Á leið í norsku úrvalsdeildina?

Ásgeir Snær Vignisson í leik með ÍBV á síðasta tímabili.
Ásgeir Snær Vignisson í leik með ÍBV á síðasta tímabili. mbl.is/Óttar Geirsson

Handboltamaðurinn Ásgeir Snær Vignisson mun að öllum líkindum skipta frá sænska úrvalsdeildarliðinu Helsingborg til norska úrvalsdeildarliðsins Fjellhammer í sumar.

Ásgeir Snær gekk til liðs við Helsingborg fyrir yfirstandandi tímabil.

Liðið er sem stendur á botni sænsku úrvalsdeildarinnar, tveimur stigum frá öruggu sæti þegar tvær umferðir eru eftir af deildarkeppninni.

Norski fjölmiðlamaðurinn og handboltalýsandinn Thomas Karlsen greinir frá því á Twitter-aðgangi sínum að viðræður Fjellhammer við hægri skyttuna séu á lokastigi.

Fjellhammer er sem stendur í áttunda sæti norsku úrvalsdeildarinnar.

Ásgeir Snær, sem er 23 ára gamall, hefur áður leikið með ÍBV og Val, þar sem hann er uppalinn, hér á landi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert