Svakalegur árekstur í ræsingunni á Silverstone - Alfa Romeo bíll lenti á hvolfi Árni Jóhannsson skrifar 3. júlí 2022 15:20 Zhou Guanyu lenti hörðum árekstri en virðist hafa sloppið án teljandi meiðsla GETTY IMAGES Breski kappaksturinn fór af stað með miklum látum í dag en eftir að Max Verstappen náði fyrsta sætinu strax af Sainz þá varð árekstur aftar á ráspólnum sem gerði það að verkum að kappakstrinum seinkaði um tæpa klukkustund. Zhou Guanyu lenti verst í árekstrinum en slapp við alvarleg meiðsli.
Strax í fyrstu beygjunni varð mikill troðningur á milli bíla og lenti George Russell og Pierre Gasly í árekstri og Russell lenti aftan á Zhou Guanyu með þeim afleiðingum að Alfa Romeo bíll Zhou í veltu og rann á hvolfi út fyrir brautina. Svo mikill var hraðinn Alfa Romeo bíllinn lenti í mölinni og flaug yfir öryggisvegginn. Rauðu flaggi var veifað og hætta þurfti kappakstrinum á meðan Zhou var sinnt og brautin hreinsuð. Einnig lentu Sebastian Vettel og Alex Albon í árekstri sem varð til þess að Albon var fluttur á sjúkrahús. Zhou Guanyu var fluttur með hraði á sjúkrahús en eins og kemur fram hjá Sky Sports er hann með meðvitund og byrjaður að hreyfa sig. View this post on Instagram A post shared by Sky Sports (@skysports) Kappaksturinn hófst síðan aftur og er í gangi þegar þessi frétt er skrifuð. Carlo Sainz er í forystu og Charles Leclerc er í öðru sæti en þeir eru báðir á Ferrari. Max Verstappen hefur lent tjóni og hrunið niður í sjötta sæti en Lewis Hamilton er í því þriðja. Zhou Guanyu á leiðinni á mölina á hvolfi. Halo hringurinn sannaði gildi sitt í dag.GETTY IMAGES Svona endaði Zhou Guanyu milli girðingar og öryggisveggsins eftir flugferðina.GETTY IMAGES
Formúla Mest lesið Úr húsvarðarstarfi í atvinnumennsku Handbolti Slys á æfingu fyrir fjórum árum er enn að eyðileggja fyrir Söru Sport Rooney segir United losa sig við nær allan leikmannahópinn Enski boltinn Fabiana brýtur blað í sögunni áður en Jói Kalli tekur við Fótbolti Man. United sagði konunum ekki frá ákvörðuninni Enski boltinn Blaðamannafundur fyrir úrslitaleik Vals í Evrópubikarnum Handbolti UEFA setur pressu á City Football Group Fótbolti Neitaði að svara spurningum um skilnaðinn Sport Þriðji markahæsti landsliðsmaðurinn leggur skóna á hilluna Fótbolti Einbeitir sér að því að komast í NBA frekar en að spila með pabba sínum Körfubolti Fleiri fréttir Hefur hjálpað Haas með glæfralegum akstri Fimm ára bið á enda hjá Norris Loksins landaði Lando sigri í Formúlu 1 Vatnaskil hjá Red Bull og risafréttir fyrir Formúlu 1 Skilur af hverju fólk hættir að horfa á leiðinlega Formúlu 1 Verstappen vann í Kína Verstappen átján sætum á undan Hamilton á ráspólnum á morgun Hamilton segir enn langt í það að hann hætti Verstappen aftur á sigurbraut eftir árekstur á fyrsta hring Liðsfélagarnir fremstir eftir tímatökur í Japan Fjórfaldi heimsmeistarinn íhugar að hætta við að hætta Eigandi Formúlu 1 festir kaup á MotoGP Sjá meira