Tryggvi vann óvæntan sigur á Martin

Martin Hermannsson og Tryggvi Snær Hlinason í leik gegn Portúgal …
Martin Hermannsson og Tryggvi Snær Hlinason í leik gegn Portúgal í Laugardalshöllinni fyrir fjórum árum. mbl.is/Hari

Tryggvi Hlinason og liðsfélagar hans í Zaragoza unnu óvæntan sigur á Martin Hermannsyni og félögum hans í Valencia í spænsku ACB-deildinni í kvöld. 

Leiknum lauk með 11 stiga sigri Zaragoza, 86:75. Tryggvi setti fimm stig og tók sex fráköst á 22. mínútum spiluðum. Martin, sem er að ná sér eftir krossbandsslit, spilaði 19 mínútur í dag og setti tvö stig, tók tvö fráköst og gaf fimm stoðsendingar. 

Valencia er í áttunda sæti deildarinnar með 26 stig en Zaragoza er í 12. sæti með 18. 

Ægir Þór Steinarsson var drjúgur í tapi Alicante fyrir Estudiantes, 65:70, í B-deild Spánar í kvöld. 

Ægir setti 14 stig, tók fimm fráköst og gaf eina stoðsendingu. Alicante er í níunda sæti deildarinnar með 40 stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert