Öskjuvatn hefur lagt á ný eftir kuldatíð síðustu vikna Atli Ísleifsson skrifar 17. mars 2023 14:47 Gervihnattamynd tekin 12. mars sem sýnir ísilagt Öskjuvatn eftir kuldatíðina. Veðurstofan/Copernicus (Sentinel-2) Öskjuvatn hefur lagt aftur eftir kuldatíð síðustu vikna og sýnir það hversu síbreytilegt umhverfið við Öskju er. Áfram er fylgst náið með eldstöðinni.
Þetta kemur fram á vef Veðurstofunnar en mánaðarlegur langtímaeftirlitsfundur vegna jarðvár var haldinn í vikunni þar sem rýnt er í gögn síðasta mánaðar til að meta þróun í virkni eldstöðva, ásamt því að yfirfara vöktunarstig Veðurstofunnar fyrir eldfjöll. Sérstaklega var litið til Öskju og Kötlu á fundinum. Um Öskju segir að jarðskjálftavirkni við Öskju hafi aukist greinilega við upphaf landriss í ágúst 2021 en í desember hafi svo aftur dregið úr virkninni og hún haldist jöfn síðan þá. Þó megi sjá að virknin hafi verið umfram bakgrunnsvirkni sem mældist áður en landris hófst. Engin skýr merki eru um breytingu á landrisi. Um jarðskjálftavirkni í Kötlu segir að hún hafi aukist síðustu mánuði og frá síðastliðnu hausti hafi ríflega tuttugu skjálftar yfir þremur að stærð mælst í eldstöðinni. Stærsti skjálftinn hafi verið í nóvember 2022 og verið 3,9 að stærð. „Dæmi eru um að jarðskjálftavirkni hafi aukist tímabundið. Síðast gerðist það á tímabilinu frá júlí 2016 fram til ágúst 2017. Á því tímabili mældust hátt í 60 jarðskjálftar yfir þremur að stærð og fjórir þeirra voru yfir fjórum að stærð. Stærsti skjálftinn mældist í ágúst 2016 og var 4,7 að stærð. Gögn benda til þess að jarðhitavatn hafi lekið í Múlakvísl um mánaðarmótin febrúar – mars. Þá mældist há rafleiðni í ánni og jarðhitagas mældist við Láguhvola sem er nærri Kötlujökli þar sem Múlakvísl á upptök sín. Jarðhitavatnsleki eins og sá sem mældist um mánaðarmótin er reglulegur atburður í Múlakvísl og er hluti af hefðbundinni virkni í Kötlu. Engar mælanlegar breytingar eru á jarðskorpuhreyfingum. Út frá þeim gögnum sem farið var yfir á fundinum er ekki talin ástæða til að breyta vöktunarstigi fyrir Kötlu, en náttúruvárvakt Veðurstofunnar fylgist grannt með eldstöðinni sem og öðrum eldstöðvum landsins allan sólahringinn alla daga ársins,“ segir á vef Veðurstofunnar.
Askja Eldgos og jarðhræringar Tengdar fréttir Jarðhiti í Öskjuvatni aukist verulega Jarðhiti í og við Öskjuvatn hefur aukist verulega í febrúar og ísinn á vatninu hefur svarað þeim hitabreytingum með því að gefa eftir. 1. mars 2023 18:05 Engin skýr merki um vendingar í Öskju Náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands segir að engin skýr merki séu um vendingar í Öskju. Hægt sé að útskýra bráðnun á ísnum á Öskjuvatni með vindum. 18. febrúar 2023 12:12 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Enok ákærður fyrir að fleygja manni niður tröppur og berja annan Innlent Öllum aðgerðum aflýst og flugfarþegar geta andað léttar Innlent Fyrsta flugið til Íslands var hluti heimsviðburðar Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Annar hvirfilbylurinn í Oklahoma á rúmum mánuði Erlent Gosið gæti þúsundfaldast við nýjan atburð Innlent „Ég sé engar staðreyndavillur í þessum þætti“ Innlent Samþykktu tillögu Sjálfstæðisflokksins Innlent Skelfilegt að þurfa grípa til hópuppsagna Innlent Atburðirnir fyrir botni Miðjarðarhafs því sem næst „óraunverulegir“ Innlent Fleiri fréttir Fyrsta flugið til Íslands var hluti heimsviðburðar Öllum aðgerðum aflýst og flugfarþegar geta andað léttar Bein útsending frá samstöðutónleikum í Háskólabíó í opinni dagskrá Skelfilegt að þurfa grípa til hópuppsagna Nýtt sanngirnisbótafrumvarp gæti komið fram Atburðirnir fyrir botni Miðjarðarhafs því sem næst „óraunverulegir“ Engri kirkju hollt að vera of nálægt ríkinu Samþykktu tillögu Sjálfstæðisflokksins Reynt til þrautar að ná samningum áður en aðgerðir skella á Júróvisíon í skugga stríðsreksturs og sársaukafullar uppsagnir Enok ákærður fyrir að fleygja manni niður tröppur og berja annan Undirbúa hópuppsögn hjá Grindavíkurbæ Töluverð óvissa um framvindu jarðhræringanna Gæsluvarðhald yfir manninum framlengt „Við þurfum ekki að verjast neinu“ „Ég sé engar staðreyndavillur í þessum þætti“ Aðstæður fyrir stýrivaxtalækkun á morgun Gosið gæti þúsundfaldast við nýjan atburð Séra Guðrún kjörin biskup Íslands Segja „alvarlegar staðreyndavillur“ í umfjöllun Kastljóss SA og SSF skrifuðu undir langtímakjarasamning Agnes segir nýjan biskup taka við annarri kirkju en hún tók við Stýrivextir, Eurovision og biskupskjör „Skítkastið var ógeðslegt“ Fiskadauði í einni af mestu sjóbirtingsveiðiám landsins Valtýr ráðinn yfirlæknir Ný nálgun Samfylkingar í orkumálum konfekt í eyrum Jóns Vilja tryggja öryggi starfsfólks í vegavinnu „Massíf slysaslepping á vondu frumvarpi“ Stillir viðtækið á alheimsdögunina Sjá meira
Jarðhiti í Öskjuvatni aukist verulega Jarðhiti í og við Öskjuvatn hefur aukist verulega í febrúar og ísinn á vatninu hefur svarað þeim hitabreytingum með því að gefa eftir. 1. mars 2023 18:05
Engin skýr merki um vendingar í Öskju Náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands segir að engin skýr merki séu um vendingar í Öskju. Hægt sé að útskýra bráðnun á ísnum á Öskjuvatni með vindum. 18. febrúar 2023 12:12