Flugvélin verði ekki seld nema önnur taki við Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir og Heimir Már Pétursson skrifa 3. febrúar 2023 14:02 Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sér ekki fyrir sér að TF-SIF verði seld nema búið sé að ákveða hvað taki við. Vísir/Arnar Forsætisráðherra segir að skoða þurfi mun betur söluna á flugvél Landhelgisgæslunnar, sem dómsmálaráðherra boðaði í gær. Ekki væri hægt að ráðast í söluna fyrr en búið væri að fara yfir öll þau sjónarmið sem komið hefðu fram.
Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra tilkynnti í vikunni að ekki væru til fjármunir fyrir rekstri flugvélarinnar og því ætti að hætta rekstri hennar. Áformin hafa verið harðlega gagnrýnd úr ýmsum áttum og segir forsætisráðherra að skoða þurfi málið aftur. „Þetta mál var kynnt í ríkisstjórn í janúar. Ég var ekki á þeim fundi en ég tel fulla ástæðu til þess í ljósi þess viðbragðs sem við höfum heyrt, bæði frá Landhelgisgæslunni, almannavörnum og ýmsum aðilum úti í samfélaginu, sem þurfa á þjónustu þessarar flugvélar að halda, alveg einsýnt að það þarf að fara yfir þessa ákvörðun,“ segir Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra í samtali við fréttastofu. Vélin fari ekki nema annað taki við Hún bendir á að ekki sé hægt að selja flugvélina nema meirihluti þingmanna samþykki söluna. „Við munum ræða þetta á vettvangi Þjóðaröryggisráðs út frá þeim sjónarmiðum sem hafa komið fram gagnvart okkar skuldbindingum í alþjóðlegu samstarfi og líka gagnvart almannavarnarsjónarmiðum. Augljóslega þarf bara að fara mjög vel yfir þetta mál.“ Hún sjái ekki fyrir sér að salan verði að veruleika nema ákvörðun liggi fyrir um framhaldið. „Ég sé ekki fyrir mér að það sé hægt að taka þessa ákvörðun nema fyrir liggi hvað eigi að taka við. Við vitum það að þegar þessi vél kom á sínum tíma var það langur aðdragandi í að fá hana til landsins. Augljóslega má ekki verða neitt rof í þeim efnum,“ segir Katrín. „Ég held að þessi ákvörðun þurfi einfaldlega miklu betri skoðunar við. Það er ekki hægt að ráðast í að selja þessa vél án þess að það sé búið að fara yfir öll þessi sjónarmið. Það verður gert.“ Hún segir koma til greina að þessi tiltekna vél verði seld ef önnur komi í staðin. „Við vitum það sem þekkjum þessa sögu að það tók langan tíma síðast. Þetta snýst um það að tryggja að ekkert rof verði á þessari viðbúnaðargetu Landhelgisgæslunnar, það er ekki í boði.“
Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Alþingi Landhelgisgæslan Öryggis- og varnarmál Tengdar fréttir „Það er til nóg af flugvélum í landinu“ Atburðarásin sem fór af stað þegar greint var frá áformum dómsmálaráðherra um að selja flugvél Landhelgisgæslunnar hefur verið áhugaverð, vægast sagt. Enda gerist það ekki oft, fáeinum vikum eftir samþykkt fjárlaga, að ráðherra tilkynnir einhliða um aðgerð í sparnaðarskyni sem dregur úr öryggi allra landsmanna. 3. febrúar 2023 13:30 Atvinnuflugmenn segja ákvörðun Jóns óforsvaranlega Félag íslenskra atvinnuflugmanna segir ákvörðun dómsmálaráðherra um að hætta rekstri flugvélar Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, sé óforsvaranleg og ólögleg. Félagið mun mögulega leita atbeina Félagsdóms gerist þess þörf. 3. febrúar 2023 11:00 Formaður fjárlaganefndar boðar til aukafundar vegna TF-SIF Þingmenn fordæma vinnubrögð dómsmálaráðherra við ákvörðun um sölu á flugvél Landhelgisgæslunnar og segja hana mikilvæga vegna þjóðaröryggis. Boðað hefur verið til fundar í fjárlaganefnd um málið á morgun. Ýmsir sem tengjast viðbrögðum við náttúruvá og annarri hættu undrast einnig að selja eigi þessa fullkomnustu leitar og björgunarflugvél landsins 2. febrúar 2023 19:20 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Stærsti skjálftinn 3,5 að stærð Innlent Viðræður „á viðkvæmu stigi“ og fundi frestað til morguns Innlent Búnaður Al Jazeera gerður upptækur og miðillinn í bann Erlent Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Innlent „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Innlent Til vandræða á hóteli og réðst svo á mann við Hlemm Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Karlar líklegri að ljúga á kostnað annarra Innlent Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Innlent Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum Innlent Fleiri fréttir Viðræður „á viðkvæmu stigi“ og fundi frestað til morguns Stærsti skjálftinn 3,5 að stærð Áslaug Arna mjólkar vel í fjósinu á Hvanneyri Líklega fundað fram eftir kvöldi Til vandræða á hóteli og réðst svo á mann við Hlemm Lífshættuleg meðhöndlun barna á vöggustofum og þrír eftir í bakgarðshlaupi Karlar líklegri að ljúga á kostnað annarra Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum „Ódýrt“ að gera samningana tortryggilega Leikskólar Árborgar verða lokaðir á milli jóla- og nýárs Völd óskast: Forseti allra kynslóða? Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Orku- og samgöngumál efst á lista nýs sveitarfélags Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Tíðindi í kjaradeilu flugvallarstarfsmanna og bein útsending úr Bakgarðshlaupinu Frestun verkfalla kemur til greina „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Sáttasemjari boðar til fundar: Fimm dagar til stefnu Orkuskipti, innflytjendalöggjöf og bensínstöðvalóðirnar „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Ný sýn fékk meirihluta Slagsmál enduðu með nefbroti Bíll logaði í Vesturbænum „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Sjá meira
„Það er til nóg af flugvélum í landinu“ Atburðarásin sem fór af stað þegar greint var frá áformum dómsmálaráðherra um að selja flugvél Landhelgisgæslunnar hefur verið áhugaverð, vægast sagt. Enda gerist það ekki oft, fáeinum vikum eftir samþykkt fjárlaga, að ráðherra tilkynnir einhliða um aðgerð í sparnaðarskyni sem dregur úr öryggi allra landsmanna. 3. febrúar 2023 13:30
Atvinnuflugmenn segja ákvörðun Jóns óforsvaranlega Félag íslenskra atvinnuflugmanna segir ákvörðun dómsmálaráðherra um að hætta rekstri flugvélar Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, sé óforsvaranleg og ólögleg. Félagið mun mögulega leita atbeina Félagsdóms gerist þess þörf. 3. febrúar 2023 11:00
Formaður fjárlaganefndar boðar til aukafundar vegna TF-SIF Þingmenn fordæma vinnubrögð dómsmálaráðherra við ákvörðun um sölu á flugvél Landhelgisgæslunnar og segja hana mikilvæga vegna þjóðaröryggis. Boðað hefur verið til fundar í fjárlaganefnd um málið á morgun. Ýmsir sem tengjast viðbrögðum við náttúruvá og annarri hættu undrast einnig að selja eigi þessa fullkomnustu leitar og björgunarflugvél landsins 2. febrúar 2023 19:20