„Við getum verið best í heimi“ Stefán Árni Pálsson skrifar 21. janúar 2023 19:00 Vésteinn, Ásmundur Einar og Lárus Blöndal á blaðamannafundi ÍSÍ og Menntamálaráðuneytinu í Gautaborg í dag. Vísir/vilhelm Tímamótasamningur var undirritaður í Gautaborg í dag en hann er ætlaður til að styðja við bakið á afreksíþróttafólki á Íslandi. Vésteinn Hafteinsson mun flytja heim til Íslands og leiða verkefnið. „
Það leggst rosalega vel í mig að flytja heim. Ég er Íslendingur og hjartað hefur alltaf verið þar,“ segir Vésteinn Hafsteinsson á blaðamannafundi Mennta- og barnamálaráðuneytið og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands þegar skrifað var undir samstarfssamning um stefnumörkun og uppbyggingu afreksíþróttastarfs á Íslandi. Þetta kom fram á blaðamannafundi ÍSÍ og Mennta- og baranamálaráðherra í Gautaborg í dag. Vésteinn Hafsteinsson mun verða ráðinn Afreksstjóri ÍSÍ og mun samhliða því leiða nýjan starfshóp Ásmundar Einars Daðasonar, mennta- og barnamálaráðherra, um stöðu og réttindi afreksíþróttafólks. Markmiðið er að umgjörð afreksíþróttastarfs verði eins og best verður á kosið þannig að afreksíþróttafólk okkar standi jafnfætis keppinautum sínum á alþjóðavísu. „Mitt verkefni verður að gera alla umgjörð og réttindi afreksfólks betra á Íslandi. Það er mjög mikilvægt starf sem verður unnið í samráði við önnur ráðuneyti líka, bara í sambandi við þetta venjulega líf, að geta staðið í þessu. Um er að ræða tryggingarkerfið, lífeyrissjóðir og allt annað, að það komist á laggirnir og það verði gott kerfi í kringum það,“ segir Vésteinn og heldur áfram. „Svo er það þessi greiningarvinna, að greina íþróttafólkið félagslegu, andlegu, líkamlegu og tæknilegu hliðinni og það er svona uppáhalds starfið mitt. Þegar ég hætti þessu eftir fimm til tíu ár þá vona ég að það verði miklu fleiri afreksíþróttafólk á Ísland og fleiri sem fara á Ólympíuleika, Evrópumót og heimsmeistaramót.“ Hann segir að margt gott hafi verið gert í gegnum tíðina á Íslandi en það megi bæta sumt. „Ef við erum með mjög öflugt teymi hjá ÍSÍ sem vinnur vel með sérsamböndunum þá er ég alveg með á hreinu að við getum verið best í heimi í þessari vinnu.“ Hér að neðan má sjá viðtalið í heild sinni við Véstein. Klippa: Vésteinn á leiðinni heim „Við erum að fara auka gæðin í afreksstarfinu hjá okkur og það er bara mjög mikils virði að það takist,“ segir Lárus L. Blöndal, forseti ÍSÍ, í Gautaborg í dag. „Við erum á sama tíma í samstarfi við menntamálaráðuneytið að greina og skapa betri umgjörð um afreksíþróttastarfið í heild sinni. Það er verkefni sem starfshópur er með á sinni könnu og á að klára á þessu ári.“ Hann segir að réttindi afreksíþróttafólks ættu að batna mikið. „Það á að fara yfir alla löggjöf þar sem á að tryggja réttindi íþróttafólksins sem er að keppa á okkar vegum og það sama á við um tekjur og þetta er allt saman partur af þessu verkefni,“ segir Lárus en viðtalið við hann má sjá í heild sinni hér að neðan. Klippa: Forseti ÍSÍ spenntur fyrir komandi tímum
ÍSÍ Mest lesið Hálf áttræður Warnock gæti snúið aftur tveimur mánuðum eftir að hann hætti Fótbolti „Þetta eru leikirnir sem að maður vill spila“ Körfubolti Fékk flösku í hausinn í gær og mætti með hjálm í dag Sport „Núna skora ég á Njarðvíkinga að jafna baráttuna í stúkunni“ Körfubolti „Gæti orðið spennandi verkefni að vera í botnbaráttu“ Fótbolti Ísak og félagar nældu í stig gegn toppliðinu og geta enn farið beint upp Fótbolti Bjarni Mark: Sendi hjarta til baka, enda elska ég þá alla Fótbolti Dagskráin í dag: Stútfullur sófasunnudagur Sport „Mikilvægt að ná upp stöðugleika“ Fótbolti Uppgjörið: Njarðvík - Valur 91-88 | Heimamenn knúðu fram oddaleik Körfubolti Fleiri fréttir Dagskráin í dag: Stútfullur sófasunnudagur Fékk flösku í hausinn í gær og mætti með hjálm í dag Hálf áttræður Warnock gæti snúið aftur tveimur mánuðum eftir að hann hætti „Núna skora ég á Njarðvíkinga að jafna baráttuna í stúkunni“ „Þetta eru leikirnir sem að maður vill spila“ AC Milan kom sér aftur á sigurbraut með stórsigri Ísak og félagar nældu í stig gegn toppliðinu og geta enn farið beint upp „Gæti orðið spennandi verkefni að vera í botnbaráttu“ „Mikilvægt að ná upp stöðugleika“ Bjarni Mark: Sendi hjarta til baka, enda elska ég þá alla Meistarar Madrid halda áfram að vinna Uppgjörið: Njarðvík - Valur 91-88 | Heimamenn knúðu fram oddaleik Lærisveinar Freys á leið í umspil þökk sé sigri annars Íslendingaliðs Bologna nálgast Meistaradeildina í fyrsta sinn í sextíu ár Davíð Smári: Við erum búnir að æfa þessa íþrótt síðan við fæddumst Þrjú íslensk mörk í risasigri Fortuna Sittard Heimsmeistararnir stöðvaðir á síðustu stundu Uppgjörið: Eistland - Ísland 24-37 | Gengu örugglega frá Eistum og tryggðu farseðil á HM Örlög Luton ráðin og allir nýliðarnir falla Uppgjörið: Valur - KA 3-1 | Vítaklúður Gylfa kom ekki að sök Þriðji sigurinn í röð og daumurinn um Evrópusæti lifir Uppgjörið: ÍA - Vestri 3-0 | Öruggt hjá ÍA í slag nýliðanna Jóhann fékk ekki að spila þegar Burnley féll Karólína með stjörnum á toppi listans Kristall hetjan en fagnaði ósæmilega og fékk rautt Frost í sókn en sveinar Dags mörðu sigur Algjör martröð eins manns þegar Celtic vann erkióvininn Titillinn hrifsaður úr greipum Diljár og fall blasir við Sveini Gvardiol skaut City á toppinn Stuðningsmenn stöðvuðu liðsrútuna og leik Standard frestað Sjá meira