Allt bendi til að það verði erfiðara að klára þetta kjörtímabil en síðasta Fanndís Birna Logadóttir skrifar 3. júlí 2022 20:57 Ólafur Þ. Harðarson, prófessor í stjórnmálafræði. Stöð 2 Fylgi Vinstri grænna heldur áfram að minnka og mælist flokkurinn nú með sögulega lágt fylgi. Prófessor í stjórnmálafræði segir Vinstri græn gjalda fyrir stjórnarsamband við Sjálfstæðisflokkinn. Langt er á milli flokkanna þegar kemur að ýmsum málefnum, annað en í Covid.
Sjálfstæðisflokkurinn heldur sæti sínu sem stærsti flokkurinn samkvæmt nýjasta Þjóðarpúls Gallup með 22,8 prósent fylgi. Fylgi flokksins eykst milli mánaða en er þó minna en í kosningunum 2021. Framsóknarflokkurinn stendur nánast í stað sem annar stærsti flokkurinn en fylgi Vinstri grænna minnkar og er flokkurinn aðeins sá fimmti stærsti, með 7,2 prósent fylgi, alls 5,4 prósentustigum minna en í kosningunum 2021. Stuðningur við ríkisstjórnina og stjórnarflokkanna eykst aðeins milli mánaða samkvæmt Þjóðarpúlsnum en er þó minni en í kosningunum. Ólafur Þ. Harðarson, prófessor í stjórnmálafræði, segir rétt að líta aftur til að skýra þá stöðu sem nú er uppi. „Þessi óvenjulega ríkisstjórn sem að VG og Sjálfstæðisflokkurinn eru í var mynduð 2017. Margir héldu að þeir myndu tapa í kosningunum 2021 en það gerðist ekki. Stjórnin hélt velli og flokkarnir bættu sameiginlega við sig einu og hálfu prósenti sem er algjört einsdæmi eftir hrun og mjög óvenjulegt í íslenskri pólitík,“ segir Ólafur Þ. Harðarson, prófessor í stjórnmálafræði um þessar niðurstöður. Strax eftir kosningarnar 2021 hafi kjósendur VG þó farið að yfirgefa flokkinn og segir Ólafur líklegt að það sé vegna óánægju þeirra með stjórnarsamstarfið við Sjálfstæðisflokkinn. Sjálfstæðismenn töluvert lengra til hægri Breyting á fylgi stjórnarflokkanna má einnig að hluta rekja til þess að Covid var í uppsveiflu og ríkisstjórnin náði þá að snúa bökum saman gegn sameiginlegum óvini, þá skipti ekki máli hvort flokkarnir væru til hægri eða vinstri. „Núna koma aftur upp þessi hefðbundu hægri vinstri málefni, og við getum talið þau fjölmörg upp, þar sem kjósendur VG eru í aðalatriðum ósammála kjósendum Sjálfstæðisflokksins,“ segir Ólafur og bendir á að kjósendur Sjálfstæðisflokksins séu miklu lengra til hægri en allir aðrir flokkar. Fylgi flokkanna í maí og júní samkvæmt könnunum Gallup ásamt niðurstöðum kosninga 2021. Fljótlega eftir kosningarnar í fyrra hafi kjósendur VG leitað annað, líklegast vegna stjórnarsamstarfsins. „Ef við skoðum málefnin þá er það líka alveg klárt að viðhorf kjósenda Vinstri grænna, þau eru miklu nær viðhorfum vinstri flokkanna, og reyndar líka miðjuflokkanna, bæði Viðreisnar og Framsóknarflokksins, miklu nær viðhorfum kjósendum þessara flokka heldur en kjósenda Sjálfstæðisflokksins,“ segir Ólafur. Meðal stærstu málanna á undanförnum misserum má til að mynda nefna náttúruvernd í tengslum við rammasamning, brottvísanir og útlendingamál, og söluna á Íslandsbanka en í öllum þeim málum hefur VG hlotið töluverða gagnrýni. „Við sjáum á þessum málum öllum að Sjálfstæðisflokkurinn og Vinstri græn eru ósammála í mjög mörgum málum, þó þau reyni að ná einhverri sátt, og það er eðlilegt að það komi fram í pirringi hjá kjósendum beggja flokka,“ segir Ólafur. Staðan sem nú er uppi er að hans sögn flókin og gæti ríkisstjórnin átt erfitt það sem eftir lifir kjörtímabilsins, nái hún að sitja næstu þrjú ár. „Hún getur alveg haldið áfram út kjörtímabilið, þetta eru sjóaðir og sterkir leiðtogar fyrir öllum flokkum, og ef þeir kjósa að klára kjörtímabilið þá held ég að þeir geti það en það er allt sem bendir til að það verði erfiðara heldur en það var á síðasta kjörtímabili,“ segir Ólafur.
Alþingi Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Vinstri græn Sjálfstæðisflokkurinn Tengdar fréttir VG tapa enn fylgi og mælast með 7,2 prósent Vinstri græn mælast með 7,2 prósenta fylgi samkvæmt nýjasta þjóðarpúlsi Gallúp. Flokkurinn fékk 12,6 prósenta fylgi í síðustu alþingiskosningum en fylgið hefur minnkað jafnt og þétt síðan þá. 2. júlí 2022 22:35 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Var í símanum á 142 kílómetra hraða áður en hann lést Innlent Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi vegna ofsaaksturs undir áhrifum Innlent Læknirinn mátti læsa dætur sínar inni eftir allt saman Innlent Halla Tómasdóttir tekur stökk í nýrri könnun Prósents Innlent Bíllinn í happdrætti Ástþórs úr hans eigin smiðju Innlent Vaknaði og barnið var horfið Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Hvers konar „motherfucking“ óþverri væri þessi guð ef hann er til“ Innlent Maðurinn ríkisborgari Möltu Innlent Áhorf á úrslit Eurovision hríðféll Innlent Fleiri fréttir Þurfi gera úrbætur en ástandið verið íkt Lilja hefur áhyggjur af „nýlenskunni“ á RÚV Lýsa eftir Bandaríkjamanni Bíllinn í happdrætti Ástþórs úr hans eigin smiðju Göngin lokuð á miðvikudagskvöld Tekur til varna eftir stuðningsyfirlýsingu við Katrínu Maðurinn ríkisborgari Möltu Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi vegna ofsaaksturs undir áhrifum Áhorf á úrslit Eurovision hríðféll Sýnist stefna í kapphlaup tveggja en útilokar þó ekki vendingar Mótmæla þróun gervigreindar á Austurvelli Veit ekki hvort hann fái svar áður en spurningin verði úrelt Auknar líkur á gosi sem gæti hafist án fyrirvara Guðni heldur utan til að kveðja Margréti Þórhildi Telur ástandið á sauðfjárbúinu ekki eins slæmt og menn vilja vera láta Læknirinn mátti læsa dætur sínar inni eftir allt saman Hvar eru Illugi Jökuls, Hallgrímur Helga, Atli Þór Fanndal? „Hvers konar „motherfucking“ óþverri væri þessi guð ef hann er til“ Var í símanum á 142 kílómetra hraða áður en hann lést Vaknaði og barnið var horfið Mikið vesen á veitingastöðum borgarinnar Halla Tómasdóttir tekur stökk í nýrri könnun Prósents „Algjörlega forkastanlegt“ ef stjórnvöld svari ekki beiðninni Minnstu smáatriði úthugsuð og til þess gerð að skapa hughrif Samfélagið í áfalli vegna málsins Meint frelsissvipting, brottvísun og vöggustofubörn Vilja bæta íslenskukennslu fyrir innflytjendur Ragnar Freyr segist hreinsaður af sök Læknir segir að brottvísun muni ógna lífi sjúklings „Er réttur þinn eða mannréttindi að einhver annar deyði þig?“ Sjá meira
VG tapa enn fylgi og mælast með 7,2 prósent Vinstri græn mælast með 7,2 prósenta fylgi samkvæmt nýjasta þjóðarpúlsi Gallúp. Flokkurinn fékk 12,6 prósenta fylgi í síðustu alþingiskosningum en fylgið hefur minnkað jafnt og þétt síðan þá. 2. júlí 2022 22:35