Kalt í veðri næstu daga

Í dag verða norðaustan 5-13 m/s en 13-18 m/s á Suðausturlandi. Búast má við stöku éli á norðan- og austanverðu landinu en bjart verður vestan og sunnan til.

Í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands segir að frost verði um allt land 1 til 8 stig, en hiti verður rétt yfir frostmarki sunnanlands.

Á morgun verður svipað veður en aðeins hvassara.

„Í vindstrengjum á Suðausturlandi má búist við snörpum vindhviðum, einkum í Öræfum og gæti orðið varasamt fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind,“ ritar veðurfræðingurinn.

Fram til þriðjudags breytist veðrið afar lítið. Þá dregur úr vindi og líkur eru á dálitlum éljum um allt land.

Áfram verður frekar kalt í veðri.

Veðurvefur mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert