Hefur loks náð endanlegum sættum við íslenska fræðasamfélagið Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar 23. september 2021 20:01 Fornsagnafræðingurinn Lars Lönnroth var gerður að heiðursdoktor við Háskóla Ísland í dag. Hann segist þakklátur fyrir að íslenska fræðasamfélagið hafi tekið sig í sátt og sér eftir að hafa stutt rangan málstað í einu mesta deilumáli síðustu aldar.
Lars er prófessor emeritus við Gautaborgarháskóla en hann er álitinn frumkvöðull á sviði íslenskra fræða. Hann var að vonum sáttur með viðurkenninguna þegar fréttastofa settist niður með honum til að fara yfir ferilinn. „Hún skiptir mig miklu máli því ég vildi ætíð að litið væri á mig sem fræðimann í forníslenskum fræðum," segir Lars. Frá hægri: Torfi H. Tulinius, prófessor og deildarforseti íslensku og menningardeildar, Jón Atli Benediktsson, rektor HÍ, og heiðursdoktorinn sjálfur, Lars Lönnroth.vísir/arnar Hann á þátt í að hafa umbylt sýn fræðimanna á íslenskar fornbókmenntir á síðustu öld með nýjum hugmyndum sínum. Þær féllu þó ekki allar í kramið hjá íslenskum fræðimönnum við þann þjóðernissinnaða tíðaranda sem þá var uppi. „Þegar ég hóf rannsóknir mínar voru allmargir á Íslandi mjög gagnrýnir á fræðastörf mín því ég lagði áherslu á evrópsk áhrif á forníslenskar bókmenntir," segir Lars. Tók ranga afstöðu í handritamálinu Afstaða hans til hins umdeilda handritamáls bætti síðan ekki úr skák. „Auk þess varð mér á að vera á öndverðum meiði í handritamálinu snemma á sjötta áratugnum," segir Lars sem var talsmaður þess að handritin yrðu áfram í Kaupmannahöfn. Hann segir það hafa verið mikil mistök, sem hann sér eftir í dag. Tíminn hafi leitt í ljós að handritin væru mun betur nýtt og geymd hér á Íslandi þar sem hefur skapast ríkt fræðastarf í kring um þau. Heiðursnafnbótin er honum því sérlega kær. „Ég er eðlilega mjög ánægður með að fá nú heiðursnafnbótina, sem ég lít á sem merki um það að nú sé allt fallið í ljúfa löð og að sættir hafi nú náðst milli íslenskra fræðimanna og mín."
Háskólar Handritasafn Árna Magnússonar Svíþjóð Íslandsvinir Skóla - og menntamál Íslensk fræði Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Erlent Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Innlent Ákærður fyrir leynilega nektarmynd í Nauthólsvík Innlent Vill að Færeyjar fái nýjan flugvöll Erlent Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Innlent „Þetta er dagurinn til að skella sér á skíði“ Innlent Umfangsmikið verkefni að hreinsa til eftir slysið Erlent Hviður allt að 35 metrar á sekúndu og hætt við sandfoki Innlent Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn Innlent Voru sérstaklega varaðir við árás frá ISKP Erlent Fleiri fréttir Mikil aðsókn í neyðarskýli Próftökubann og refsingar fyrir svindlara Ákærður fyrir leynilega nektarmynd í Nauthólsvík Hádegisfréttir Bylgjunnar Hviður allt að 35 metrar á sekúndu og hætt við sandfoki „Þetta er dagurinn til að skella sér á skíði“ Ógnaði dyraverði skemmtistaðar með hníf Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Vélsleðamaður lenti í snjóflóði Kvöldfréttir Stöðvar 2 Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Aðstoða göngumann á Móskarðshnjúkum Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Ný og glæsileg skólaþyrping byggð á Hellu Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Hádegisfréttir Bylgjunnar Svipar til gamalla óupplýstra rána Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Ferðaóðir Íslendingar þyrpast í ferðalög innanlands sem utan Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Sjá meira