Bóluefni dreift til fátækari ríkja

Róbert Wessman, stofnandi og stjórnarformaður Alvotech og forstjóri Alvogen, og …
Róbert Wessman, stofnandi og stjórnarformaður Alvotech og forstjóri Alvogen, og Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi. Ljósmynd/UNICEF/Steindór

Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, og Róbert Wessman, stofnandi og stjórnarformaður Alvotech og forstjóri Alvogen, hafa skrifað undir samstarfssamning þess efnis að fyrirtækin gefa 100 þúsund bandaríkjadali, eða rúmar 12,7 milljónir króna, til baráttu UNICEF við kórónuveiruna.

Stuðningurinn verður nýttur í þátttöku samtakanna í COVAX-samstarfinu þar sem UNICEF gegnir lykilhlutverki í að koma bóluefnum til yfir 90 lág- og millitekjuríkja að því er segir í tilkynningu.

„Það hefur sérstaka þýðingu fyrir okkur hjá Alvo-fyrirtækjunum að taka þátt í þessu mikilvæga verkefni og fellur einstaklega vel að hlutverki okkar að bæta líf og heilsu einstaklinga úti um allan heim og auka aðgengi að hágæðalyfjum, óháð búsetu og efnahag. Það var líka einstaklega ánægjulegt að kynna stuðning okkar við verkefnið á fundi með yfir 2.000 starfsmönnum Alvo-fyrirtækjanna um allan heim í dag. Ég vil, fyrir hönd starfsmanna fyrirtækjanna, þakka UNICEF og COVAX fyrir þeirra mikilvæga starf og fyrir að gefa okkur tækifæri á að leggja þeim lið,“ sagði Róbert eftir að samningurinn var undirritaður samkvæmt fréttatilkynningu.

„Við erum Alvo-fyrirtækjunum innilega þakklát fyrir þennan mikilvæga stuðning. Kórónuveirunni verður ekki útrýmt nema við útrýmum veirunni í öllum löndum heimsins. Vernda þarf þá staði sem hafa veikustu heilbrigðiskerfin og tryggja að enginn verði skilinn eftir í baráttunni gegn heimsfaraldrinum. Það er markmið verkefnisins,“ segir Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, í fréttatilkynningu.

Á hverju ári bólusetur UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, hátt í helming allra barna í heiminum. Þrátt fyrir að COVAX-samstarfið snúist ekki um að bólusetja börn nýtir UNICEF nú sérþekkingu sína í bólusetningum til að takast á við þetta sögulega verkefni enda hefur veiran umturnað lífi barna um allan heim. „Sú ábyrgð sem UNICEF hefur verið falin við að bólusetja heimsbyggðina gegn COVID-19 bætist ofan á öll önnur reglubundin neyðarverkefni UNICEF fyrir börn og því er stuðningurinn verulega þýðingarmikill,“ segir Birna enn fremur í tilkynningu.

Markmið COVAX-samstarfsins er að tryggja tvo milljarða skammta af bóluefnum fyrir lok ársins 2021. Eftir margra mánaða undirbúning eru bóluefni, sprautur og annar búnaður farin að berast. Bóluefni á vegum COVAX-samstarfsins hefur nú meðal annars borist til Ghana, Fílabeinsstrandarinnar, Kambódíu, Súdan, Rúanda og Senegal. Fleiri ríki munu bætast í hópinn á næstu dögum og vikum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert