Foreldrar gagnrýna arkitekt og umsjónarmenn endurbóta og krefjast aðkomu að verkefninu Hólmfríður Gísladóttir skrifar 14. október 2021 09:02 Foreldrar eru afar ósáttir við hvernig haldið hefur verið á málunum. Vísir/Egill Foreldrafélag Fossvogsskóla hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem finna má þær kröfur sem félagið kom á framfæri við borgarstjóra á fundi með fulltrúum allra árganga á þriðjudag. Fundinn sat einnig skólaráð skólans.
Í tilkynningunni segir meðal annars að foreldrar krefjist þess að öllum börnum í skólanum verði kennt í Fossvoginum í síðasta lagi frá upphafi skólaárs 2022. „Frekari hreppaflutningar koma ekki til greina,“ segir í tilkynningunni. Þá segir að rífa þurfi miðálmu skólans en í húsinu sé illviðráðanlegt rakavandamál og byggingin sé frá öllum hliðum séð úrelt sem skólahúsnæði. Endurhanna þurfi byggingar og endurhugsa. Foreldrar hafi verulegar og rökstuddar áhyggjur af færni, samstarfsvilja og afkastagetu núverandi arkitekts. Þá sé þess krafist að foreldrar eigi fulltrúa í skipulags- og framkvæmdahópum verkefnisins. „Þeim starfsmönnum umhverfis- og skipulagssviðs og ráðgjafa frá Verkís, sem hafa ítrekað brugðist börnunum okkar undanfarin þrjú ár, verði skipt út. Fullkomið vantraust ríkir af hálfu foreldra til þessara manna sem hafa of lengi staðið fyrir vanefndum og villuljósum,“ segir í tilkynningunni. Tryggja þurfi að umhverfis- og skipulagssvið borgarinnar gangi ekki skemur í endurbótum en ráðleggingar EFLU kalli eftir. Þá er þess krafist að borgin veiti án tafar meiri aðstoð inn í skólastarfið og að upplýsingagjöf til foreldra og starfsmanna verði efld. Arkitektinn hafnar ásökununum Helga Gunnarsdóttir, arkitekt á teiknistofu Gunnars Hanssonar, hefur hafnað ásökunum foreldra um að hún eða stofan hafi valdið töfum á framkvæmdum. Fréttablaðið hafði eftir Karli Óskari Þráinssyni, formanni foreldrafélagsins, á þriðjudag að svo virtist sem Helga stjórnaði för í framkvæmdunum og tefði verkefnið. Helga sagði hins vegar í samtali við Fréttablaðið í dag að fleiri kæmu að ákvarðanatöku um til dæmis klæðningu hússins. „Það er búið að vanda vel til vinnunnar og margir komið þar að. Það eru byggingatæknifræðingar, við arkitektarnir á Teiknistofunni, Reykjavíkurborg og Efla og von mín að málið gangi hraðar fyrir sig núna.“ Tengd skjöl 211014_Frettatilkynning_frá_FFFPDF98KBSækja skjal
Mygla í Fossvogsskóla Reykjavík Skóla - og menntamál Grunnskólar Arkitektúr Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Innlent „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Innlent Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Innlent Búast má við slyddu Veður Ný sýn fékk meirihluta Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent Frestun verkfalla kemur til greina Innlent Ísraelsmenn vísa fréttamönnum á dyr Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Orku- og samgöngumál efst á lista nýs sveitarfélags Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Tíðindi í kjaradeilu flugvallarstarfsmanna og bein útsending úr Bakgarðshlaupinu Frestun verkfalla kemur til greina „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Sáttasemjari boðar til fundar: Fimm dagar til stefnu Orkuskipti, innflytjendalöggjöf og bensínstöðvalóðirnar „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Ný sýn fékk meirihluta Slagsmál enduðu með nefbroti Bíll logaði í Vesturbænum „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi „Ég get ekki annað en sagt satt“ Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Sjá meira