Spilafíkn er alvarlegur vandi meðal fólks með þroskahömlun Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 2. desember 2020 20:31 Fólk með þroskahömlun eyðir oft síðustu krónunum af örorkulífeyrinum í spilakassa. Andlega ástandið sem fylgir spilafíkn hefur þó mestu og verstu áhrifin. vísir/vilhelm Allmargir úr hópi fólks með þroskahömlun eiga við spilafíkn að stríða og eyða oft síðustu aurunum af örorkulífeyrinum í spilakassa. Verkefnastjóri hjá Þroskahjálp segir skorta fræðslu og sérhæfða fíknimeðferð fyrir hópinn.
Í Kompás er fjallað um spilafíkn og þar segir Þorvarður Karl Þorvarðarson sína sögu. Hann býr í íbúðarkjarna og fer gjarnan með sambýlingi sínum í spilasal í Hamraborginni. Í þættinum lýsir hann hvernig þeir félagarnir breytast í uppvakninga í spilasalnum. „Við heyrum ekkert, sjáum ekkert,“ segir hann. Friðrik Sigurðsson, verkefnastjóri hjá Þroskahjálp, segir allmarga skjólstæðinga samtakanna glíma við spilafíkn og að hún sé þeim mjög erfið. „Menn þurfa ekki að tapa mjög miklu af örorkulífeyrinum sínum til að það sé orðið mjög sárt. Svo er það annað að það virðist ekki vera til nein hjálp eða aðstoð sem er sérstaklega sniðin að þessum hópi.“ Friðrik segir skorta fræðslu og meðferð við spilafíkn fyrir fólk með þroskahömlun.vísir/egill Þorvarður lýsir því í þættinum að sárast þykir honum að hafa logið og stolið af sínum nánustu. Friðrik kannast við slík dæmi. „Ég þekki líka dæmi um að menn selja eigur sínar til að ná sér í lausafé til að halda áfram að reyna að vinna þanna stóra.“ Örvæntingin eftir spilapeningum geti þannig leitt fólk á mjög vondar brautir. Fyrr á árinu fjallaði Kompás um konur með þroskahömlun sem hafa leiðst út í vændi. Sú sem sagði sögu sína í þættinum leiddist út í vændi til að fjármagna spilafíkn sína. Friðrik segir fíknina geta byrjað vegna einmanaleika, fólk leiti í spilasalina sem sé ekki með gott félagslegt bakland. Ljósin heilli og vonin um að hitta fólk sé sterk. Þorvarður segir sögu sína í Kompás. Hann hefur glímt við spilafíkn frá tíu ára aldri.vísir/vilhelm Margir sem eru með þroskahömlun eru með fjárhaldsmann sem skammtar þeim vikupening með þeirra samráði. Þannig sé reynt að koma í veg fyrir að öll mánaðarhýran klárist á fyrsta degi mánaðar. Það sé ágæt vörn. „Svo þarf bara að fræða fólk um að það fari enginn þarna inn til að græða. Það liggur alveg í augum uppi að þessir staðir eru ekki fjárhagsaðstoð við fátæka öryrkja. Þeir eru til að ná af þeim peningunum,“ segir Friðrik.
Kompás Fíkn Fjárhættuspil Tengdar fréttir „Bið til guðs að þeir opni ekki aftur“ Flestir spilafíklar eru með fíkn í spilakassa. Þeir hafa verið lokaðir í samkomubanni. Heitasta ósk þriggja viðmælenda Kompáss er að kassarnir verði ekki opnaðir aftur. 1. desember 2020 07:01 Spilakassar verði svartur blettur á okkar sögu Formaður Samtaka áhugafólks um spilafíkn segir að í fyrsta skipti frá árinu 1994 fái spilafíklar frelsi frá spilakössum vegna samkomubannsins. 2. desember 2020 12:52 „Þeir segja að ég eigi að halda leyndó“ Í Kompás segir kona á fertugsaldri sögu sína, hún er með þroskahömlun og glímir við ýmis geðræn vandamál. Hún hefur stundað vændi í nokkur ár og telur að kúnnarnir séu um sjötíu menn. Þeir séu oft giftir menn, venjulegir menn, eins og hún segir sjálf. 2. mars 2020 09:30 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Það er enginn sem verndar son okkar“ Innlent Sveddi sagður með tengsl við ítölsku mafíuna Innlent Krefjast skýringa á brotthvarfi Maríu Sigrúnar Innlent Fylgi Höllu Hrundar ekki fast í hendi Innlent Tíu kílómetrar eftir af hundrað: Gangan miklu erfiðari en hann óraði fyrir Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Hraun mjakast yfir varnargarð Innlent Halla Hrund mælist með mest fylgi allra frambjóðenda Innlent Ný gossprunga geti opnast fyrirvaralaust á næstunni Innlent Landsréttur komi fram við ákæruvaldið eins og lítið barn Innlent Fleiri fréttir Mikil gleði þegar Bergur komst í mark Segir engin annarleg sjónarmið að baki ákvörðun RÚV Hraun mjakast yfir varnargarð Ný gossprunga geti opnast fyrirvaralaust á næstunni Allt að gerast í Vík í Mýrdal um helgina Stór gossprunga gæti opnast fyrirvaralaust Fylgi Höllu Hrundar ekki fast í hendi Tíu kílómetrar eftir af hundrað: Gangan miklu erfiðari en hann óraði fyrir 800 milljóna króna hreinsistöð byggð á Selfossi Sveddi sagður með tengsl við ítölsku mafíuna Vara við því að fara gangandi að gosinu Kastaði glerflösku í höfuð manns og gisti í fangaklefa „Það er enginn sem verndar son okkar“ Krefjast skýringa á brotthvarfi Maríu Sigrúnar Veisluhöld forseta séu barns síns tíma Húsráðendum tókst að ráða niðurlögum elds í þakskyggni Landsréttur komi fram við ákæruvaldið eins og lítið barn Mannasættir sem óttist ekki að standa í fæturnar Mótmælendur fengu óvæntan liðstyrk frá Hollywood Ráðherra reiðubúin að vinna með atvinnuveganefnd að breytingum Vill skipa í ríkisstjórn eftir eigin höfði Halla Hrund mælist með mest fylgi allra frambjóðenda Mikil tíðindi í glænýrri könnun Ástþór sannfærður um að verða sjöundi forsetinn Refsing fyrir að nauðga stjúpdóttur æskuvinar þyngd Ætlar í aðra undirskriftasöfnun Hjúkrunarfræðingurinn ekki laus allra mála enn Trúnaðarsamtöl við forsætisráðherra lykilatriði Sprakk úr hlátri „Ísdrottningin myndi bráðna ef hér kæmi kjarnorkusprengja“ Sjá meira
„Bið til guðs að þeir opni ekki aftur“ Flestir spilafíklar eru með fíkn í spilakassa. Þeir hafa verið lokaðir í samkomubanni. Heitasta ósk þriggja viðmælenda Kompáss er að kassarnir verði ekki opnaðir aftur. 1. desember 2020 07:01
Spilakassar verði svartur blettur á okkar sögu Formaður Samtaka áhugafólks um spilafíkn segir að í fyrsta skipti frá árinu 1994 fái spilafíklar frelsi frá spilakössum vegna samkomubannsins. 2. desember 2020 12:52
„Þeir segja að ég eigi að halda leyndó“ Í Kompás segir kona á fertugsaldri sögu sína, hún er með þroskahömlun og glímir við ýmis geðræn vandamál. Hún hefur stundað vændi í nokkur ár og telur að kúnnarnir séu um sjötíu menn. Þeir séu oft giftir menn, venjulegir menn, eins og hún segir sjálf. 2. mars 2020 09:30