Síðasti snjómokarinn og börn á Þingeyri opna Dýrafjarðargöng Kristján Már Unnarsson skrifar 23. október 2020 22:23 Horft frá Þingeyri inn Dýrafjörð. Jarðgöngin opnast í innanverðum firðinum, um 12 kílómetra frá Þingeyri. Vísir/Vilhelm Gunnarsson
Grunnskólabörn á Þingeyri og Gunnar Gísli Sigurðsson, sem mokaði Hrafnseyrarheiði í síðasta sinn síðastliðið vor, verða þau fyrstu sem aka í gegnum Dýrafjarðargöng þegar þau verða opnuð á sunnudag. Frá þessu er greint á vef Vegagerðarinnar. Þar er einnig lýst fyrirkomulagi opnunarathafnarinnar, sem hefst klukkan 14, en hún verður með óhefðbundnum hætti sökum kórónuveirufaraldursins. Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra og Bergþóra Þorkelsdóttir vegamálastjóri verða stödd í húsakynnum Vegagerðarinnar í Reykjavík. Að loknum stuttum ávörpum, sem verður útvarpað og streymt á netinu, mun ráðherra biðja vaktstöð Vegagerðarinnar á Ísafirði að lyfta slánum við gangamunnana og þannig opna göngin fyrir umferð. Skólabörn á Þingeyri við gjörninginn vorið 2010 þegar þau byrjuðu að grafa Dýrafjarðargöng.Mynd/Vegagerðin Vestfirðingum býðst að safnast saman í bílum sínum við báða munna ganganna og fá þannig tækifæri til að aka í gegnum göngin um leið og þau hafa verið opnuð. Börnin á Þingeyri munu fyrst aka í gegn Dýrafjarðarmegin, ásamt Gunnari Gísla, en hann mokað hefur Hrafnseyrarheiði í 46 ár, eða frá árinu 1974. Skólabörn á Þingeyri póstleggja bréfið til samgönguráðherra í janúar þar sem þau biðja um að fá að fara fyrst í gegn.Mynd/Vegagerðin Á vef Vegagerðarinnar er rifjað upp að skólabörn á Þingeyri hafi tekið virkan þátt í að þrýsta á samgöngubætur fyrir sveitarfélagið. Fyrir tíu árum, þann 2. júní 2010, hafi hópur krakka úr skólanum ásamt foreldrum og starfsfólki, alls um 70 manns, byrjaði að grafa göngin. Markmið gjörningsins hafi verið að vekja athygli á því að göngin höfðu nokkrum sinnum verið slegin út af samgönguáætlun. Fulltrúar nemenda í 6. og 7. bekk Grunnskólans á Þingeyri hafi í byrjun þessa árs sent samgönguráðherra bréf þar sem óskað var eftir því að börnin í skólanum fengju að vera þau fyrstu sem færu í gegnum göngin þegar þau yrðu opnuð. Samgönguráðherra hafi tekið vel í þessa beiðni og í svarbréfi lýst ánægju með að geta uppfyllt ósk barnanna. Ráðherra hafi jafnframt bætt því við að með þeim í för yrði mokstursmaðurinn Gunnar Gísli Sigurðsson. Fólk er hvatt til að halda sig í bílunum og tryggja þannig að öllum reglum um sóttvarnir sé fylgt til hins ítrasta. Dynjandisheiðin verður mokuð á sunnudag, ef þurfa þykir. Þeir sem bíða eftir því að aka í gegn eru beðnir um að safnast í einfalda bílaröð á hægri kanti vegarins og að aka viðstöðulaust í gegn eftir að opnað hefur verið. Þeim sem koma að norðan Dýrafjarðarmegin er bent á að góðar tengingar eru til að snúa við eftir ferð í gegnum göngin vestan við brú á Mjólká. Þeir sem koma að vestan Arnarfjarðarmegin geta snúið við nærri Kjaransstöðum. Gangamuninn Dýrafjarðarmegin fyrr í mánuðinum þegar unnið var að lokafrágangi. Á skiltinu hægra megin má sjá hvað göngin eru löng.Framkvæmdaeftirlit Dýrafjarðarganga Ávörpum ráðherra og vegamálastjóra verður útvarpað við báða munna ganganna á FM-tíðninni 106,1. Viðburðinum verður streymt á Facebook síðu Vegagerðarinnar: www.facebook.com/Vegagerdin. Streymt verður á slóðinni https://livestream.com/accounts/5108236/events/9367337 Hér má sjá frétt Stöðvar 2 af síðasta stóra snjómokstrinum á Hrafnseyrarheiði í maímánuði í vor:
Dýrafjarðargöng Ísafjarðarbær Samgöngur Umferðaröryggi Byggðamál Tengdar fréttir Horfa á 25. október til að klippa á borðann í Dýrafjarðargöngum Eftirvæntingar gætir á Vestfjörðum vegna væntanlegrar opnunar Dýrafjarðarganga, nú þegar jarðgöngin eru nánast tilbúin. Þegar slegið var í gegn í fyrra nefndi samgönguráðherra dagsetninguna 14. september 2020. En hvenær rennur stóri dagurinn upp? 14. október 2020 21:04 Vesturleiðin opnast með síðasta stóra snjómokstrinum á Hrafnseyrarheiði Vonast er til að vesturleiðin til Ísafjarðar opnist á morgun en snjóruðningsmenn Vegagerðarinnar kappkosta nú við að moka Hrafnseyrarheiði. Þetta er að öllum líkindum síðasti snjómokstur á þessum erfiða farartálma áður en Dýrafjarðargöng opnast. 6. maí 2020 22:35 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent Tuga enn saknað og 55 látnir Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Innlent Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin Innlent Verður borgarstjóri Lundúna þriðja kjörtímabilið í röð Erlent „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Innlent Fleiri fréttir Slagsmál enduðu með nefbroti Bíll logaði í Vesturbænum „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi „Ég get ekki annað en sagt satt“ Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Sólríkasta byrjun árs í Reykjavík í 77 ár Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Fjöldi verkfallsboðana á Keflavíkurflugvelli áhyggjuefni Kosið um sameiningu Húna- og Skagabyggðar í júní Nýjustu skoðanakannanir, verkfallsaðgerðir á flugvellinum og týndur gaffall Halla Hrund líka vinsæll annar kostur Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Segja lýðræðis- og mannréttindabakslag staðreynd Ný sendiskrifstofa opnuð í Síerra Leóne Sjá meira
Horfa á 25. október til að klippa á borðann í Dýrafjarðargöngum Eftirvæntingar gætir á Vestfjörðum vegna væntanlegrar opnunar Dýrafjarðarganga, nú þegar jarðgöngin eru nánast tilbúin. Þegar slegið var í gegn í fyrra nefndi samgönguráðherra dagsetninguna 14. september 2020. En hvenær rennur stóri dagurinn upp? 14. október 2020 21:04
Vesturleiðin opnast með síðasta stóra snjómokstrinum á Hrafnseyrarheiði Vonast er til að vesturleiðin til Ísafjarðar opnist á morgun en snjóruðningsmenn Vegagerðarinnar kappkosta nú við að moka Hrafnseyrarheiði. Þetta er að öllum líkindum síðasti snjómokstur á þessum erfiða farartálma áður en Dýrafjarðargöng opnast. 6. maí 2020 22:35