Innlent

Við­brögð starfs­manna hafi verið al­var­leg, ó­mark­viss og á­mælis­verð

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar

Viðbrögð starfsmanna sumarbúðanna í Reykjadal voru ómarkviss, ámælisverð og alvarleg þegar níu ára stúka með fötlun sagði þroskaskertan starfsmann hafa brotið á sér kynferðislega. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála þar sem úrbætur eru boðaðar.

Atvikið átti sér stað síðasta sumar á heimfarardegi stúlkunnar þegar hún segir starfsmann með þroskaskerðingu hafa brotið á sér kynferðislega. Foreldrar stúlkunnar stigu fram í viðtali við Heimildina þar sem þeir gagnrýndu viðbrögð starfsfólks og stjórnenda Reykjadals.

Sumarbúðirnar eru fyrir börn með fötlun og hefur lögregla haft málið til rannsóknar. Atvikið var tilkynnt til Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála sem safnaði gögnum og ræddi við foreldra stúlkunnar, lögreglu og stjórnendur Reykjadals í því skyni að leita skýringa á því hvers vegna atvikið gat átt sér stað og koma með tillögur að úrbótum til að koma í veg fyrir að slíkt endurtaki sig.

Ein án eftirlits

Forstjóri stofnunarinnar segir að á heimferðardegi stúlkunnar hafi verið álag í þjónustunni sem varð til þess að eftirlit með barninu var ekki tryggt.

„Og það skapast aðstæður þar sem utanaðkomandi starfsmaður, sem er í verndaðri vinnu, kemst inn í herbergi hjá barninu og lokar að þeim. Þau eru ein í stutta stund án eftirlits,“ segir Herdís Gunnarsdóttir, forstjóri Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála.

Ekki tafarlaust hringt á lögreglu

Stofnunin telur að alvarlegur misbrestur hafi verið á viðbrögðum starfsmanna og stjórnenda Reykjadals þegar upp komst um atvikið og að viðbrögð hafi verið ámælisverð og ómarkviss. Þetta kemur fram í niðurstöðum skýrslunnar þar sem jafnframt segir að verkferla skorti sem leiddi til þess að starfsfólk þekkti ekki til hvers ætti að grípa við þessar aðstæður. 

Vegna þessa hafi meintur gerandi verið færður af vettvangi í stað þess að hafa tafarlaust samband við lögreglu. Enn fremur hafi lök, með mögulegum lífsýnum, verið tekin af rúmum og sett í hrúgu áður en lögregla kom á staðinn.

Tillögur að úrbótum eru lagðar fram í skýrslunni.arnar halldórsson

Úrbóta þörf

Í skýrslunni eru lagðar fram tillögur að úrbótum sem Herdís segir að unnar hafi verið í samráði við stjórnendur Reykjadals.

„Af því að okkur þótti í raun vera það miklar brotalamir í starfseminni hvað þennan þátt varðar að við vildum fylgja því eftir sérstaklega.“

Lögð er áhersla á að börn séu aldrei án eftirlits og að mönnun sé í samræmi við álag.

„Og við höfum lagt líka mjög ríka áherslu á að fylgja því eftir að þau þjálfi starfsfólk í þessum verkferlum þannig fólk kunni réttu viðbrögðin ef eitthvað þessu líkt kemur upp aftur.“


Tengdar fréttir

Ámælisverð viðbrögð eftir að þroska­skertur maður braut á barni

Samkvæmt nýrri skýrslu Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála (GEV) voru fyrstu viðbrögð starfsmanna í Reykjadal ámælisverð þegar þroskaskertur starfsmaður er sakaður um að hafa brotið á níu ára stúlku. Viðeigandi verkferla hafi skort með öllu og fyrstu viðbrögð talin ómarkviss.

Rannsaka kynferðisbrot gegn barni í Reykjadal

Lögregla hefur til rannsóknar meint kynferðisbrot í sumarbúðunum í Reykjadal í ágúst 2022. Foreldrar barnsins lýsa brotunum í samtali við Heimildina og þeim áhrifum sem þau hafa haft á fjölskylduna. Málið allt hafi verið helvíti frá upphafi til enda.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×