Seðlabankinn skorar á fyrirtæki að hægja á sér Heimir Már Pétursson skrifar 22. mars 2023 11:59 Peningastefnunefnd Seðlabankans leggur áherslu á að hún muni halda áfram að hækka vexti þar til dregur úr spennu í hagkerfinu. Stöð 2/Arnar Seðlabankastjóri segir hagkerfið vera sjóðheitt og Seðlabankinn muni halda áfram að hækka vexti þar til hægir á hagkerfinu. Hann beinir því sérstaklega til fyrirtækja að hægja á fjárfestingu sinni. Meginvextir bankans voru hækkaðir um eina prósentu í morgun.
Í yfirlýsingu peningastefnunefndar Seðlabankans í morgun segir að verðbólguþrýstingur haldi áfram að aukast og verðhækkanir nái til æ fleiri þátta. Verðbólga mælist nú 10,2% og verðbólguvæntingar væru enn yfir markmiði bankans. Raunvextir hans hefðu lækkað frá því meginvextir voru síðast hækkaðir í febrúar. „Hagvöxtur var mikill í fyrra og vel umfram það sem þjóðarbúskapurinn getur staðið undir til lengdar. Innlend eftirspurn jókst meira en gert var ráð fyrir í febrúar og vísbendingar eru um að hún hafi verið kröftugri í ársbyrjun en talið var,“ sagði Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri þegar hann kynnti eins prósentustiga hækkun meginvaxta bankans í morgun. Vandinn væri í hnotskurn sá að það væri allt á fleygiferð íhagkerfinu. Mikið um framkvæmdir og næg atvinna. Hægja þyrfti á hagkerfinu. Mörgum kynni hins vegar að virðast að stöðugar vaxtahækkanir Seðlabankans væru ekki að virka. Ásgeir segir árangurinn meðal annars koma fram í því að fasteignamarkaðurinn hefði kólnað. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir bankann ekki geta valið á hverjum vaxtahækkanir hans virki. Hagkerfið sé sjóðheitt um þessar mundir og allir verði að hægja á sér, ekki hvað síst fyrirtækin í fjárfestingum sínum.Stöð 2/Arnar „En á sama tíma líka er gríðarlega mikill hagvöxtur. Gríðarlega mikil eftirspurn sem hefur brotist fram. Við erum í rauninni með sjóðheitt hagkerfi. Þannig að við þurfum hærri vexti. Við þurfum meira en miðlunin hefur verið góð. Það er að segja við erum að sjá vaxtahækkanir Seðlabankans skila sér,“ segir Seðlabankastjóri. Það hefur augljóslega dregið úr kaupgetu heimila sem fengið hafa á sig aukna vaxtabyrði vegna húsnæðislána. Ásgeir segir fjármálastöðuleikanefnd hafa beint því til bankanna í síðustu viku að sýna heimilunum sveigjanleika til að auðvelda þeim að komast í gegnum þetta tímabil. Núna beini peningastefnunefnd spjótum sínum ekki hvað síst að fyrirtækjunum í landinu. Útlán til þeirra hafi aukist mikið að undanförnu enda gengið vel í fyrirtækjarekstri eftir að hömlum var létt að loknum faraldri. „Að einhverju leyti erum við að fókusera á það núna. Að hækka vexti til að tryggja einhverja forgangsröðun í þessum verkefnum.“ Bankinn gæti hins vegar ekki beint vaxtahækkunum að einhverjum tilteknum aðilum sérstaklega, þær virkuðu á alla. Þannig að fyrirtækin ættu líka að halda að sér hönum í fjárfestingum um þessar mundir? „Algjörlega. Ég held að þaðsé líka mjög mikilvægt fyrir fyrirtækin aðfara með gát íþví sem þau eru að gera. Ekki spenna sig um of,“sagði Ásgeir Jónsson. Seðlabankinn muni halda áfram að hækka vexti þar til hægði á í hagkerfinu. Hann biðlaði til annarra ráðandi aðila, vinnumarkaðarins og hins opinbera að sameinast um að koma verðbólgunni niður.
Seðlabankinn Efnahagsmál Verðlag Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Kjaraviðræður 2022-23 Tengdar fréttir Seðlabankinn slátri ávinningi kjarasamninga Formaður Starfsgreinasambandsins og forseti Alþýðusambands Íslands og eru báðir ósáttir með enn eina vaxtahækkunina sem tilkynnt var um í dag. Þeir segja báðir að afleiðingar vaxtahækkana bitni helst á því fólki sem má síst við þeim. 22. mars 2023 11:23 Seðlabankastjóri: Fókusinn farinn af heimilum yfir á fyrirtæki Fasteignamarkaðurinn leggur ekki jafn mikið til verðbólgu og hann gerði. Verðbólga er nú á afar breiðum grunni, til að mynda vegna aukins kostnaðar vegna nýafstaðna kjarasamninga. „Fókusinn er að fara af heimilum yfir á fyrirtæki,“ sagði seðlabankastjóri. Aðstoðarseðlabankastjóri sagði að innlend eftirspurn væri „miklu sterkari en við gerðum ráð fyrir“ meðal annars vegna fjárfestingu atvinnuvega. 22. mars 2023 10:55 Hækkar vexti um eina prósentu og útlit fyrir meiri verðbólgu en áður var spáð Peningastefnunefnd Seðlabankans hefur hækkað meginvexti bankans um eina prósentu – úr 6,5 prósentum í 7,5 prósent – samhliða auknum verðbólguþrýstingi og segir að við þessar aðstæður sé „mikilvægt að koma í veg fyrir víxlverkun hækkandi launa og verðlags.“ Vaxtahækkunin, sem er sú tólfta í röð, var heldur meiri en flestir greinendur og markaðsaðilar höfðu spáð fyrir um. 22. mars 2023 08:52 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Ástand Fico enn alvarlegt Erlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Býst við aukinni sókn Rússa Erlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Innlent Fleiri fréttir Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn Sjá meira
Seðlabankinn slátri ávinningi kjarasamninga Formaður Starfsgreinasambandsins og forseti Alþýðusambands Íslands og eru báðir ósáttir með enn eina vaxtahækkunina sem tilkynnt var um í dag. Þeir segja báðir að afleiðingar vaxtahækkana bitni helst á því fólki sem má síst við þeim. 22. mars 2023 11:23
Seðlabankastjóri: Fókusinn farinn af heimilum yfir á fyrirtæki Fasteignamarkaðurinn leggur ekki jafn mikið til verðbólgu og hann gerði. Verðbólga er nú á afar breiðum grunni, til að mynda vegna aukins kostnaðar vegna nýafstaðna kjarasamninga. „Fókusinn er að fara af heimilum yfir á fyrirtæki,“ sagði seðlabankastjóri. Aðstoðarseðlabankastjóri sagði að innlend eftirspurn væri „miklu sterkari en við gerðum ráð fyrir“ meðal annars vegna fjárfestingu atvinnuvega. 22. mars 2023 10:55
Hækkar vexti um eina prósentu og útlit fyrir meiri verðbólgu en áður var spáð Peningastefnunefnd Seðlabankans hefur hækkað meginvexti bankans um eina prósentu – úr 6,5 prósentum í 7,5 prósent – samhliða auknum verðbólguþrýstingi og segir að við þessar aðstæður sé „mikilvægt að koma í veg fyrir víxlverkun hækkandi launa og verðlags.“ Vaxtahækkunin, sem er sú tólfta í röð, var heldur meiri en flestir greinendur og markaðsaðilar höfðu spáð fyrir um. 22. mars 2023 08:52