Justin LoFranco sér bara einn Íslending fyrir sér inn á topp fimm á heimsleikunum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. júlí 2021 15:45 Það eru gerðar miklar væntingar til Björgvins Karls Guðmundsson á þessum heimsleikum. Instagram/@bk_gudmundsson Justin LoFranco, hæstráðandi hjá Morning Chalk Up hefur sett fram sína spá um hverjir enda í fimm efstu sætunum í karla- og kvennaflokki á heimsleikunum í CrossFit sem hefjast í Madison í Bandaríkjunum á morgun.
Það er bara einn íslenskur keppandi sem endar meðal fimm hæstu á leikunum í ár ef marka má spá LoFranco sem hefur lifað og hrærst í CrossFit heiminum í langan tíma og ætti því að hafa mikið vit á þessu. Sá Íslendingur sem hefur að hans mati burði til að enda inn á topp fimm er Hvergerðingurinn Björgvin Karl Guðmundsson. View this post on Instagram A post shared by Morning Chalk Up (@morningchalkup) Það er mikil spenna í karlaflokki þar sem að heimsmeistari síðustu fimm ára, Matt Fraser, er hættur að keppa og því öruggt að nýr heimsmeistari verður krýndur á sunnudaginn. LoFranco spáir því að Björgvin Karl verði meðal fimm efstu ásamt Kanadamanninum Jeffrey Adler, Bandaríkjamanninum Scott Panchik, Rússanum Aleksandar Ilin og Serbanum Lazar Dukic. Við Íslendingar eigum þrjá keppendur í kvennaflokki eða þær Katrínu Tönju Davíðsdóttur, Anníe Mist Þórisdóttur og Þuríði Erlu Helgadóttur. LoFranco hefur ekki trú á neinni þeirra, ekki einu sinni Katrínu Tönju sem endaði í öðru sæti á heimsleikunum í fyrra. Það eru samt sem áður tveir Norðurlandabúar á lista hans eða hin norska Kristin Holte og hin sænska Emma Tall. Heimsmeistari síðustu fjögurra ára, Tia-Clair Toomey frá Ástralíu, er auðvitað á listanum hans og þar er líka hin ástralska Kara Saunders og hin bandaríska Bethany Shadburne. Shadburne greindist með kórónuveiruna í gær og verður því ekki með á leikunum. Fyrir utan Toomey þá lítur LoFranco alveg framhjá þeim sem voru í fimm kvenna ofurúrslitunum í fyrra en það voru auk Katrínar Tönju þær Kari Pearce, Haley Adams og Brooke Wells. Það er ekkert auðvelt að spá fyrir um lokaröðina í væntanlega mjög jafnri keppni. Það er fyrir öllu að lifa af niðurskurðinn á föstudag og laugardag og fá að keppa á lokadeginum. Takist það er allt mögulegt. Nú er það okkar kvenna að afsanna þessa spá. Allar eru þær miklir keppnismenn sem hafa náð frábærum árangri á heimsmeistaramótinu.
CrossFit Mest lesið Úr húsvarðarstarfi í atvinnumennsku Handbolti Slys á æfingu fyrir fjórum árum er enn að eyðileggja fyrir Söru Sport Rooney segir United losa sig við nær allan leikmannahópinn Enski boltinn Fabiana brýtur blað í sögunni áður en Jói Kalli tekur við Fótbolti Man. United sagði konunum ekki frá ákvörðuninni Enski boltinn Blaðamannafundur fyrir úrslitaleik Vals í Evrópubikarnum Handbolti Neitaði að svara spurningum um skilnaðinn Sport Einbeitir sér að því að komast í NBA frekar en að spila með pabba sínum Körfubolti Þriðji markahæsti landsliðsmaðurinn leggur skóna á hilluna Fótbolti Mætti á þing FIFA úr fangaklefanum Fótbolti Fleiri fréttir UEFA setur pressu á City Football Group Fyrirliði 21 árs landsliðs Svía skiptir um landslið Tímabilið búið hjá Ederson og City treystir á Ortega í síðustu tveimur leikjunum Margrét Lára: Mér finnst hún hafa verið stórkostleg Chelsea sló spjaldametið í deildinni Besti Belginn í Subway deildinni samdi við Hauka Hjólaði frá Mongólíu og grét af gleði þegar hann hitti hetjuna Þriðji markahæsti landsliðsmaðurinn leggur skóna á hilluna Hafa aðeins meiri trú á Keflavík en Njarðvík í úrslitaeinvíginu Umboðsmaður Olise dæmdur í sex mánaða bann „Ef hann á slæmt mót þá endar hann samt í topp tíu“ Blaðamannafundur fyrir úrslitaleik Vals í Evrópubikarnum Rashford reiður og reifst við áhorfanda fyrir leik Fabiana brýtur blað í sögunni áður en Jói Kalli tekur við Man. United sagði konunum ekki frá ákvörðuninni Allegri afklæddist á hliðarlínunni „Sá að þeim leið aldrei illa“ Mætti á þing FIFA úr fangaklefanum Feðgar þjálfa Breiðablik: „Gott fyrir okkur báða að vera saman“ Neitaði að svara spurningum um skilnaðinn Slys á æfingu fyrir fjórum árum er enn að eyðileggja fyrir Söru Doncic rankaði við sér og Dallas einum sigri frá úrslitum Vestursins Úr húsvarðarstarfi í atvinnumennsku Rooney segir United losa sig við nær allan leikmannahópinn Einbeitir sér að því að komast í NBA frekar en að spila með pabba sínum Dagskráin í dag: Úrslitin hefjast í Subway-deild kvenna Tiger trúir enn á sjálfan sig: „Líður enn eins og ég geti unnið golfmót“ Gerir sér grein fyrir erfiðu tímabili: „Þið eruð bestu stuðningsmenn í heimi“ Birna með slitið krossband og missir af úrslitaeinvíginu „Núna ætla ég að klára þetta þar sem þetta er síðasta tímabilið mitt hérna“ Sjá meira