Telja að innan við eitt prósent bólusettra sem smitist þurfi innlögn Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir og Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifa 27. júlí 2021 20:00 Alma Möller landlæknir segir að há smittíðni ráðist af bólusettum sem hafi smitast og smiti aðra. Vísir/Vilhelm Aldrei hafa fleiri greinst með kórónuveiruna innanlands og í gær eða 123 og voru 88 utan sóttkvíar. Langflestir hafa smitast af öðrum Íslendingum að sögn yfirlögregluþjóns. Ekki hefur tekist að rekja smit allra innanlands vegna gríðarlegrar fjölgunar síðustu daga.
Til samanburðar greindust flestir í þriðju bylgju veirunnar í september 2020, eða 99, og 106 manns þegar faraldurinn var í mestri siglingu í mars í fyrra. Sex sjúklingar eru á spítala vegna Covid. Nú eru 745 í einangrun þar af 74 börn. Og um 2.030 manns í sóttkví. Langflestir smitaðra hafa verið bólusettir og eru með Delta-afbrigði kórónuveirunnar en það hefur reynst skæðara en önnur afbrigði veirunnar. Það þykir þó sýnt að bólusetningin virkar. „Hlutfall óbólusettra meðal smitaðra er hærra en almennt gerist og gengur í samfélaginu sem sýnir að bólusetningin er að gera sitt gagn,“ segir Kamilla S. Jósefsdóttir, staðgengill sóttvarnalæknis, á upplýsingafundi Almannavarna í morgun. „Bólusettir geta fengið veiruna í sig og geta smitað aðra. Það er þess vegna sem við erum í þessari stöðu að vera með háa smittíðni,“ sagði Alma Möller, landlæknir, á upplýsingafundinum. Bakvarðasveitin verið virkjuð á ný í heilbrigðisþjónustu vegna mikils álags. Þá hefur verið í ljósi stöðu faraldursins að bjóða barnshafandi konum bólusetningu. Ekki hefur enn verið ákveðið hvort að herða þurfi aðgerðir en það veltur á hversu margir veikjast alvarlega. „Við vitum ekki hvaða hlutfall bólusettra sem veikjast munu þurfa spítalainnlögn. Við erum að áætla eins og er að það geti verið 0,5 til 1 prósent,“ sagði Alma. Ljóst er að einhverjir þurfa að fá þriðju bólusetninguna með bóluefni Pfizer. „Við höfum náttúrulega ekki safnað upp einhverjum lager af bóluefnum af því að við erum tiltölulega nýbúin að klára okkar stóra bólusetningarátak. Það eru áfram að tínast inn sendingar til landsins,“ sagði Kamilla í dag. Þá þurfi mögulega að bólusetja þá sem hafa fengið Jansen aftur. Yfirlögregluþjónn hjá almannavörnum segir að ekki hafi tekist að rekja öll smit. „Við erum með hópa þar sem við finnum ekki hvaðan upprunalega smitið kemur þó að í sumum tilfellum höfum við fundið það en í allt of mörgum tilfellum sjáum við það ekki,“ sagði Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá Almannavörnum, í samtali við fréttastofu í dag. Það heyrir til undantekninga að ferðamenn beri smit til landsins. „Það eru langmest Íslendingar að smita. Hitt er undantekningartilfelli,“ segir Víðir.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Bólusetningar Tengdar fréttir Voru ekki send strax í sóttkví þrátt fyrir mörg smit um borð Mistök leiddu til þess að hluti farþega um borð í flugi frá Krít var ekki sendur strax í sóttkví þegar fjöldi útskriftarnema frá Flensborgarskólanum greindist með Covid-19. 27. júlí 2021 18:00 „Við hljótum að halda niðri í okkur andanum“ Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, hvetur til þess að ráðist verði í mikla bólusetningarherferð hér á landi, í senn á meðal þeirra sem ekkert bóluefni hafa fengið, þeirra sem fengu Janssen og þeirra sem eldri eru og hafa þegar fengið tvær sprautur. Sömuleiðis eigi að hugleiða alvarlega að bólusetja börnin. 27. júlí 2021 16:40 123 smit greind í gær: Aldrei fleiri greinst á einum degi Nú liggur fyrir að fjöldi innanlandsmita í gær reyndist 123 talsins eftir að farið hefur verið yfir öll sýnin sem tekin voru í gær. Tvö smit greindust á landamærunum. 27. júlí 2021 16:26 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Innlent Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Innlent Leigan fyrir 100 fermetra hús í Grindavík 62.500 á mánuði Innlent „Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Innlent Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Manni bjargað úr sjónum í nótt eftir að bátur hans sökk Innlent Vilja sinna Íslendingum á Spáni betur Innlent Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Innlent Skikkar ríkislögreglustjóra til að rannsaka stjórn aðventista Innlent Fleiri fréttir Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Skikkar ríkislögreglustjóra til að rannsaka stjórn aðventista Sjóslys, Þórkatla og framtíð Play Kvikusöfnunin áfram stöðug Tóku niður íslenska svikasíðu með FBI Hafna tilboðum í áætlunarflug milli Reykjavíkur og Hornafjarðar Segir rangt að gjaldskylda á nagladekk sé í skoðun „Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Vilja sinna Íslendingum á Spáni betur Dregið úr hrinunni við Sýlingarfell Slapp við meiðsli á höfði og hrygg Leigan fyrir 100 fermetra hús í Grindavík 62.500 á mánuði Manni bjargað úr sjónum í nótt eftir að bátur hans sökk Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Sjö smáskjálftar við Sýlingarfell og Veðurstofan fylgist vel með „Þetta reddast“ voru fyrstu orðin sem hann lærði Lögreglan þurfi nauðsynlega auknar rannsóknarheimildir Mikill meirihluti hlynntur dánaraðstoð Fátt ef nokkuð stöðvar eldislaxinn Segir seinlæti First Water stórfurðulegt Hæstiréttur segir tíma í flugvél vera vinnutíma Vill ræða brottvísun til Nígeríu í nefnd: „Skelfileg ásýnd á þessu máli“ Gjörbreytt bílpróf en segja hvergi slegið af kröfum Fagna framfaraskrefi ráðherra en vilja afnema tilvísanakerfið Þórdís í sendinefnd til Georgíu vegna umdeildra laga Maðurinn fannst heill á húfi Hundaskítur fyrir utan kosningamiðstöð Baldurs vekur spurningar Sjá meira
Voru ekki send strax í sóttkví þrátt fyrir mörg smit um borð Mistök leiddu til þess að hluti farþega um borð í flugi frá Krít var ekki sendur strax í sóttkví þegar fjöldi útskriftarnema frá Flensborgarskólanum greindist með Covid-19. 27. júlí 2021 18:00
„Við hljótum að halda niðri í okkur andanum“ Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, hvetur til þess að ráðist verði í mikla bólusetningarherferð hér á landi, í senn á meðal þeirra sem ekkert bóluefni hafa fengið, þeirra sem fengu Janssen og þeirra sem eldri eru og hafa þegar fengið tvær sprautur. Sömuleiðis eigi að hugleiða alvarlega að bólusetja börnin. 27. júlí 2021 16:40
123 smit greind í gær: Aldrei fleiri greinst á einum degi Nú liggur fyrir að fjöldi innanlandsmita í gær reyndist 123 talsins eftir að farið hefur verið yfir öll sýnin sem tekin voru í gær. Tvö smit greindust á landamærunum. 27. júlí 2021 16:26