Hinn 19 ára gamli Billy Gilmour, leikmaður Chelsea, verður frá í allt að fjóra mánuði eftir að hafa gengist undir aðgerð á hné en stjórinn Frank Lampard staðfesti þetta á blaðamannafundi sínum í dag.
Gilmour fékk þungt högg á hnéið snemma í leik Chelsea gegn Crystal Palace í vikunni en hélt áfram þrátt fyrir það og var ekki tekinn af velli fyrr en á 80. mínútu. Skotinn ungi hefur staðið sig vel með Lundúnaliðinu upp á síðkastið, spilað 11 leiki á tímabilinu. Þá verður Chelsea einnig án N'Golo Kanté næstu vikur vegna meiðsla.