Telja ekkert kerfi hannað til að ráða við flóðið sem skildi eftir sig mikið tjón Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 25. september 2022 20:10 Það gekk mikið á, á Akureyri í dag. Vísir/Tryggvi Ljóst er að mikið tjón hefur orðið á bæði húsum og búnaði á Oddeyrinni á Akureyri í dag, þar sem sjór gekk á landi í aftakaveðri. Norðurorka segir að ekkert veitukerfi sé hannað til að ráða við aðstæður sem þessar.
Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum í dag gekk mikill sjór á land á neðsta hluta Oddeyrinnar í dag. Samblanda af öflugri norðanátt og hárri sjávarstöðu gerði það að verkum að sjór átti greiða leið upp á land, eins og sjá má í meðfylgjandi myndskeiði. Svæðið þar sem flóðið varð er að mestu iðnaðarsvæði sem hýsir lítil og meðalstór fyrirtæki. Þegar fréttamaður kíkti á svæðið í dag hitti hann meðal Stefán Þór Guðmundsson í húsnæði Trésmiðjunnar Aspar við Gránufélagsgötu sem var á kafi. Um tuttugu sentimetra vatnslag lá á gólfi trésmiðjunnar. „Það var bara allt fljótandi og rúllandi út um allt. Þetta er held ég allt ónýtt meira og minna,“ sagði Stefán sem ræddi við blaðamann um klukkan eitt í dag. „Þetta er gríðarlegt tjón. Það eru allar vélar og töskur bara á kafi í vatni þegar ég náði í þær fyrir klukkutíma síðan,“ sagði Stefán. Það var allt á floti hjá Stefáni í dag.Vísir/Tryggvi Tjónið er mikið og víða. Á vef Akureyri.net er rætt við Helga Heiðar Jóhannsson, einn af eigandeum Blikk- og tækniþjónustunnar við Kaldbaksgötu. Í viðtalinu kemur fram að líklegt sé að tjónið þar hlaupi á milljónum, ekki tugmilljónum. Bílafloti fyrirtækisins sé mögulega ónýtur, auk þess sem að útlitið sé ekki gott með dýrar vélar. Þá er efni og annað inn í húsinu ótalið. Í viðtalinu kemur fram gagnrýni á viðbrögð Norðurorku, veitufyrirtæki bæjarins, og að viðbrögðin þar á bæ hafi ekki verið nógu snör. Ekkert kerfi hannað til að þola slíkt áhlaup Á vef Norðurorku er farið yfir stöðuna og þar vísað í að rafmagnslaust hafi verið á Akureyri í dag, líkt og stórum hluta landsins, vegna veðursins í dag. [„Þ]ar með varð straumlaust í dreifikerfi Norðurorku á Akureyri. Varaafl fyrirtækisins, þar með talið í fráveitukerfinu, kom inn og hélt þannig uppi lágmarks afköstum þann tíma sem rafmagnslaust var,“ segir á vef fyrirtækisins. Þar er einnig bent á að ekkert fráveitukerfi sé hannað til að þola viðlíka áhlaup og varð í dag. „Eins og áður segir þá starfaði fráveitukerfið á svæðinu eðlilega, miðað við venjubundinn rekstur en ljóst er að aðstæður sem þarna sköpuðust voru mjög óvenjulegar og sem betur fer mjög fátíðar. Ekkert fráveitukerfi er hannað til að ráða við aðstæður sem þessar þegar sjór gengur á land,“ segir enn fremur.
Akureyri Veður Óveður 25. september 2022 Tengdar fréttir Fyrsta haustlægðin skall með krafti á landið Björgunarsveitir hafa haft í nógu að snúast í dag við að bjarga ferðamönnum sem sátu fastir í bílum sínum í veðurofsanum. Rúður hafa brotnað í bílum og tré rifnað upp frá rótum. Það flæddi yfir götur og inn í hús á Akureyri og á stórum hluta landsins varð rafmagnslaust í dag. 25. september 2022 19:28 Íbúar í nærliggjandi götum þustu út til aðstoða Menn stóðu í ströngu á Oddeyrinni á Akureyri í dag vegna gríðarlegs vatnsflaums sem þar hafði flætt um götur og inn í hús á neðsta hluta Eyrinnar. Íbúar í nærliggjandi götum voru mættir á vettvang til að leggja opinberum starfsmönnum lið í baráttunni. 25. september 2022 18:02 Erfitt að skrúfa fyrir Atlantshafið Sjór gengur yfir götur á Eyrinni á Akureyri og flætt hefur inn í hús. Varðstjóri hjá slökkviliði segir að sjórinn nái upp að hnjám, og erfitt sé að eiga við Atlantshafið. 25. september 2022 13:49 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Innlent Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Innlent Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Innlent Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu klukkustundum Innlent Hjólastólinn í „tengdamömmuboxi“ á toppi bílsins Innlent Allt að fimm milljóna króna sekt á hvern fisk Innlent Rúður skotnar í spað í verslun innflytjenda Innlent Arnór Sighvatsson settur varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika Innlent Hver er Kári Hansen? Innlent Fleiri fréttir Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Arnór Sighvatsson settur varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum Hjólastólinn í „tengdamömmuboxi“ á toppi bílsins Gæti dregið til tíðinda á næstu klukkustundum Fallið frá ráðningarferli og Hermann fylgir Sigurði Inga Allt að fimm milljóna króna sekt á hvern fisk Gamla stjarnan þótti ekki henta nútímakröfum Ekkert eftirlit með veðmálasíðum, landris við Svartsengi og milljónasektir fyrir eldislax Facebook-hakkið hafi ekki áhrif á rannsóknina Hver er Kári Hansen? Nokkurra bíla árekstur á Miklubraut Hafa áhyggjur af fylgistapi flokksins Umferðartafir vegna elds í tengivagni Heimta hundrað milljóna króna tryggingu Engin merki um að kvikuhlaup sé hafið eða að hefjast Gæsluvarðhald beggja framlengt Rúður skotnar í spað í verslun innflytjenda Leggja til kröfu um sólarsellur á þaki nýbygginga Úrskurðaður í síbrotagæslu eftir ofsaaksturinn Svona var Pallborðið með Helgu Þóris og Eiríki Inga Birna sett sýslumaður á Vesturlandi Segir ekkert „dramatískt“ að frétta af eldgosinu Umdeildu frumvarpi um lagareldi breytt Matvælaráðherra segir fiskeldisfrumvarp mikla bragarbót fyrir umhverfið Quang Le hakkaður á Facebook Bein útsending: Kynna skýrslu um aðra orkukosti Aukin virkni í gosinu Sjá meira
Fyrsta haustlægðin skall með krafti á landið Björgunarsveitir hafa haft í nógu að snúast í dag við að bjarga ferðamönnum sem sátu fastir í bílum sínum í veðurofsanum. Rúður hafa brotnað í bílum og tré rifnað upp frá rótum. Það flæddi yfir götur og inn í hús á Akureyri og á stórum hluta landsins varð rafmagnslaust í dag. 25. september 2022 19:28
Íbúar í nærliggjandi götum þustu út til aðstoða Menn stóðu í ströngu á Oddeyrinni á Akureyri í dag vegna gríðarlegs vatnsflaums sem þar hafði flætt um götur og inn í hús á neðsta hluta Eyrinnar. Íbúar í nærliggjandi götum voru mættir á vettvang til að leggja opinberum starfsmönnum lið í baráttunni. 25. september 2022 18:02
Erfitt að skrúfa fyrir Atlantshafið Sjór gengur yfir götur á Eyrinni á Akureyri og flætt hefur inn í hús. Varðstjóri hjá slökkviliði segir að sjórinn nái upp að hnjám, og erfitt sé að eiga við Atlantshafið. 25. september 2022 13:49