Tækifæri til að stjórna skemmtiferðaskipi

Leikurinn krefst góðrar skipulagningar.
Leikurinn krefst góðrar skipulagningar. Skjáskot/Steam

Í dag kemur á markað leikurinn Cruise Ship Manager. Leikurinn gengur út á að sinna skemmtiferðaskipi, plana ferðir, bóka farþega, halda skemmtanir og reka skipið vel.

Í leiknum þarf spilari að velja hönnun á skipinu og mikilvægt er að ráða inn rétta starfsfólkið því það getur skipt sköpum um hvort hægt er að halda rekstrinum gangandi.

Hugsa þarf vel um farþega skipsins, það þarf að halda úti veitingastöðum og skemmtistöðum, verslunum og sjá til þess að herbergin séu flott og hrein. 

Svo geta slysin gerst. Spilari þarf að velja bestu ferðalögin en plana aðeins fram í tímann, hvað gerist ef maturinn klárast, kviknar í eða farþegi dettur fyrir borð?

Leikurinn er aðgengilegur á leikjanetversluninni Steam fyrir borðtölvur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert