Sextán skipverjar gefa skýrslu um hópsmitið í sjóprófinu Kjartan Kjartansson skrifar 18. nóvember 2020 14:37 Sjóprófið fer fram í Héraðsdómi Vestfjarða á mánudag. Bæjarins besta
Sjópróf vegna hópsmits kórónuveiru sem kom upp um borð í togaranum Júlíusi Geirmundssyni hefst í Héraðsdómi Vestfjarða á mánudag. Sextán skipverjar gefa skýrslu í sjóprófinu en skipstjórinn ætlar ekki að taka þátt. Deilt var um hvort að stjórnendur Hraðfrystihússins Gunnvarar gefi skýrslu við fyrirtöku í dag. Tuttugu og tveir af tuttugu og fimm skipverjum um borð í Júlíusi Geirmundssyni veiktust eða smituðust af kórónuveirunni í þriggja vikna túr í síðasta mánuði. Skipverjar byrjuðu að veikjast skömmu eftir að túrinn hófst en skipið hélt engu að síður veiðum áfram. Áhöfnin fór í sýnatöku á Ísafirði en skipinu var snúið aftur út á haf áður en niðurstöður lágu fyrir. Stéttarfélög skipverjanna kærðu framgöngu útgerðarinnar til lögreglu og kröfðust þess jafnframt að sjópróf yrði haldið. Það fer fram í Héraðsdómi Vestfjarða á mánudag. Jónas Þór Jónasson, lögmaður stéttarfélaganna, segir Vísi að eins og stendur muni sextán skipverjar auk Súsönnu Bjargar Ástvaldsdóttur, umdæmislæknis sóttvarna á Vestfjörðum, gefa skýrslu í sjóprófinu. Fimmtán þeirra smituðust af kórónuveirunni. Sjópróf er ekki hefðbundið dómsmál. Í því felst að skýrslur eru teknar um atburðina sem eru til skoðunar. Framburðurinn er svo tekinn saman en enginn dómur felldur. Jónas Þór segir að sjóprófið geti nýst sem mögulegt sönnunargagn í dómsmálum síðar meir. Sakamálarannsókn stendur enn yfir á hópsmitinu hjá lögreglu. Skipstjórinn tekur ekki þátt Jóhannes Bjarni Björnsson, lögmaður Sveins Geirs Arnarssonar skipstjóra, vísaði í yfirlýsingu skipstjórans frá því fyrir helgi um að hann ætlaði sér ekki að taka þátt í sjóprófinu í samtali við Vísi í dag. Í yfirlýsingunni sagðist Sveinn Geir með réttarstöðu sakbornings í rannsókn lögreglu á hópsmitinu. Hann ætlaði sér að bíða niðurstöðu þeirrar rannsóknar. Við fyrirtöku málsins í héraðsdómi í dag var deilt um hvað fælist í sjóprófi og hvort stjórnendur útgerðarinnar gæfu skýrslu. Jónas Þór, lögmaður stéttarfélaga, sagði Vísi að forsvarsmenn Gunnvarar ætluðu sér ekki að gefa skýrslu. Arnar Þór Stefánsson, lögmaður útgerðarinnar og Einars Vals Kristjánssonar, framkvæmdastjóra, segir að þeir líti svo á að lög standi ekki til þess að framkvæmdastjórinn gefi skýrslu í málinu. Hann vildi ekki tjá sig um það að öðru leyti. Ríkisútvarpið greindi frá því í gærkvöldi að skipverjar á Júlíusi Geirmundssyni sem voru í landi þegar smitið kom upp hefðu lýst yfir vantrausti á Svein Geir skipstjóra. Þeir krefjist þess að hann verði látinn hætta.
Hópsmit á Júlíusi Geirmundssyni Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Sjávarútvegur Tengdar fréttir Lýsa yfir vantrausti á skipstjóra sinn Skipverjar á togaranum Júlíusi Geirmundssyni hafa lýst yfir vantrausti á skipstjórann Svein Geir Arnarsson. 18. nóvember 2020 00:58 Skipstjórinn á Júlíusi Geirmundssyni með stöðu sakbornings Sveinn Geir Arnarsson, skipstjóri togarans Júlíusar Geirmundssonar, segist vera með stöðu sakbornings í rannsókn lögreglu á hópsmiti Covid-19 sem kom upp um borð í togaranum í síðasta mánuði. 16. nóvember 2020 14:01 Sjópróf vegna hópsmitsins á Júlíusi Geirmundssyni Ákveðið var að sjópróf skyldi fara fram vegna hópsýkingar kórónuveiru um borð í togaranum Júlíusi Geirmundssyni þegar mál vegna þess var þingfest í Héraðsdómi Reykjaness í dag. Stéttarfélög áhafnarinnar fóru fram á sjópróf. 13. nóvember 2020 18:54 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Innlent Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Innlent „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Innlent Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Innlent Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum Innlent „Ódýrt“ að gera samningana tortryggilega Innlent Búast má við slyddu Veður Lífshættuleg meðhöndlun barna á vöggustofum og þrír eftir í bakgarðshlaupi Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir Til vandræða á hóteli og réðst svo á mann við Hlemm Lífshættuleg meðhöndlun barna á vöggustofum og þrír eftir í bakgarðshlaupi Karlar líklegri að ljúga á kostnað annarra Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum „Ódýrt“ að gera samningana tortryggilega Leikskólar Árborgar verða lokaðir á milli jóla- og nýárs Völd óskast: Forseti allra kynslóða? Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Orku- og samgöngumál efst á lista nýs sveitarfélags Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Tíðindi í kjaradeilu flugvallarstarfsmanna og bein útsending úr Bakgarðshlaupinu Frestun verkfalla kemur til greina „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Sáttasemjari boðar til fundar: Fimm dagar til stefnu Orkuskipti, innflytjendalöggjöf og bensínstöðvalóðirnar „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Ný sýn fékk meirihluta Slagsmál enduðu með nefbroti Bíll logaði í Vesturbænum „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Sjá meira
Lýsa yfir vantrausti á skipstjóra sinn Skipverjar á togaranum Júlíusi Geirmundssyni hafa lýst yfir vantrausti á skipstjórann Svein Geir Arnarsson. 18. nóvember 2020 00:58
Skipstjórinn á Júlíusi Geirmundssyni með stöðu sakbornings Sveinn Geir Arnarsson, skipstjóri togarans Júlíusar Geirmundssonar, segist vera með stöðu sakbornings í rannsókn lögreglu á hópsmiti Covid-19 sem kom upp um borð í togaranum í síðasta mánuði. 16. nóvember 2020 14:01
Sjópróf vegna hópsmitsins á Júlíusi Geirmundssyni Ákveðið var að sjópróf skyldi fara fram vegna hópsýkingar kórónuveiru um borð í togaranum Júlíusi Geirmundssyni þegar mál vegna þess var þingfest í Héraðsdómi Reykjaness í dag. Stéttarfélög áhafnarinnar fóru fram á sjópróf. 13. nóvember 2020 18:54