Innlent

Greiningar­­prófi að þakka að Fenta­­nýl fannst í kristölum sem sagðir voru hreinir

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Kristinn Ingvarsson og Andri Einarsson stofnuðu Varlega í janúar.
Kristinn Ingvarsson og Andri Einarsson stofnuðu Varlega í janúar. einar árnason

Fentanýl fannst nýlega í MDMA kristölum sem voru í umferð hér á landi og sagðir hreinir. Þetta kom í ljós þegar notandi gerði greiningu á efninu og hætti af þeim sökum við að nota það. Stofnendur fyrirtækis sem flytur inn greiningarpróf vonast til að stjórnvöld hafi áhuga á samstarfi til að tryggja betur öryggi notenda.

Fyrirtækið Varlega sér um innflutning og sölu á prófum sem gerir notendum vímuefna kleift að athuga hvort efni eru hrein eða menguð með öðrum skaðlegum efnum.

Hugmyndin kviknaði fyrir um ári síðan þegar stofnendur fyrirtækisins unnu saman í Gistiskýlinu á Granda og sáu þörfina á slíkum prófum svo notendur gætu tryggt öryggi sitt.

Alls konar próf eru í boði en vinsælastir eru strimlar sem greina hvort fentanýl sé í vímuefni - sem er gríðar sterkur ópíóði.

„Bara míkrógrömm til eða frá af skammti af fentanýl getur ráðið úrslitum um hvort þú hljótir alvarlegan skaða af eða jafnvel látir lífið,“segir Kristinn Ingvarsson, stofnandi Varlega.

Fentanýl sé eitthvað sem þeir segja enga vilja taka óafvitandi. Prófin séu öryggisskref sem hafi vantað á Íslandi.

Nýlega keypti notandi vímuefna fentanýlpróf af fyrirtækinu og í ljós kom að efnið var mengað.

„Það voru sem sagt MDMA kristallar sem áttu að vera hreint MDMA en var mengað af fentanýl sem er bara mjög alvarlegt mál að sé raunveruleikinn á Íslandi.“

 Hætti viðkomandi þá við að taka þetta efni? „Já og skilaði því.“

Strákarnir muldu fyrir okkur eina töflu af Íbúfen og var örlitlu magni blandað við vatn í þeim tilgangi að skima fyrir Fentanýl í töflunni. Fentanýl strimlinum var síðan dýft ofan í vatnið og eftir tvær mínútur er niðurstaðan ljós.

„Þarna eru komnar tvær línur, þannig það er ekkert Fentanýl í þessari Íbúfen-pillu.“

Notendur þurfi sjálfir að sjá um eftirlit

Þeir segja að víða í löndunum í kringum okkur séu ríkisreknar rannsóknarstofur sem efnagreina ólögleg vímuefni keypt á svörtum markaði.

„Fyrst að við erum ekki með rannsóknarstofu á Íslandi sem sér um þetta þá er þetta svona skásta lausnin, að bjóða fólki að taka gæðaeftirlitið í eigin hendur.“

Þá vonast þeir til að stjórnvöld hafi áhuga á samstarfi til að tryggja betur öryggi notenda.

„Einn daginn mun það kannski gerast að fullu að ríkið taki þátt og þetta verði viðurkennt,“ segir Andri Einarsson, stofnandi Varlega.

Prófin má nálgast á heimasíðu fyrirtækisins. Í næstu viku fara fram svokallaðir neyðartónleikar í Eldborg í Hörpu sem er ætlað að vekja athygli á alvarlegri stöðu ópíóðaneyslu á Íslandi. 

„Við verðum þar með bás að kynna og selja okkar vöru,“ segja þeir og lofa stuði.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×