Máni gengur til liðs við Brandenburg

Máni er genginn til liðs við Brandenburg.
Máni er genginn til liðs við Brandenburg.

Auglýsingastofan Brandenburg hefur ráðið Mána M. Sigfússon til starfa. Hann mun gegna stöðu hreyfihönnuðar á stofunni. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu. 

Máni lærði kvikmyndagerð í Amsterdam og lauk BA-námi í myndlist við Listaháskóla Íslands. Hann hefur víðtæka reynslu af leikstjórn og hreyfihönnun og hefur starfað fyrir mörg helstu hönnunar- og framleiðslufyrirtæki landsins.

Á síðustu árum hefur Máni einnig leikstýrt og framleitt fjölda tónlistarmyndbanda. Hann hefur getið sér góðs orðs fyrir myndbönd og myndverk við tónleikahald og hefur sinnt verkefnum fyrir listamenn á borð við Rolling Stones, Shawn Mendes og Jóhann Jóhannsson. 

„Við erum virkilega ánægð með að fá Mána til starfa. Sú mikla og fjölþætta reynsla sem hann kemur með mun vera stofunni mikill liðsstyrkur. Það er sérstaklega mikilvægt um þessar mundir, enda liggja nú fyrir fjölmörg spennandi verkefni sem við hlökkum til að takast á við,“ segir Jón Ari Helgason, hugmynda- og hönnunarstjóri og einn eigenda stofunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK