Þurfa að aflétta króatísku bölvuninni Sindri Sverrisson skrifar 24. janúar 2022 10:00 Domagoj Duvnjak hefur oft reynst Íslandi erfiður í gegnum árin en er ekki með Króötum á EM vegna bakmeiðsla. EPA-EFE/DANIEL KOPATSCH Ef að Ísland ætlar að taka stórt skref í átt að undanúrslitum á EM í handbolta í dag þarf liðið að gera nokkuð sem Ísland hefur aldrei gert á stórmóti – vinna Króatíu. Ísland og Króatía hafa sjö sinnum mæst á stórmóti í gegnum tíðina og aldrei hefur Ísland fagnað sigri. Króatar hafa unnið sex leiki og liðin einu sinni gert jafntefli, á Evrópumótinu í Austurríki 2010 þegar Ísland náði sínum besta árangri á EM með því að vinna brons. Leikir Íslands við Króatíu á stórmótum: HM 2019: Ísland 27 – 31 Króatía EM 2018: Ísland 22 – 29 Króatía EM 2016: Ísland 28 – 37 Króatía EM 2012: Ísland 29 – 31 Króatía EM 2010: Ísland 26 – 26 Króatía EM 2006: Ísland 28 – 29 Króatía ÓL 2004: Ísland 30 – 34 Króatía Gengi Króatíu, sem vann silfur á EM fyrir tveimur árum, það sem af er EM í ár gefur hins vegar ákveðna von um að bölvun íslenska liðsins verði aflétt í dag. Þeir hafa lent í kórónuveirusmitum, þó ekki eins illa og Íslendingar, og verið án sinnar stærstu stjörnu, Domagoj Duvnjak, vegna bakmeiðsla. Króatar eru án stiga í milliriðli 1, eftir óvænt 32-26 tap gegn Svartfjallalandi og svo frekar naumt tap gegn Danmörku á laugardaginn, 27-25. Í byrjun móts töpuðu þeir 27-22 gegn Frökkum. Króatar nánast fastagestir í undanúrslitum Króatar hafa lengi verið í allra fremstu röð í handbolta þó að gullverðlaunin hafi skort síðustu sautján ár, en þeir urðu Ólympíumeistarar 1996 og 2004, og heimsmeistarar 2003. Þeir unnu silfurverðlaun á síðasta Evrópumóti, fyrir tveimur árum, eftir 22-20 tap gegn Spáni í úrslitaleik. Leikstjórnandinn töfrandi Domagoj Duvnjak var valinn maður mótsins en missir af mótinu í ár vegna fyrrnefndra bakmeiðsla. Íslendingar þurfa að reyna að hafa hemil á hinum magnaða Luka Cindric, sem var liðsfélagi Arons Pálmarssonar hjá Barcelona, sem stýrir sóknarleik Króata.Getty/Sven Hoppe Versta niðurstaða Króatíu á síðustu níu Evrópumótum, eða frá og með EM 2004, er 5. sæti á heimavelli árið 2018. Á átta af síðustu níu Evrópumótum hefur Króatía sem sagt komist í undanúrslit, og þrisvar í úrslitaleikinn þar sem liðið hefur þó alltaf tapað. Alls hefur Króatía unnið þrenn silfurverðlaun og þrenn bronsverðlaun í sögu EM. Nú þegar er hins vegar ljóst að Króatía kemst ekki í undanúrslit á EM í ár, og aðeins ef allt gengur að óskum þess getur liðið í besta falli leikið um 5. sæti á mótinu. EM karla í handbolta 2022 Mest lesið Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Enski boltinn Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Enski boltinn Koddaslagur sjónvarpsstjörnu endaði með ósköpum Sport Reykti tvo pakka, át fjögur súkkulaðistykki og drakk tvær kókdósir á fyrsta hringnum Golf Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Fótbolti Efsti maður heimslistans tók upphitunina í fangaklefanum Golf Schauffele heldur forystunni en Tiger langt frá niðurskurðinum Golf Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Fótbolti Snorri Barón um Söru: „Ógeð sem enginn á að þurfa að ganga í gegnum“ Sport „Umgjörðin er bara engu lík, gæsahúð að hlaupa inn á völlinn“ Handbolti Fleiri fréttir „Umgjörðin er bara engu lík, gæsahúð að hlaupa inn á völlinn“ „Þurfum bara okkar besta leik í vetur“ Tíunda tapið í röð hjá Íslendingaliði Balingen Grín sem snerist mjög fljótt upp í alvöru Uppgjörið, viðtöl og myndir: Valur - Haukar 28-25 | Valskonur Íslandsmeistarar Íslendingarnir gerðu lítið þegar Skara féll úr leik Jafnt í Íslendingaslag í undanúrslitum Blaðamannafundur fyrir úrslitaleik Vals í Evrópubikarnum Úr húsvarðarstarfi í atvinnumennsku Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 27-29 | Mosfellingar í úrslit Teitur skoraði fimm og Flensburg heldur naumlega í við toppliðin „Okkur dauðlangar í meira“ Íslendingaliðið tryggði sér oddaleik Ólafur Gústafsson aftur heim í FH: „Gleðidagur fyrir okkur FH-inga“ Einar hættir með kvennalið Fram „Við erum alveg róleg“ Uppgjör: Haukar - Valur 22-30 | Meistararnir í 2-0 Algjör niðurlæging sveina Dags sem hafa aldrei tapað stærra Vonar að pabbi sinn komist ekki á ÓL Heimsmeistararnir stöðvaðir á síðustu stundu Uppgjörið: Eistland - Ísland 24-37 | Gengu örugglega frá Eistum og tryggðu farseðil á HM Frost í sókn en sveinar Dags mörðu sigur Segja Ísland hafa skorað fimmtíu án þess að svitna „Annað hvort gera þeir eins og Man. City eða eins og Liverpool“ Grafalvarleg staða: „Við verðum að breyta þessu strax“ Einar Bragi skrifaði undir tveggja ára samning í Svíþjóð Slóvakía skellti Póllandi óvænt í umspili HM „Við vorum skugginn af sjálfum okkur“ Uppgjörið og viðtöl: Valur - Haukar 28-27 | Íslandsmeistarnir sluppu með skrekkinn Gagnrýnir lítinn stuðning við afreksíþróttafólk: „Upphæðin ein og sér er grín“ Sjá meira
Ísland og Króatía hafa sjö sinnum mæst á stórmóti í gegnum tíðina og aldrei hefur Ísland fagnað sigri. Króatar hafa unnið sex leiki og liðin einu sinni gert jafntefli, á Evrópumótinu í Austurríki 2010 þegar Ísland náði sínum besta árangri á EM með því að vinna brons. Leikir Íslands við Króatíu á stórmótum: HM 2019: Ísland 27 – 31 Króatía EM 2018: Ísland 22 – 29 Króatía EM 2016: Ísland 28 – 37 Króatía EM 2012: Ísland 29 – 31 Króatía EM 2010: Ísland 26 – 26 Króatía EM 2006: Ísland 28 – 29 Króatía ÓL 2004: Ísland 30 – 34 Króatía Gengi Króatíu, sem vann silfur á EM fyrir tveimur árum, það sem af er EM í ár gefur hins vegar ákveðna von um að bölvun íslenska liðsins verði aflétt í dag. Þeir hafa lent í kórónuveirusmitum, þó ekki eins illa og Íslendingar, og verið án sinnar stærstu stjörnu, Domagoj Duvnjak, vegna bakmeiðsla. Króatar eru án stiga í milliriðli 1, eftir óvænt 32-26 tap gegn Svartfjallalandi og svo frekar naumt tap gegn Danmörku á laugardaginn, 27-25. Í byrjun móts töpuðu þeir 27-22 gegn Frökkum. Króatar nánast fastagestir í undanúrslitum Króatar hafa lengi verið í allra fremstu röð í handbolta þó að gullverðlaunin hafi skort síðustu sautján ár, en þeir urðu Ólympíumeistarar 1996 og 2004, og heimsmeistarar 2003. Þeir unnu silfurverðlaun á síðasta Evrópumóti, fyrir tveimur árum, eftir 22-20 tap gegn Spáni í úrslitaleik. Leikstjórnandinn töfrandi Domagoj Duvnjak var valinn maður mótsins en missir af mótinu í ár vegna fyrrnefndra bakmeiðsla. Íslendingar þurfa að reyna að hafa hemil á hinum magnaða Luka Cindric, sem var liðsfélagi Arons Pálmarssonar hjá Barcelona, sem stýrir sóknarleik Króata.Getty/Sven Hoppe Versta niðurstaða Króatíu á síðustu níu Evrópumótum, eða frá og með EM 2004, er 5. sæti á heimavelli árið 2018. Á átta af síðustu níu Evrópumótum hefur Króatía sem sagt komist í undanúrslit, og þrisvar í úrslitaleikinn þar sem liðið hefur þó alltaf tapað. Alls hefur Króatía unnið þrenn silfurverðlaun og þrenn bronsverðlaun í sögu EM. Nú þegar er hins vegar ljóst að Króatía kemst ekki í undanúrslit á EM í ár, og aðeins ef allt gengur að óskum þess getur liðið í besta falli leikið um 5. sæti á mótinu.
Leikir Íslands við Króatíu á stórmótum: HM 2019: Ísland 27 – 31 Króatía EM 2018: Ísland 22 – 29 Króatía EM 2016: Ísland 28 – 37 Króatía EM 2012: Ísland 29 – 31 Króatía EM 2010: Ísland 26 – 26 Króatía EM 2006: Ísland 28 – 29 Króatía ÓL 2004: Ísland 30 – 34 Króatía
EM karla í handbolta 2022 Mest lesið Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Enski boltinn Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Enski boltinn Koddaslagur sjónvarpsstjörnu endaði með ósköpum Sport Reykti tvo pakka, át fjögur súkkulaðistykki og drakk tvær kókdósir á fyrsta hringnum Golf Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Fótbolti Efsti maður heimslistans tók upphitunina í fangaklefanum Golf Schauffele heldur forystunni en Tiger langt frá niðurskurðinum Golf Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Fótbolti Snorri Barón um Söru: „Ógeð sem enginn á að þurfa að ganga í gegnum“ Sport „Umgjörðin er bara engu lík, gæsahúð að hlaupa inn á völlinn“ Handbolti Fleiri fréttir „Umgjörðin er bara engu lík, gæsahúð að hlaupa inn á völlinn“ „Þurfum bara okkar besta leik í vetur“ Tíunda tapið í röð hjá Íslendingaliði Balingen Grín sem snerist mjög fljótt upp í alvöru Uppgjörið, viðtöl og myndir: Valur - Haukar 28-25 | Valskonur Íslandsmeistarar Íslendingarnir gerðu lítið þegar Skara féll úr leik Jafnt í Íslendingaslag í undanúrslitum Blaðamannafundur fyrir úrslitaleik Vals í Evrópubikarnum Úr húsvarðarstarfi í atvinnumennsku Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 27-29 | Mosfellingar í úrslit Teitur skoraði fimm og Flensburg heldur naumlega í við toppliðin „Okkur dauðlangar í meira“ Íslendingaliðið tryggði sér oddaleik Ólafur Gústafsson aftur heim í FH: „Gleðidagur fyrir okkur FH-inga“ Einar hættir með kvennalið Fram „Við erum alveg róleg“ Uppgjör: Haukar - Valur 22-30 | Meistararnir í 2-0 Algjör niðurlæging sveina Dags sem hafa aldrei tapað stærra Vonar að pabbi sinn komist ekki á ÓL Heimsmeistararnir stöðvaðir á síðustu stundu Uppgjörið: Eistland - Ísland 24-37 | Gengu örugglega frá Eistum og tryggðu farseðil á HM Frost í sókn en sveinar Dags mörðu sigur Segja Ísland hafa skorað fimmtíu án þess að svitna „Annað hvort gera þeir eins og Man. City eða eins og Liverpool“ Grafalvarleg staða: „Við verðum að breyta þessu strax“ Einar Bragi skrifaði undir tveggja ára samning í Svíþjóð Slóvakía skellti Póllandi óvænt í umspili HM „Við vorum skugginn af sjálfum okkur“ Uppgjörið og viðtöl: Valur - Haukar 28-27 | Íslandsmeistarnir sluppu með skrekkinn Gagnrýnir lítinn stuðning við afreksíþróttafólk: „Upphæðin ein og sér er grín“ Sjá meira