörðustíg Skipar framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur Spellvirkinn lætur til skarar skríða á ný Pallborð í dag og niðurstöður nýrrar könnunar Svandís boðar til blaðamannafundar Heyrist meira af kjaftæði um lyf en vísindalegum staðreyndum Sautján greinst með kíghósta og inflúensan enn að dreifa sér Vilja svör um möguleg „óþægileg hagsmunatengsl“ borgar og RÚV „Fann það þegar ég vaknaði í morgun að þetta var lúmskt áfall“ Horfði á þegar vinur hans réðst á manninn sem braut á dóttur hans „Helvíti fínt“ að komast aftur á Papa's Pizza Ætlar ekki að þröngva sér upp á fólk Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Papa's Pizza, verkföll flugvallarstarfsmanna og óvæntur forsetaframbjóðandi Kolbeinn Sigþórsson ákærður fyrir brot gegn barnungri stúlku Framboð Viktors Traustasonar er gilt Hárgreiðslustóll ekki hættulegt tæki og konan fær engar bætur Afkoma borgarinnar versnar um níu milljarða króna milli ára Samþykktu verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli Útimarkaðurinn í Mosó hættir Atli Þór ráðinn til Pírata: „Við ætlum að koma flokknum í ríkisstjórn“ Biðlistinn á Stígamótum styttist í fyrsta sinn í þrjú ár Ný skoðanakönnun á morgun og Pallborð klukkan 14 Áfram landris og óvissa um framhaldið Tryggja þurfi tímabundin afnot náttúruauðlinda í stjórnarskrá Búinn að skila inn undirskriftum eftir „óvenjulegan“ frest „Það er norskur sigur í dag“ Sjá meira