Frestað vegna veðurs

Stjarnan og ÍBV áttu að mætast í Garðabænum í dag.
Stjarnan og ÍBV áttu að mætast í Garðabænum í dag. Ljósmynd/Sigfús Gunnar

Leik Stjörnunnar og ÍBV sem fara átti fram í 2. umferð úrvalsdeildar karla í handknattleik í Garðabæ í dag klukkan 18 hefur verið frestað vegna veðurs.

Þetta kom fram í tilkynningu sem Handknattleikssamband Íslands sendi frá sér í dag.

„Unnið er að því að finna nýjan leiktíma,“ segir meðal annars í tilkynningu HSÍ.

Bæði lið eru með 2 stig eftir fyrstu umferðina en Stjanan vann eins marks sigur gegn Aftureldingu í Mosfellsbæ, 36:35, á meðan ÍBV lagði Víking að velli í Víkinni, 30:27.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert