Breiðablik örugglega í undanúrslitin

Agla María Albertsdóttir tvöfaldar forystu Blika í dag.
Agla María Albertsdóttir tvöfaldar forystu Blika í dag. mbl.is/Árni Sæberg

Breiðablik tryggði sér sæti í undanúrslitum deildabikars kvenna í knattspyrnu, Lengjubikarsins, með þægilegum sigri gegn ÍBV á Kópavogsvelli í dag.

Leiknum lauk með 2:0-sigri Breiðabliks en Hafrún Rakel Halldórsdóttir kom Breiðabliki yfir með marki strax á 13. mínútu með frábæru skoti af vítateigslínunni sem söng í fjærhorninu.

Agla María Albertsdóttir bætti svo við öðru marki Breiðabliks með marki úr vítaspyrnu á 21. mínútu eftir að Camila Pescatore, leikmaður ÍBV, hafði handleikið knöttinn innan teigs.

Breiðablik fer með sigrinum upp í efsta sæti 2. riðils og upp fyrir Stjörnuna en bæði lið eru með tíu stig eftir fjóra leiki.

ÍBV er með sex stig í þriðja sæti riðilsins, eftir fjóra spilaða leiki, og því er ljóst að Eyjakonur geta ekki náð Breiðabliki og Stjörnunni að stigum.

Breiðablik og Stjarnan eru því komin áfram í undanúrslit keppninnar ásamt Þrótti úr Reykjavík en Þór/KA og Valur berjast um síðasta sætið í undanúrslitunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert