Hefðu átt að stoppa byssumanninn eftir þrjár mínútur Kjartan Kjartansson skrifar 21. júní 2022 15:42 Börnin sem voru myrt í Uvalde voru á aldrinum níu til ellefu ára. Tveir kennarar á fimmtugsaldri féllu einnig í árásinni. AP/Eric Gay Yfirmaður almannavarna í Texas segir að lögreglumenn sem brugðust við skotárásinni í Robb-grunnskólanum í Uvalde í síðasta mánuði hefðu átt að geta stöðvað byssumanninn þremur mínútum eftir að hann réðst inn í skólann. Viðbrögð lögreglu hafi verið „ömurlegt klúður“.
Lögreglan í Uvalde hefur setið undir harðri gagnrýni fyrir viðbrögð sín við skotárásinni sem kostaði nítján börn og tvo kennara lífið 24. maí. Heil klukkustund leið frá því að lögreglumenn komu á vettvang þangað til þeir réðust inn í skólastofu og skutu byssumanninn til bana. Á meðan reyndu börnin inni í stofunni í örvæntingu að hringja í neyðarlínu og biðja um hjálp. Steve McCraw, yfirmaður almannavarna Texas, bar vitni fyrir nefnd öldungadeildar ríkisþings Texas, um árásina og viðbrögð lögreglu við henni í dag. Þar sagði hann viðbrögðin hafa verið hörmulegt klúður. Þremur mínútum eftir að byssumaðurinn kom inn í skólann hafi nógu margir lögreglumenn verið komnir á staðinn til þess að stöðva hann. Þess í stað biðu vopnaðir lögregluþjónarnir úti á gangi í um klukkustund. Það var á endanum sérsveit landamæravarða sem réðst inn og skaut morðingjann. McCraw sagði ennfremur að Pete Arredondo, lögreglustjóri Uvalde-skólaumdæmisins og yfirmaður aðgerða á vettvangi, hefði kosið að setja líf lögreglumanna sinna ofar lífum barnanna í skólanum. Alríkis- og ríkisyfirvöld í Texas rannsaka nú viðbrögð lögreglunnar við skotárásinni. Voru ekki í talstöðvarsambandi Fjölmiðlar í Texas komust yfir upptökur af árásinni og birtu fréttir sem byggðust á henni og fleiri gögnum í gær. Samkvæmt upplýsingum þeirra kom byssumaðurinn inn í skólann klukkan 11:33 að staðartíma. Ellefu lögreglumenn voru komnir á staðinn innan þriggja mínútna. Lögreglumaður með skotheldan skjöld mætti þangað klukkan 11:52. Arredondo hafði áður sagt fjölmiðlum að byssumaðurinn hefði haldið uppi stanslausri skothríð á lögreglumenn sem hafi aðeins verið vopnaðir skammbyssum. Lögreglustjórinn virðist hafa gert tilraun til þess að ræða við byssumanninn, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC. Það var ekki fyrr en klukkan 12:50 sem lögreglumenn brutust inn í skólastofuna þar sem morðinginn hafði hreiðrað um sig. Komið hefur fram að Arredondo hafi ekki fengið upplýsingar um símtöl barnanna í neyðarlínu á meðan á umsátrinu stóð. Hann hafi því staðið í þeirri trú að ekki væri lengur virk hætta af byssumanninum. Sjálfur hefur hann sagt að hann hafi ekki litið á sig sem yfirmann á vettvangi og að hann hafi búist við því að einhver annar stýrði aðgerðunum. McCraw staðfestir á nefndarfundinum í ríkisþingi Texas í dag að Arredondo hefði ekki verið með talstöð sína á sér. Þar að auki hafi talstöðvar lögreglumanna ekki virkað inni í skólanum. Aðeins talstöðvar landamæravarðanna hafi virkað þar. Þá sagði McCraw að ekki hafi verið hægt að læsa hurðinni á skólastofunni þar sem morðinginn var innilokaður með börnunum. Það stangast á við fullyrðingar um að landamæraverðir hafi þurft að fá lykil hjá húsverði til að komast loks inn í skólastofuna.
Skotárás í grunnskóla í Uvalde Skotárásir í Bandaríkjunum Bandaríkin Tengdar fréttir Kennari í Uvalde segir lögreglumenn „raggeitur“ Lögreglumenn sem biðu í klukkustund áður en þeir létu loks til skarar skríða á meðan byssumaður myrti nítján börn og tvo kennara í bænum Uvalde í Texas eru „raggeitur“, að sögn kennara sem særðist í árásinni. Hann segist aldrei geta fyrirgefið lögreglunni. 8. júní 2022 12:30 Segja að lögreglustjórinn hafi ekki verið látinn vita af örvæntingarfullum símtölum nemendanna Lögreglustjórinn sem stýrði aðgerðum þegar byssumaður skaut nítján börn og tvo kennara til bana í Texas var ekki látinn vita af því að börn sem væru föst inni í skólastofu með honum hefðu hringt í neyðarlínu. Viðbrögð lögreglu hafa sætt harðri gagnrýni. 3. júní 2022 09:15 Nafngreina börnin og kennarana sem voru myrtir í Uvalde: „Ég missti hluta af hjarta mínu“ Börnin nítján og kennararnir tveir sem voru myrtir í skotárás í Robb-grunnskólanum í Texas í síðustu viku hafa nú verið nafngreindir. Yngsta barnið var níu ára gamalt en það elsta ellefu ára. 29. maí 2022 10:38 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið María Sigrún látin fara úr Kveik Innlent Svona var stemmningin á lokaspretti forsetaefnanna í Hörpu Innlent Svona var Pallborðið með Arnari Þór, Ásdísi Rán og Ástþóri Innlent Dregur framboðið til baka Innlent „Ef ég get flogið þremur gerðum af þyrlum þá get ég tekið ákvörðun fyrir þjóðina“ Innlent Ætlar í aðra undirskriftasöfnun Innlent „Ísdrottningin myndi bráðna ef hér kæmi kjarnorkusprengja“ Innlent „Þessi ákvörðun var ekki tekin í Valhöll“ Innlent Viktor stal senunni: Hefði ekki haft tíma til að safna ef hann væri í vinnu Innlent Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Erlent Fleiri fréttir Rýma dómshús vegna sprengjuhótunar Dómstóll fyrirskipar handtöku landbúnaðarráðherra Selenskís Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Dómi Harvey Weinstein snúið við Tekur fyrir að hafa verið „hermaður Hitlers“ Maður á sextugsaldri sagður hafa stungið grunnskóladreng Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Fyrstu hergögnin eiga að berast til Úkraínu á næstu klukkustundum Segir ekki af sér þrátt fyrir njósnir aðstoðarmannsins Aðstoðarvarnarmálaráðherra ákærður fyrir mútuþægni Upptök eldsins í gömlu kauphöllinni enn ókunn Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní Handtóku barnunga öfgamenn eftir stunguárás í Sydney Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Öldungadeildin samþykkti 95 milljarða dala aðstoð við Úkraínu, Ísrael og Taívan Reyna að sigla um geiminn á geislum sólarinnar Lýsa yfir áhyggjum af fregnum af fjöldagröfum á Gasa Fá aftur gögn frá tæplega hálfrar aldar gömlu geimfari Umdeildur flutningur á hælisleitendum til Rúanda samþykktur Starfsmaður hægrijaðarflokks handtekinn fyrir njósnir fyrir Kína Gera alvarlegar athugasemdir við verðlaunakerfi Tik Tok Tugir handteknir á mótmælum háskólanema gegn aðgerðum Ísraels Undirbúa stærðarinnar sendingar til Úkraínu Engin sönnunargögn bendla UNRWA við árásina Hættu við umfangsmiklar árásir á Íran Sjá meira
Kennari í Uvalde segir lögreglumenn „raggeitur“ Lögreglumenn sem biðu í klukkustund áður en þeir létu loks til skarar skríða á meðan byssumaður myrti nítján börn og tvo kennara í bænum Uvalde í Texas eru „raggeitur“, að sögn kennara sem særðist í árásinni. Hann segist aldrei geta fyrirgefið lögreglunni. 8. júní 2022 12:30
Segja að lögreglustjórinn hafi ekki verið látinn vita af örvæntingarfullum símtölum nemendanna Lögreglustjórinn sem stýrði aðgerðum þegar byssumaður skaut nítján börn og tvo kennara til bana í Texas var ekki látinn vita af því að börn sem væru föst inni í skólastofu með honum hefðu hringt í neyðarlínu. Viðbrögð lögreglu hafa sætt harðri gagnrýni. 3. júní 2022 09:15
Nafngreina börnin og kennarana sem voru myrtir í Uvalde: „Ég missti hluta af hjarta mínu“ Börnin nítján og kennararnir tveir sem voru myrtir í skotárás í Robb-grunnskólanum í Texas í síðustu viku hafa nú verið nafngreindir. Yngsta barnið var níu ára gamalt en það elsta ellefu ára. 29. maí 2022 10:38