Leggur landsliðsskóna á hilluna þar sem skrokkurinn þolir ekki álagið Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 3. desember 2021 18:05 Landsliðsskórnir eru farnir á hilluna. Vísir/Hulda Margrét Hornamaðurinn Arnór Gunnarsson hefur ákveðið að leggja landsliðsskóna á hilluna. Brjóskeyðing í hægri mjöðm spilar þar hvað stærstan þátt en Arnór segir skrokkinn ekki ráða við það álag sem fylgir því að spila sem atvinnu- og landsliðsmaður.
Þetta er mikið áfall fyrir íslenska landsliðið en Arnór var fyrirliði liðsins á HM í janúar á þessu ári. Arnór var valinn í 35 manna æfingahóp Guðmundar Guðmundssonar fyrir Evrópumótið sem fram fer í Ungverjalandi og Slóvakíu í janúar en sagði í viðtali við Akureyri.net að hann yrði ekki með á mótinu. Ástæðan er það álag sem atvinnu- og landsiðsmenn í handbolta eru að glíma við allt árið um kring. „Éger með brjóskeyðingu í hægri mjöðm og mjöðmin þolir ekki að ég leiki á tveggja eða þriðja daga fresti eins og landsliðið gerir á stórmóti eins og EM,“ sagði Arnór meðal annars í viðtali sínu. Orðinn 34 ára gamall Arnór hefur leikið sinn síðasta leik.Vísir/Vilhelm „Ég á eftir eitt og hálft ár af atvinnumannssamningi hér í Þýskalandi og verð að hugsa um að geta sinnt vinnunni sem best,“ segir Þórsarinn uppaldi sem leikur nú með Bergischer HC í þýsku úrvalsdeildinni. Samningur hans við félagið rennur út vorið 2023 og í kjölfarið mun hann verða hluti af þjálfarateymi félagsins. Hornamaðurinn knái hafði tilkynnt Guðmundi og HSÍ ákvörðun sína áður en sætið á EM var tryggt. Hann samþykkti þó að vera hluti af 35 manna hópi fyrir EM í janúar ef svo færi að „allir hinir þrír hornamennirnir meiddust eða heltust einhverra hluta vegna úr lestinni í miðju móti þá gæti ég hjálpað til,“ sagði Arnór en tók fram að hann gæfi að öðru leyti ekki kost á sér. Þakklæti efst í huga Í viðtali sínu við Akureyri.net segist Arnór vera stoltur að hafa leikið jafn marga landsleiki og raun ber vitni. Alls lék hann 120 A-landsleiki fyrir Íslands hönd. Hann var fyrst valinn í liðið af Guðmundi árið 2008 og lék þá nokkra leiki. Aron Kristjánsson tók Arnór svo með á HM á Spáni árið 2013. „Hápunkturinn með landsliðinu var EM í Danmörku árið eftir þar sem við lentum í 5. sæti.“ Þá lék hann einnig undir stjórn Geirs Sveinssonar og svo Guðmundar á ný. „Hápunkturinn hjá mér persónulega var á HM í Þýskalandi 2019. Árangur liðsins var reyndar ekkert frábær, við lentum í 14. sæti, en ég spilaði líklega best þá á landsliðsferlinum.“ „Það var, og er, mikill heiður að hafa spilað 120 landsleiki og fara á níu stórmót. Nú er þetta hins vegar orðið gott, ég verð að hugsa um heilsuna. Verð samt stuðningsmaður númer eitt í janúar. Ég fylgist vel með og verð klappstýra í sófanum heima,“ segir Arnór að endingu í viðtalinu sem finna má í heild sinni hér. Arnór er hættur með landsliðinu.Vísir/Vilhelm
Handbolti EM karla í handbolta 2022 Mest lesið „Eins og að spila við landslið Þýskalands nasismans“ Sport Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Enski boltinn Uppgjörið,viðtöl og myndir: Valur - Olympiacos 30-26 | Einum leik frá Evróputitli Handbolti Koddaslagur sjónvarpsstjörnu endaði með ósköpum Sport Reykti tvo pakka, át fjögur súkkulaðistykki og drakk tvær kókdósir á fyrsta hringnum Golf Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Enski boltinn De Zerbi hættir hjá Brighton Enski boltinn Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Fótbolti Efsti maður heimslistans tók upphitunina í fangaklefanum Golf Fury í ham og ýtti Usyk í vigtuninni Sport Fleiri fréttir Uppgjörið,viðtöl og myndir: Valur - Olympiacos 30-26 | Einum leik frá Evróputitli Ómar og Viggó röðuðu inn mörkum í sigrum Bjarki og félagar í úrslit eftir öruggan sigur „Umgjörðin er bara engu lík, gæsahúð að hlaupa inn á völlinn“ „Þurfum bara okkar besta leik í vetur“ Tíunda tapið í röð hjá Íslendingaliði Balingen Grín sem snerist mjög fljótt upp í alvöru Uppgjörið, viðtöl og myndir: Valur - Haukar 28-25 | Valskonur Íslandsmeistarar Íslendingarnir gerðu lítið þegar Skara féll úr leik Jafnt í Íslendingaslag í undanúrslitum Blaðamannafundur fyrir úrslitaleik Vals í Evrópubikarnum Úr húsvarðarstarfi í atvinnumennsku Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 27-29 | Mosfellingar í úrslit Teitur skoraði fimm og Flensburg heldur naumlega í við toppliðin „Okkur dauðlangar í meira“ Íslendingaliðið tryggði sér oddaleik Ólafur Gústafsson aftur heim í FH: „Gleðidagur fyrir okkur FH-inga“ Einar hættir með kvennalið Fram „Við erum alveg róleg“ Uppgjör: Haukar - Valur 22-30 | Meistararnir í 2-0 Algjör niðurlæging sveina Dags sem hafa aldrei tapað stærra Vonar að pabbi sinn komist ekki á ÓL Heimsmeistararnir stöðvaðir á síðustu stundu Uppgjörið: Eistland - Ísland 24-37 | Gengu örugglega frá Eistum og tryggðu farseðil á HM Frost í sókn en sveinar Dags mörðu sigur Segja Ísland hafa skorað fimmtíu án þess að svitna „Annað hvort gera þeir eins og Man. City eða eins og Liverpool“ Grafalvarleg staða: „Við verðum að breyta þessu strax“ Einar Bragi skrifaði undir tveggja ára samning í Svíþjóð Slóvakía skellti Póllandi óvænt í umspili HM Sjá meira