Norðanstormur og gul viðvörun

Frá Veðurstofu Íslands í dag.
Frá Veðurstofu Íslands í dag. Skjáskot

Norðanstormur með snjókomu og lélegu skyggni er í kortunum seint í kvöld um Norðanvert landið.

Veðurstofa Íslands spáir vindhviðum að 25 til 45 metrum á sekúndu frá Öræfum og austur að Höfn í Hornafirði í nótt. 

Lægja á og stytta upp í fyrramálið, fyrst vestantil. Verður veður orðið skaplegt á Holtavörðuheiði um sjö um morgun og um landið suðaustanvert um hádegi. 

Gul veðurviðvörun er í gildi fyrir Breiðafjörð, Vestfirði, Strandir og Norðurland vestra, Norðurland eystra, Austurland að Glettingi, Austfirði, Suðausturland og Miðhálendi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert