Varð fyrir sérstökum vonbrigðum með forsætisráðherra Kristín Ólafsdóttir og Árni Sæberg skrifa 26. nóvember 2021 23:28 Rósa Björk Brynjólfsdóttir er ein þeirra sem misstu sæti sitt eftir endurtalningu. Stöð 2/Egill Þrír frambjóðendur sem kærðu framkvæmd alþingiskosninganna segja það mikil vonbrigði að alþingi hafi staðfest kjörbréf allra þingmanna í gær. Það sé þó ákveðinn léttir að málinu sé lokið í bili. Einn kærenda segist sérstaklega vonsvikinn með afstöðu forsætisráðherra.
Alþingi staðfesti í gærkvöldi kjörbréf allra þeirra 63 þingmanna sem Landskjörstjórn gaf út að lokinni endurtalningu atkvæða í Norðvesturkjördæmi. Alþingi samþykkti tillögu meirihluta kjörbréfanefndar þess efnis og verður því ekki boðað til uppkosningar, líkt og var til að mynda vilji þriggja frambjóðenda í kosningunum sem kærðu framkvæmdina í haust. Tvö þeirra misstu sæti sitt eftir endurtalningu í Norðvesturkjördæmi en málið hefur hvílt þungt á þeim síðustu vikur. „Vonbrigðin eru kannski búin að vera að byggjast upp til lengri tíma þannig þau voru ekkert sérstaklega sár. Þetta hefur verið fyrirséð og viðbúið og farið að láta í skína. Ég held að þetta hafi verið niðurstaðan sem var lagt upp með í upphafi,“ segir Guðmundur Gunnarsson, frambjóðandi Viðreisnar í Norðvesturkjördæmi. „Það voru vonbrigði að sjá að forsætisráðherra staðfesti endurtalninguna sem er ólögmæt. Það voru sérstök vonbrigði en ég var líka gríðarlega ánægð með að sjá að sextán þingmenn stóðu með uppkosningu,“ segir Rósa Björk Brynjólfsdóttir, frambjóðandi Samfylkingar. Hún segir ferlið allt hafa verið eins og lestarslys í hægri endursýningu. Traustið sé rofið Guðmundur hefur þegar boðað að hann hyggist fara með málið til Mannréttindadómstóls Evrópu en kærufrestur er sex mánuðir. „Ég held að það sé engum blöðum um það að fletta að etta muni hafa áhrif á það hvernig við umgöngumst, hvernig við framkvæmum og hvernig við lítum á kosningar. Ég meina traustið er rofið. Við horfum allt öðruvísi á þessa framkvæmd og ksoningar heldur en við gerðum áður,“ segir hann. „Ólögmæta þingið“ Frambjóðandi Pírata segir það vel geta verið að hann muni einnig kæra til mannréttindadómstólsins. Hann telur allar líkur á að málið vinnist þar, með slæmum afleiðingum fyrir orðspor Íslendinga. „Ég er ákaflega hryggur yfir þessari niðurstöðu. Ég tel að almenningur beri nú minna traust til stjórnvalda en áður var,“ segir Magnús Davíð Norðdahl, lögmaður og frambjóðandi Pírata. „Þetta er 152. löggjafarþing okkar Íslendinga og ég tel að þessa þings verði minnst með þeim hætti að þetta verði ólögmæta þingið,“ bætir hann við að lokum.
Alþingiskosningar 2021 Endurtalning í Norðvesturkjördæmi Alþingi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Leiðin í vinnuna smám saman þrefaldast: „Þetta er eins og í einhverri bíómynd“ Innlent Fannst hennar tími vera kominn Innlent Miðflokkurinn staðfestir sig sem þriðji stærsti flokkurinn Innlent Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Erlent Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Erlent Öldungadeildin samþykkti 95 milljarða dala aðstoð við Úkraínu, Ísrael og Taívan Erlent Ofbeldisbrotum fjölgar á sama tíma og lögreglumönnum fækkar Innlent Landeigendur höfða mál gegn ríkinu vegna Hvammsvirkjunar Innlent Össur segir Jóni Gnarr að „hætta að væla“ Innlent Ákærð fyrir að hafa orðið syni sínum að bana Innlent Fleiri fréttir Ofbeldisbrotum fjölgar á sama tíma og lögreglumönnum fækkar Landeigendur höfða mál gegn ríkinu vegna Hvammsvirkjunar Fannst hennar tími vera kominn Sakar ríkisstjórnina um að ætla að afhenda fiskeldinu firðina til eilífðar Miðflokkurinn staðfestir sig sem þriðji stærsti flokkurinn Leiðin í vinnuna smám saman þrefaldast: „Þetta er eins og í einhverri bíómynd“ Ákærð fyrir að hafa orðið syni sínum að bana Stórfjölgun ofbeldisbrota, firðir í hættu og hönnunarstuldur „Við næðum eflaust meiri árangri ef borgarstjóri myndi væla minna“ Össur segir Jóni Gnarr að „hætta að væla“ Staðfesta gæsluvarðhald tveggja sakborninga Óbreytt frumvarp þýði útrýmingu villta laxins Fluttur á sjúkrahús eftir að ekið var á Útlendingastofnun Húsfélagið má ekki klippa á tengil rafvirkjameistara Sjálfstæðisflokkurinn kvelji barnafólk með vettlingagjörningi Enn kröftugt gos úr einum gíg Börn sofi ekki úti í gosmóðunni suðvestanlands Velkomin í Verbúðina II Halla Hrund fjórfaldar fylgi sitt á milli kannanna Ákærðir fyrir þaulskipulagða skotárás gegn feðginum á aðfangadag Sextán hundruð vettlingar fyrir börnin sem bíða Verkefnið skapi níutíu störf og meðallaunin verði um 1,4 milljón á mánuði Aðstoðarrektor í Bandaríkjunum verður rektor Háskólans á Akureyri Bjarni vill taka daginn snemma Svona var Pallborðið með Höllu, Katrínu og Steinunni Ólínu Freista þess að halda veitingamanninum bak við lás og slá Furðar sig á ávirðingum vegna kaupa á vínarbrauði Tvö manndráp á skömmum tíma „Það er ástæða fyrir því að farið er í að rannsaka þetta andlát“ Vill geta vísað flóttafólki úr landi innan tveggja sólarhringa Sjá meira