Afléttingar víða í Evrópu Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 10. maí 2021 15:45 Þessir Tékkar fóru í verslunarmiðstöð í fyrsta sinn í marga mánuði í dag. AP/Petr David Josek Slakað var á kórónuveirutakmörkunum víðs vegar um Evrópu bæði í dag og um helgina. Smitum hefur fækkað mikið í fjölda ríkja og sífellt fleiri eru bólusett.
Ástandið í Tékklandi nú er það besta frá því í ágúst. Því var fjölda fyrirtækja leyft að opna á nýjan leik í dag. Bílasölur, sólbaðsstofur, skósmiðir og hlúðflúrarar eru á meðal þeirra sem geta nú tekið aftur við viðskiptavinum. Sjá mátti biðraðir fyrir utan fjölda verslana og fyrirtækja í höfuðborginni Prag í dag. „Þetta er auðvitað mikill léttir. Ég þarf að versla alveg heilan helling,“ hafði AP-fréttaveitan eftir Dan Cooper, sem var á leið inn í verslunarmiðstöð að kaupa belti og ýmislegt fleira. Aftur í bjór Bjórþyrstir Bæjarar gátu svo sótt hina ýmsu bjórgarða á nýjan leik eftir að yfirvöld í sambandslandinu slökuðu á takmörkunum og leyfðu veitingastöðum að bjóða upp á mat og drykk utandyra. Til þess að slaka á takmörkunum í Þýskalandi er miðað við að nýgengi smita sé undir hundrað á hver hundrað þúsund í hverri borg og sýslu fyrir sig. Leikur að læra Grísk börn sneru aftur í skólann í dag, að því gefnu að þau hafi fengið neikvæða niðurstöðu úr skimun, í fyrsta skipti í marga mánuði. Létt hefur verið á takmörkunum í skrefum á Grikklandi í von um að geta tekið á móti ferðamönnum í sumar. Veitingastöðum, kaffihúsum og krám var leyft að opna í síðustu viku í fyrsta sinn frá því í byrjun nóvembermánaðar. Börn mæta aftur í skólann í Aþenu, höfuðborg Grikklands.AP/Michael Varaklas Ekki lengur neyðarástand Neyðarástandsyfirlýsing féll úr gildi á Spáni á sunnudag og var því slakað á takmörkunum í Barcelona. Veitingahús og barir í borginni mega nú opna á ný, í fyrsta sinn í sex mánuði. Heimilt verður að taka á móti gestum til klukkan ellefu að kvöldi en ekki mega fleiri en fjögur sitja við sama borð. Einungis má fylla þrjátíu prósent sæta innandyra. Beint á barinn Fjöldi flykktist á krár í Brussel, höfuðborg Belgíu, um helgina eftir að barir voru opnaðir á ný í fyrsta sinn frá því í október og útgöngubann fellt úr gildi. Veitingamenn og eigendur skemmtistaða hafa mótmælt af krafti síðustu vikur og fengu loksins að opna um helgina.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Tékkland Þýskaland Grikkland Spánn Belgía Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Það er enginn sem verndar son okkar“ Innlent Uppgangur Höllu Hrundar fari fyrir brjóstið á „valdastéttinni“ Innlent Hraun mjakast yfir varnargarð Innlent Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Innlent Helga lenti einnig í vandræðum Innlent Sveddi sagður með tengsl við ítölsku mafíuna Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fylgi Höllu Hrundar ekki fast í hendi Innlent Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Innlent Eiríkur og Ástþór fá frest til að bæta við undirskriftum Innlent Fleiri fréttir Harvey Weinstein lagður inn á spítala Þingmaður hleypti af skoti fyrir utan skemmtistað Rýma dómshús vegna sprengjuhótunar Dómstóll fyrirskipar handtöku landbúnaðarráðherra Selenskís Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Dómi Harvey Weinstein snúið við Tekur fyrir að hafa verið „hermaður Hitlers“ Maður á sextugsaldri sagður hafa stungið grunnskóladreng Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Fyrstu hergögnin eiga að berast til Úkraínu á næstu klukkustundum Segir ekki af sér þrátt fyrir njósnir aðstoðarmannsins Aðstoðarvarnarmálaráðherra ákærður fyrir mútuþægni Upptök eldsins í gömlu kauphöllinni enn ókunn Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní Handtóku barnunga öfgamenn eftir stunguárás í Sydney Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Öldungadeildin samþykkti 95 milljarða dala aðstoð við Úkraínu, Ísrael og Taívan Reyna að sigla um geiminn á geislum sólarinnar Lýsa yfir áhyggjum af fregnum af fjöldagröfum á Gasa Fá aftur gögn frá tæplega hálfrar aldar gömlu geimfari Umdeildur flutningur á hælisleitendum til Rúanda samþykktur Starfsmaður hægrijaðarflokks handtekinn fyrir njósnir fyrir Kína Gera alvarlegar athugasemdir við verðlaunakerfi Tik Tok Tugir handteknir á mótmælum háskólanema gegn aðgerðum Ísraels Undirbúa stærðarinnar sendingar til Úkraínu Sjá meira