Klefi Íslands vekur athygli (mynd)

Ísland mætir Bosníu annað kvöld.
Ísland mætir Bosníu annað kvöld. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Íslenska karlalandsliðið í fótbolta mætir því bosníska í fyrsta leik sínum í undankeppni EM í Zenica í Bosníu annað kvöld.

Leikið verður á Bilino Polje-vellinum, sem var byggður árið 1972. Er hann heimavöllur Čelik Zenica.

Innviðir vallarins hafa lítið verið gerðir upp frá byggingu hans og minnir klefinn sem íslenska liðið fær í leiknum helst á leikfimiklefa úr grunnskóla.

Mynd af klefanum má sjá hér fyrir neðan. 

Mbl.is er í Zenica og mun gera leiknum góð skil á vefnum, sem og í Morgunblaðinu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert