Þrennt ber að varast; nýja gíga, hraunbrúnir og gasmengun Hólmfríður Gísladóttir skrifar 9. apríl 2021 11:40 Magnús Tumi við gosið í Geldingadölum. Vísir/Vilhelm Það er þrennt sem ber að varast á gosstöðvunum; nýja gíga, hrun og undanhlaup á við hraunbrúnir og gasmengun. Þetta kom fram á upplýsingafundi vegna eldgossins í Fagradalsfjalli rétt í þessu.
Meðal þeirra sem tóku til máls á fundinum var Magnús Tumi Guðmundsson jarðeðlisfræðingur en hann greindi frá því að mögulegar hættur hefðu verið ræddar á fundi Vísindaráðs í gær. Sagði hann að í fyrsta lagi bæri að hafa í huga að undir svæðinu væri langur kvikugangur sem hefði komist nærst yfirborðinu þar sem gosstöðvarnar væru nú. Hann sagði að segja mætti að glufur væru að koma í „lögnina“ og það gæti gerst á fleiri stöðum, bæði til norðurs og suðurs. Nýir gígar gætu því myndast; fyrst myndu koma upp gufa og gas og síðan kvika. Það væri skipulagsaðila að gæta að því að fólk væri ekki á ferðum þar sem það gæti gerst en einnig almenningur bæri einnig ábyrgð á því að fara að fyrirmælum. Annað væri hraunið. Íslendingar væru meðal fárra þjóða sem væru í þeirri forréttindastöðu að upplifa þessa fallegu sjón með berum augum. Hins vegar yrði fólk að vera á varðbergi og gæta sín, sérstaklega þegar um væri að ræða brattar hraunbrúnir. Eina banaslysið sem hefði orðið í gosi á Íslandi hefði átt sér stað þegar hraunbrún gaf sig í Heklugosi. Við ættum að forðast að láta það gerast aftur, sagði Magnús Tumi. Þá gætu undanhlaup orðið, þar sem kvika brýst skjótt undan hraunbrúninni og gæti farið mjög hratt. Þriðja var gasið. Mikið gas kæmi frá gosstöðvunum, um 70 til 80 prósent úr gýgunum en restin frá hrauninu. Ef vindur væri mikill blési hann því burtu en ef ekki væri mikilvægt að halda sig frá lægðum. Gasið gæti verið lyktarlaust og þannig liðið yfir fólk skyndilega og þá væri allt eins líklegt að sama gerðist hjá þeim sem reyndu að koma til aðstoðar. Það er mikilvægt vera áveðurs, sagði Magnús Tumi, með vindinn í bakið. Þegar voraði væri viðbúið að vind myndi lægja og viðbúið að hættulegar aðstæður kæmu oftar upp. Hvatti hann fólk til að halda sig uppi á hæðum; hraunið væri ekki síður fallegra þaðan.
Eldgos og jarðhræringar Eldgos í Fagradalsfjalli Veður Heilbrigðismál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Innlent Sat saklaus í unglingafangelsi í tvö ár Innlent Ráðherrar hafi verið ítrekað varaðir við gjöf Haraldar Innlent Íransforseti fórst í þyrluslysinu Erlent „Ég stóð bara með sóttvarnalækni“ Innlent Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Erfitt að ímynda sér meiri harðlínumann en Raisi Innlent Tveir látnir og fimm saknað eftir slys í Dóná Erlent Fimm stríðsþristar á leiðinni til landsins Innlent Fleiri fréttir Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna sé vanhæft til að takast á við aðstæðurnar Handtökuskipun á hendur forsætisráðherra og kjaradeila Séra Eva Björk ráðin biskupsritari Fimm stríðsþristar á leiðinni til landsins Samningur BÍ í höfn í Karphúsinu Ráðherrar hafi verið ítrekað varaðir við gjöf Haraldar Sungið og sungið á Sauðárkróki „Ég stóð bara með sóttvarnalækni“ Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Ósk um handtökuheimild og deilur um Erfðagreiningu Erfitt að ímynda sér meiri harðlínumann en Raisi Sat saklaus í unglingafangelsi í tvö ár Frambjóðendur geti nýtt sér skoðanakannanir Glæsilegt fuglasafn í veiðihúsinu við Hítará Varasamt að ferðast á sumardekkjum í kvöld Óttast um afdrif Íransforseta og ferðaveðrið í beinni Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður „Fólk er bara að bíða“ Tveir prestar og tveir djáknar vígðir í Skálholti Lægð yfir landinu og snjókoma fyrir norðan Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Segir Helgu fara með rangt mál Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Sjá meira
Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Erlent
Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Erlent