Hætti með Hopkins vegna Silence of the Lambs

Martha Stewart gat ekki skilið Anthony Hopkins frá Dr. Hannibal …
Martha Stewart gat ekki skilið Anthony Hopkins frá Dr. Hannibal Lecter í Silence of the Lambs. AFP

Sjónvarpsdrottningin Martha Stewart segir að hún hafi einfaldlega þurft að hætta með leikaranum Anthony Hopkins eftir að hann lék í spennumyndinni The Silence of the Lambs sem kom út árið 2001.

Stewart opnaði sig um sambandsslitin í viðtali við Ellen DeGeneres í spjallþætti þeirra síðar nefndu á dögunum. 

Ástæðuna fyrir sambandsslitunum sagði Stewart vera að hún gat ekki aðskilið Hopkins frá persónu hans í kvikmyndinni, mannætunni Dr. Hannibal Lecter. 

„Ég á stórt, ógnvænlegt hús í Maine og við það eitt er um 40 hektara skógur, og ég gat ekki ímyndað mér að fara með Anthony Hopkins þangað. Ég gat það ekki, eina sem ég hugsaði um var hann að borða, þú veist,“ sagði Stweart. 

„Og þú hættir með honum útaf því?“ spurði DeGeneres. „Já,“ svaraði Stewart og skellihló þegar áhorfendur klöppuðu.

Stewart tók ekki nákvæmlega fram hversu lengi þau Hopkins voru í sambandi, en hún var gift Andrew Stewart frá 1961 til 1990. 

Hopkins fór án efa á kostum sem Dr. Hannibal Lecter í kvikmyndinni en hann hlaut einmitt Óskarsverðlaun fyrir hlutverkið árið 1992. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú stendur allt og fellur með því að þú sért þolinmóður og berir þig með reisn. Reyndu að vinna í góðum skorpum og hvíla þig inn á milli - þannig kemurðu meiru í verk.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú stendur allt og fellur með því að þú sért þolinmóður og berir þig með reisn. Reyndu að vinna í góðum skorpum og hvíla þig inn á milli - þannig kemurðu meiru í verk.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir