Andri: Fram er besta hraðaupphlaupslið á landinu Árni Gísli Magnússon skrifar 25. mars 2023 18:29 Andri Snær Stefánsson, þjálfari KA/Þórs. Vísir/Hulda Margrét Andri Snær Stefánsson, þjálfari KA/Þór, var svekktur með tap gegn Fram á heimavelli í dag en fann þó jákvæða punkta leik liðsins. „
Svekktur vissulega því við unnum mikið í að koma til baka og vorum búin að hleypa þessu upp í hörkuleik í lokin, eitt mark, og þær voru í basli með okkur en við hefðum þurft að vera klókari síðustu einu og hálfa mínútuna og þá hefðum við getað klórað stig út úr þessu en auðvitað bara svekkjandi að tapa því að við lögðum mikið í þetta. Það sem við erum að klikka á er að við erum að fá á okkur gríðarlega mikið af mörkum í seinna tempóinu. Fram bara gerir þetta fáránlega vel, ég ætla gefa þeim það, en við engu að síður eigum að leysa þetta betur því við vorum oft á staðnum en það vantaði meiri klókindi í færslunum. Þórey er að fá alltof mikið af færum í seinna tempóinu þar sem við erum bara með lélegar færslur og við þurfum að laga það því mér finnst mjög líklegt að þessi lið mætist í úrslitkeppninni og það er bara áfram gakk.” KA/Þór er sem stendur í 4. sæti og Fram í því fimmta. Ein umferð er eftir af deildinni og þessi lið munu mætast í úrslitakeppninni ef þetta verður lokastaðan að deildarkeppninni lokinni. Hvernig ætlar Andri að nálgast það verkefni ef svo fer að liðin mætist í úrslitakeppninni? „Það kemur í ljós hvort við fáum þær en mér finnst það líklegt. Það er ekkert leyndarmál, það vita allir að Fram er besta hraðaupphlaupslið á landinu og við þurfum bara að halda áfram að skoða hvernig við lögum það því við fundum ekki lausnirnar í dag en engu að síður þá er ég ánægður með margt í leiknum hjá okkur. Mér fannst við vera taka ákveðið skref fram á við miðað við síðustu leiki en það er klárt að það eru áfram hlutir sem við erum að vinna í og við verðum að vera tilbúnar að bretta upp ermar og vinna þá vinnu.” Nathalia Soares og Rut Jónsdóttir skorar 17 af 25 mörkum liðins í dag. Þurfa ekki fleiri leikmenn að stíga upp sóknarlega? „Já klárlega. Við erum að tala um að það er plús á Rut allan leikinn og auðvitað er þetta oft svolítið hikst í kjölfarið að spila á móti svoleiðis vörn en engu að síður vorum við oft að spila okkur í ágætis stöður og ég var alveg ánægður með kerfin sem slík en við hefðum þurft að fara betur með færin og þurftum aðeins að finna betur hornin og línuna og þá hefðum við verið í betri málum.” Leikmenn og þjálfarar KA/Þór voru oft ósáttir með ákvarðanir dómara leiksins og létu óánægju sínu bersýnilega í ljós. Andri vildi þó ekkert tjá sig um það eftir leik. „Ég ætla segja no comment bara. Þeir eru að gera sitt besta og það er bara þannig”.
Olís-deild kvenna KA Þór Akureyri Fram Mest lesið Harma auglýsingar á gólfi og vilja banna þær eftir meiðsli Martins Körfubolti „Þið eruð lið fullt af feitabollum“ Enski boltinn Sjáðu dramatísku vítakastskeppnina í Eyjum Handbolti Drakk átta bjóra fyrir beina útsendingu Fótbolti Sló í myndavél og gæti fengið bann Körfubolti Aron í myndatöku í dag vegna meiðslanna Handbolti Vatnaskil hjá Red Bull og risafréttir fyrir Formúlu 1 Formúla 1 Segir aðeins þau hlutlausu hafa skemmt sér yfir fótbolta Ten Hag Enski boltinn Fengið nóg af því að vera ruslakista fyrir viðbjóð frá fólki Körfubolti Rangnick hafnar Bayern München Fótbolti Fleiri fréttir Kielce kærir leikinn gegn Magdeburg Aron í myndatöku í dag vegna meiðslanna Sjáðu dramatísku vítakastskeppnina í Eyjum Elín Jóna færir sig á milli félaga á Jótlandi Ómar Ingi skaut Evrópumeisturunum áfram eftir vítakeppni „Féllu dómar í dag sem voru að mér fannst ansi augljósir“ Óheflaði Eyjapeyinn Kári Kristján: „Töpum aldrei í vítakeppnum“ Uppgjörið: ÍBV - FH 39-38 | ÍBV tryggði sér oddaleik eftir vítakastkeppni Bjarki Már og félagar úr leik Haukakonur sópuðu Fram í sumarfrí og mæta Val í úrslitum Róbert fer frá Drammen og vill spila nærri Andreu Löwen í undanúrslit þrátt fyrir fína frammistöðu Orra Freys „Vantaði meiri breidd til þess að veita þeim harðari keppni“ „Náðum að stilla spennustigið betur í hálfleik“ Uppgjörið: Valur - ÍBV 30-22 | Valskonur mættu með sópinn gegn ÍBV Teitur Örn og félagar í undanúrslit þrátt fyrir tap Aldís Ásta frábær þegar Skara komst í undanúrslit Sigvaldi Björn markahæstur þegar Kolstad komst í úrslit Hrafnhildur Anna til Stjörnunnar Sveinn til Kolstad og vill ólmur læra af Gullerud Valsmenn spila fyrri leikinn á heimavelli Uppgjör,viðtöl og myndir : FH - ÍBV 28-29 | Elmar neitaði að fara í sumarfrí Valsmenn fyrstir í úrslit Evrópukeppni í 44 ár Ættingjarnir ábyggilega þreyttir á manni Sigrar hjá Íslendingaliðunum Óðinn Þór bikarmeistari í Sviss Fimm mörk Hauks þegar Kielce komst í úrslit Arnór stökk til: „Hugsaði að við hefðum engu að tapa“ „Það var ekkert annað í hausnum á mér“ Uppgjörið: Haukar 28-25 Fram | Aftur unnu Haukakonur eftir framlengingu Sjá meira