Völdu Lukaku mann leiksins - erfiður andstæðingur

Sverrir Ingi Ingason og Romelu Lukaku í baráttu í leiknum …
Sverrir Ingi Ingason og Romelu Lukaku í baráttu í leiknum í kvöld. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Belgar völdu Romelu Lukaku mann leiksins í viðureigninni gegn Íslandi í Þjóðadeildinni í fótbolta á Laugardalsvellinum í kvöld.

Það kemur ekki á óvart enda skoraði framherjinn kraftmikli bæði mörk Belga í 2:1 sigrinum sem fleytti þeim á topp 2. riðils A-deildarinnar.

Það er twitter-síða sambandsins sem stendur fyrir útnefningunni en viðbrögð þeirra og nokkurra leikmanna má sjá hér fyrir.

„Þrjú stig gegn erfiðum andstæðingi," segir varnarmaðurinn öflugi Toby Alderweireld.






mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert