Pepsi Max deild karla á að byrja um páskana samkvæmt fyrstu drögum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. nóvember 2021 10:01 Víkingar fagna Íslandsmeistaratitli sínum. Vísir/Hulda Margrét Fyrstu drög af Pepsi Max deildinni sýna að mjög sérstakt Íslandsmót er framundan í fótboltanum.
Efsta deild karla lengist talsvert í báða enda á næsta ári en fyrstu drög af Pepsi Max deild karla í fótbolta voru opinberuð á árlegum formanna- og framkvæmdastjórafundi Knattspyrnusambands Íslands um helgina. KSÍ segir frá þessu á heimasíðu sínni. Það er ljóst að deildin hefur aldrei byrjað fyrr á árinu og aldrei endað seinna á árinu fari svo að nýtt fyrirkomulag verði tekið upp næsta sumar. Pepsi Max deildin á að byrja 18. apríl, það verður þriggja vikna landsleikjahlé á henni í júní, spilað á þriðjudeginum eftir Verslunarmannahelgi og öll úrslitakeppnin verður síðan spiluð á helgum í október. Drögin eru sett upp með þeim formerkjum að spiluð verði tvöföld umferð með tólf liðum en að svo taki við úrslitakeppni með efri og neðri hluta þar sem er einföld umferð. Sex félög verða í efri hlutanum og sex félög í neðri hlutanum en félögin taka með sér stigin úr fyrri hluta mótsins. Það á eftir að samþykkja þá breytingu á ársþingi KSÍ í febrúar á næsta ári. Fyrstu drög að Íslandsmótinu í knattspyrnu 2022.KSÍ Í stað þess að verða 22 leikir í deildinni eins og í sumar munu liðin væntanlega spila 27 leiki næsta sumar. Lið sem enda númer eitt, tvö og þrjú í deildarkeppninni fá þrjá heimaleiki alveg eins og lið númer sjö, átta og níu í neðri hlutanum. Auk breytinga á deildinni sjálfri þá eru landsleikjagluggar karla með öðrum hætti en venjulega. Birkir Sveinsson hjá KSÍ fór um helgina yfir drögin að Íslandsmótinu eins og þau líta út núna en mestu breytingarnar eru auðvitað á Pepsi Max deild karla. Pepsi Max deild kvenna er einnig að vinna með það að það er Evrópumót hjá íslenska kvennalandsliðinu í Englandi í sumar og af þeim sökum verður ekkert spilað í deildinni frá 19. júní til 28. júlí. Þetta kallar á það að kvennadeildin mun ekki klárast fyrr en 2. október eða seinna en nokkurn tímann áður. Þegar kemur að Pepsi Max deild karla þá er fyrsta umferðin sett á annan í páskum en efsta deild karla í fótbolta hefur aldrei byrjað áður fyrir 26. apríl. Deildin þarf að glíma við það að íslenska karlalandsliðið mun spila fjóra leiki í Þjóðadeildinni í júní og þess vegna verður risalandsleikjahlé frá 30. maí til 14. júní. Fyrstu leikir eftir hlé eru bikarleikir og það munu því líða þrjár vikur á milli leikja í Pepsi Max deildinni eða frá 29. maí til 19. júní. Það þarf að nýta alla möguleika leikdaga og leikmenn munu því ekki fá mikið frí um Verslunarmannahelgi. Leikir hafa verið sett á þriðjudeginum eftir dag Verslunarmanna. Deildarkeppnin klárast með 22. umferðinni 17. september og við tekur síðan landsleikjafrí til 27. september. Úrslitakeppnin hefst síðan 1. október og fimmta og síðasta umferð hennar verður 29. október. Allir leikir í úrslitakeppninni munu fara fram um helgar og um leið þá í beinni samkeppni við leiki ensku úrvalsdeildinni. Á þessum tíma verður orðið það dimmt á Íslandi að allir leikir verða að hefjast snemma um daginn á þeim leikvöllum þar sem ekki er flóðlýsing.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Aðstoðardómarinn bað Bæjara afsökunar: „Þetta er hörmung“ Fótbolti Færeyingar hársbreidd frá fyrsta heimsmeistaramótinu Handbolti Uppgjörið: Ísland - Eistland 50-25 | Stigu bensínið í botn frá fyrstu mínútu Handbolti „Þegar ég var sjö ára í Birmingham dreymdi mig um svona kvöld“ Fótbolti Þakklátur eftir fyrsta landsleikinn: „Tek bara einn dag fyrir í einu“ Handbolti „Ekkert sjálfgefið að valta yfir lið“ Handbolti „Ánægður að við sýndum þá hlið að við getum verið góðir í sextíu mínútur“ Handbolti „Á flestum sviðum körfuboltans voru þeir bara betri en við“ Körfubolti Stuðningurinn ómetanlegur: „Farið í dýpstu leyndarmálin“ Sport „Eitthvað sem þær þurfa að svara fyrir á fundi á morgun“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Valur 1-2 | Meistararnir komu til baka suður með sjó „Eitthvað sem þær þurfa að svara fyrir á fundi á morgun“ Uppgjörið og viðtöl: FH - Þróttur 1-0 | Sigurmark á 96. mínútu Uppgjörið og viðtöl: Breiðablik - Stjarnan 5-1| Blikar kláruðu dæmið í fyrri hálfleik „Spáin hjálpar okkur frekar en eitthvað annað“ Gummi Ben og félagar tímamældu leiktafir KR-ingsins Arnar í tveggja leikja bann Aðeins einn uppalinn Valsmaður í Bestu deild karla „Maður hefur verið milli tannanna á fólki síðan maður var ungur“ „Tveir Víkingar? Ég er bara hissa“ Adam hundfúll og Arnar beint í símann Vatnstjónið vísar Stólum til Akureyrar Segir að Viðar hafi ekki mætt á æfingu á leikdegi Sjáðu aukaspyrnumark Gylfa, umdeildan rangstöðudóm og rauðu spjöldin „Arnar fór langt yfir strikið“ en nafni hans oftar með dónaskap Uppgjör, viðtöl og myndir: Breiðablik - Valur 2-3 | Manni færri héldu gestirnir út Lýkur Gylfi markaþurrð Vals á Kópavogsvelli? Nánast uppselt á leik kvöldsins Öll mörkin í gær: Sjáðu hvernig HK vann meistarana og kóngurinn komst á blað Stórfurðuleg atburðarás þegar markvörður KR sá rautt „Ég vona innilega að ég sé ekki að væla of mikið“ „Ólíkir okkur að mörgu leyti“ Uppgjör: HK - Víkingur 3-1 | Botnliðið lagði meistarana og Arnar sá rautt Uppgjör og viðtöl: Fram - Fylkir 2-1 | Heimamenn upp í þriðja sætið „Hef aldrei séð markmann fá gult spjald fyrir leiktöf eftir átta sek“ „Er með góða tilfinningu eftir að hafa komið til baka“ Uppgjörið: Stjarnan - ÍA 4-1 | Þriðji sigur Stjörnunnar í röð Uppgjör og viðtöl: KA-KR 1-1 | Smit stal fyrirsögnunum enn og aftur Sjáðu Andra Rúnar opna reikninginn og mörkin sem færðu FH sigur Segir að móðurhlutverkið hafi gert sig að betri leikmanni Sjá meira