Piers Morgan til Fox Þorgils Jónsson skrifar 16. september 2021 18:20 Rupert Murdoch, stjórnarformaður News Corp, og Piers Morgan voru keikir með væntanlegt samstarf, en Morgan hefur gengið til liðs við News Corp og Fox News Media. Breski fjölmiðlamaðurinn Piers Morgan gekk í dag til liðs við Rupert Murdoch og félög hans, News Corp og Fox News Media. Morgan mun framleiða efni þvert á miðla News Corp sem mun birtast um allan heim.
Meðal annars verður hann með daglega þætti á nýrri sjónvarpsstöð, talkTV frá og með næsta ári, en hann mun einnig skrifa pistla fyrir New York Post og breska götublaðið The Sun. Morgan hefur komið víða við á löngum ferli, sem hófst einmitt hjá Murdoch á Sun og svo hinu sáluga News of the World. Síðan þá hefur hann meðal annars stýrt Daily Mirror og komið fram í hinum ýmsu skemmtiþáttum, þar sem helst má nefna Britain‘s got Talent og bandarísku útgáfuna af sama þætti. Síðustu sex á stýrði hann morgunþættinum Good Morning Britain á ITV, en hætti þar í vor eftir að hafa rokið út í fússi í beinni útsendingu eftir snarpa snerru við samstarfsfélaga. Morgan hefur verið talsvert umdeildur í gegnum árin þar sem hann var meðal annars í hringiðu símhleranahneykslisins sem skók breska fjölmiðlaheiminn í upphafi aldarinnar. Síðan þá hefur hann blandað sér í mörg hitamál, en fá með eins afgerandi hætti og hvað varðar Harry Bretaprins og eiginkonu hans, Meghan Markle. Hann gerði lítið úr frásögn hennar um sjálfsvígshugleiðingar í tengslum við deilur innan konungsfjölskyldunnar, og hlaut fyrir vikið tugir þúsunda kvartana frá áhorfendum. Murdoch lýsti yfir ánægju með að hafa fengið Morgan til liðs við sig – „sjónvarpsmann sem allar stöðvar vilja en engin þorir að ráða.“
Fjölmiðlar Bretland Tengdar fréttir Sakar Markle og Harry um „lygar á alheimsskala“ Piers Morgan heldur fast í þær fullyrðingar sínar að Meghan Markle og Harry Bretaprins hafi logið í viðtali við Opruh Winfrey á dögunum og segist njóta stuðnings verulegs meirihluta bresku þjóðarinnar. 6. apríl 2021 07:59 Aldrei fleiri kvartanir borist Rúmlega 57 þúsund kvartanir hafa borist breska eftirlitsaðilanum Ofcom í kjölfar þáttar Good Morning Britain í síðustu viku þar sem viðtal Opruh Winfrey við hertogahjónin af Sussex var til umræðu. Aldrei hafa jafn margar kvartanir borist fjölmiðlaeftirlitinu vegna sjónvarpsefnis áður. 17. mars 2021 18:41 Fjöldi starfsmanna Good Morning Britain kvartaði vegna ummæla Morgans Tugir starfsmanna sjónvarpsþáttarins Good Morning Britain, sem er á dagskrá ITV á morgnana, kvörtuðu til stjórnenda sjónvarpsstöðvarinnar vegna ummæla sem Piers Morgan lét falla um Meghan Markle, hertogaynjuna af Sussex, í þættinum á mánudaginn. 11. mars 2021 09:09 Piers Morgan móðgaðist og strunsaði út úr stúdíóinu Piers Morgan, einn þáttastjórnanda Good Morning Britain á ITV-sjónvarpsstöðinni, strunsaði út úr myndverinu í beinni útsendingu í morgun í kjölfar umræðu um hið margumtalaða viðtal Opruh Winfrey við Meghan Markle og Harry Bretaprins. 9. mars 2021 10:13 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Köld vatnsgusa“ framan í skólasamfélagið í Laugardal Innlent Fékk ekki að kveðja eiginmanninn fyrir flugið til Nígeríu Innlent Vann fimmtíu milljónir króna Innlent „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Innlent „Við lögleiðum heróínið en bönnum áfengið. Þetta er galið“ Innlent Tvö innbrot á heimili og líkamsárás með kylfu og piparúða Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Erlent Álftin breyttist í dreka og rak hundinn upp úr með látum Innlent Lýsa eftir Sigurði Fannari Innlent Fleiri fréttir Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka „Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Losnar af réttargeðdeild eftir allt saman Blinken í óvænta heimsókn til Kænugarðs Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Fjöldi látinna á Gasa á reiki Færeyingar fjölga vindmyllum til að draga úr olíukyndingu Ein blóðugasta kosningabarátta í manna minnum „Rússneskum lögum“ hraðað áfram þrátt fyrir hávær mótmæli Þrír menn ákærðir í Bretlandi vegna tengsla sinna við Hong Kong Staðfestir flokkun AfD sem öfgasamtaka Sló eigið met á Everest Kórónuveirufaraldurinn ekkert miðað við sýklalyfjaónæmi Aftur barist í norðurhluta Gasa á meðan þúsundir flýja Rafah Aðskilnaðarsinnar að missa þingmeirihluta í Katalóníu Pútín skiptir um varnarmálaráðherra Fjölbýlishús hrundi í Belgorod Fyrsti lifandi svínsnýrnaþeginn er látinn Mótmælin gegn „rússnesku“ lögunum stækka enn Palestína fær aukna þáttöku á allsherjarþingi SÞ Hundruð létust í flóðum Fyrirskipa þúsundum að yfirgefa Rafah Hollenska söngvaranum bannað að keppa í kjölfar „hótana“ Evrópa böðuð bleiku Sjá meira
Sakar Markle og Harry um „lygar á alheimsskala“ Piers Morgan heldur fast í þær fullyrðingar sínar að Meghan Markle og Harry Bretaprins hafi logið í viðtali við Opruh Winfrey á dögunum og segist njóta stuðnings verulegs meirihluta bresku þjóðarinnar. 6. apríl 2021 07:59
Aldrei fleiri kvartanir borist Rúmlega 57 þúsund kvartanir hafa borist breska eftirlitsaðilanum Ofcom í kjölfar þáttar Good Morning Britain í síðustu viku þar sem viðtal Opruh Winfrey við hertogahjónin af Sussex var til umræðu. Aldrei hafa jafn margar kvartanir borist fjölmiðlaeftirlitinu vegna sjónvarpsefnis áður. 17. mars 2021 18:41
Fjöldi starfsmanna Good Morning Britain kvartaði vegna ummæla Morgans Tugir starfsmanna sjónvarpsþáttarins Good Morning Britain, sem er á dagskrá ITV á morgnana, kvörtuðu til stjórnenda sjónvarpsstöðvarinnar vegna ummæla sem Piers Morgan lét falla um Meghan Markle, hertogaynjuna af Sussex, í þættinum á mánudaginn. 11. mars 2021 09:09
Piers Morgan móðgaðist og strunsaði út úr stúdíóinu Piers Morgan, einn þáttastjórnanda Good Morning Britain á ITV-sjónvarpsstöðinni, strunsaði út úr myndverinu í beinni útsendingu í morgun í kjölfar umræðu um hið margumtalaða viðtal Opruh Winfrey við Meghan Markle og Harry Bretaprins. 9. mars 2021 10:13