Tal stefnir á að verða heimili íslenskra hlaðvarpa Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 26. nóvember 2021 16:00 Auðun Bragi Kjartansson segir að hver sem er geti haft samband, hvort sem hlaðvarpið er nú þegar komið í loftið eða enn á byrjunarstigi eða jafnvel bara hugmynd. Vísir/Vilhelm „Stefnan hjá Tal er að vera heimili íslenskra hlaðvarpa,“ segir Auðun Bragi Kjartansson vörustjóri Tal sem fór í loftið á Vísi í dag. Tal er nýr hlaðvarpsheimur og fyrsta útgáfan hefur nú fengið að líta dagsins ljós. „
Það er frábær tilfinning að fá þetta í loftið. Þetta er í raun bara fyrsta útgáfan og vinnan við uppfærslu hefur verið hafin og ég er ennþá meira spenntur að koma henni í loftið og sýna fólki hvað við höfum verið að gera,“ segir Auðun. Íslenskt efni „Þetta verður staður fyrir hlustendur til þess að uppgötva íslenskt efni, kynnast efnisframleiðendum á nýjan hátt og koma sjónarmiðum hlustenda og gagnrýni á framfæri.“ Verkefnið Tal hefur staðið yfir í nokkra mánuði en hefur verið á teikniborðinu hjá Auðuni síðan á síðasta ári. Fyrsta hlaðvarpið sem þeir framleiddu og settu í loftið var áskriftarhlaðvarpið Blökastið. „Viðbrögðin hafa verið frábær. Gaman að fylgjast með því þróast, við erum að prófa allskonar þætti í mynd, green screen og meira að segja þáttur í mynd frá Tene. Blökastið er ótrúlega skemmtilegt og verður bara skemmtilegra.“ Nú þegar eru þúsundir áskrifenda að Blökastinu og þeim fjölgar stöðugt. Nú hafa fleiri hlaðvörp byrjað í framleiðslu hjá Tal eins og Þungavigtin og Átján plús. Hópurinn mun svo halda áfram að stækka. Skjáskot af tal.is, síðunni sem fór í loftið í dag. Stuðningur við þá sem búa til hlaðvörp „Við erum að búa til umhverfi fyrir hlaðsvarpsstjórnendur þar sem þau geta einbeitt sér að búa til frábært efni og við hjálpum þeim að vaxa. Það sem er líka spennandi við Tal, er að það er stuðningur til að selja áskriftir. Þar fá skapandi einstaklingar læst svæði sem aðeins áskrifendur hafa aðgang að og geta þar byggt upp sitt eigið samfélag og skapað tekjur.“ Svæðið býður upp á möguleikann að setja inn mynd-, hljóð- og textaefni ásamt eiginleikum eins og athugasemdakerfi, póstkerfi og geta einnig farið í beina útsendingu fyrir áskrifendur. „Hver sem er getur komið til okkar með hugmynd eða fyrirspurnir. Það er hnappur uppi í hægra horninu á Tal.is sem heitir Ég vil vinna með Tal, þar sem við hvetjum alla til þess að hafa samband. Sama hvort hugmyndin er ný eða hvort þau eru nú þegar komin í loftið. Við erum spennt að hitta nýja “Tal”-enta og bendum fólki sem hefur áhuga á að hafa samband með því að smella á hnappinn,“ segir Auðun að lokum.
Fjölmiðlar Mest lesið „Eins og verstu unglingar í sleepover“ Makamál Grease-stjarnan Susan Buckner látin Lífið „Kastaði upp um nóttina áður en ég fór á sviðið“ Lífið Hera komst ekki áfram Lífið Anníe Mist fór í keisaraskurð Lífið Ungfrú Bandaríkin afsalar sér titlinum Lífið „Af hverju er oft vont að putta sig?“ Lífið Guðni forseti á samstöðutónleikum í Háskólabíó Lífið Smalahundaþjálfun og æsingur í hundum vegna gestagangs Lífið Nýi Draumurinn slær í gegn Lífið samstarf Fleiri fréttir Raggi Bjarna vissi aldrei hvað Friðrik Dór heitir Friðrik Ómar kynnir stig Íslands í Eurovision Ian Gelder úr Game of Thrones látinn „Kastaði upp um nóttina áður en ég fór á sviðið“ Svakalega erfitt en stórkostlegt Anníe Mist fór í keisaraskurð Ungfrú Bandaríkin afsalar sér titlinum Sötrað á Kalda í tíu ár Grease-stjarnan Susan Buckner látin Guðni forseti á samstöðutónleikum í Háskólabíó Hera komst ekki áfram „Af hverju er oft vont að putta sig?“ Eurovision-vaktin: Vonbrigði á fyrra undankvöldi Eurovision Eurovision-hópurinn afklæðist milli atriða Tókst ekki að selja í öll auglýsingaplássin á RÚV í kvöld Ísland geti orðið fyrsta reyklausa landið í heimi Glösin á loft fyrir nýjum burstahreinsi „Pollróleg“ en full eftirvæntingar fyrir kvöldinu Nánast engar líkur taldar á að Hera komist áfram Óli Palli ætlar að horfa á Stöð 2 í kvöld Salurinn aldrei sungið eins mikið með einu lagi Hvaða jólasveinn verður næsti forseti? Hataði á sér brjóstin og vildi skera þau af Smalahundaþjálfun og æsingur í hundum vegna gestagangs Endurgerðu Síðustu kvöldmáltíðina eftir síðustu pylsuna Myndaveisla: Svana töfraði fram suðræna veislu fyrir UAK Myndaveisla: Mari og Guðni féllust í faðma á ögurstundu Stærstu stjörnur rappsins bera hvor annan þungum sökum Baulað á Kim Kardashian þegar Brady var grillaður Söngskóli Sigurðar Demetz með Oklahoma í Borgarleikhúsinu Sjá meira