Erlent

Wire-stjarnan lést úr ofskammti af eiturlyfjum

Kjartan Kjartansson skrifar
Michael K. Willams lést úr bráðaeitrun samkvæmt úrskurði réttarmeinafræðings í New York.
Michael K. Willams lést úr bráðaeitrun samkvæmt úrskurði réttarmeinafræðings í New York. AP/Chris Pizzello

Réttarmeinafræðingur í New York hefur úrskurðað að Michael K. Williams, leikarinn sem var helst þekktur fyrir hlutverk sitt í þáttaröðinni The Wire, hafi látist af því að hafa tekið óvart of stóran skammt af blöndu eiturlyfja og lyfja.

Frændi Williams kom að honum meðvitundarlausum á heimili leikarans í New York 6. september. Williams var úrskurðaður látinn skömmu síðar. Hann var 54 ára gamall.

Niðurstaða réttarmeinafræðingsins var að dauði Williams hefði verið slys. Hann hefði tekið inn of stóran skammt af blöndu kókaíns, heróíns og ópíóíðalyfinu fentanýl, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC.

Leikarinn hafði átt í fíknivanda í gegnum tíðina. Í viðtali árið 2012 sagðist hann hafa verið í neyslu þegar hann lék í „The Wire“ en að hann neytti ekki sterkari efna en kókaíns og maríjúana.

„Ég lék mér að eldinum. Það var bara tímaspursmál hvenær ég yrði gripinn og mál mín enduðu á forsíðu slúðurblaðs eða ég lenti í fangelsi, eða enn verra, að það yrði mér að bana,“ sagði Williams þá.

Williams hlaut mikið lof fyrir túlkun sína á persónu Omars Little, samkynhneigðs glæpamanns sem sérhæfði sig í að ræna fíkniefnasala, í „The Wire“ sem fjölluðu um samfélagið í Baltimore-borg út frá mörgum hliðum. Þættirnir voru meðal annars í uppáhaldi hjá Barack Obama, þáverandi Bandaríkjaforseta, og var Omar uppáhaldspersóna hans í þáttunum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×