Deilum innan Hundaræktarfélagsins vísað frá héraðsdómi Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 24. janúar 2022 15:31 Deilum innan Hundaræktarfélagsins var vísað frá Héraðsdómi í dag. Getty Máli tveggja ræktenda gegn Hundaræktarfélagi Íslands og fulltrúum siðanefndar félagsins var vísað frá Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Að mati héraðsdóms voru margar dómkrafna bæði óskýrar og vanreifaðar og ræktendunum því gert að greiða félaginu málskostnað.
Málið má rekja til þess að ræktendurnir tveir voru með bráðabirgðaúrskurði siðanefndar Hundaræktarfélagsins útilokaðir frá allri þátttöku í starfi félagsins og frá því að gegna dómarastörfum og öðrum trúnaðarstörfum fyrir félagið í þrjá mánuði. Úrskurðurinn byggðist á kæru stjórnar Hundaræktarfélagsins til siðanefndar þess, vegna þess að röng tík hafði verið skráð vísvitandi á eitt, tvö eða þrjú vottorð í umsókn um ættbókarskráningu tiltekinna gota. Þá hafi ræktendurnir sömuleiðis ekki mætt með hunda úr ræktun sinni til sýnatöku til sönnunar á ætterni, neitað að gefa upp upplýsingar og svarað fyrirspurnum framkvæmdastjóra með útúrsnúningum. Þá hefðu þeir sömuleiðis tilkynnt félaginu eigendaskipti á tiltekinni tík, sem hafði verið aflífuð nokkru áður. Ræktendurnir hefðu með þessu reynt að láta svo líta út sem sambýlismaður annars þeirra væri eigandi tíkarinnar, sem hafði verið aflífuð, svo hann fengi atkvæðisrétt á aðalfundi Schäfer-deildar félagsins. Þá hafi ræktendurnir einnig verið með aðdróttanir í garð framkvæmdastjóra félagsins, sakað hann um einelti og húsbrot og auk þess hafi þeir reynt að para rakka við tík sem ekki var ættbókarfærð hjá félaginu. Ræktendurnir kröfuðst þess við héraðsdóm að bráðabirgðaúrskurður siðanefndar vegna þessara mála yrði dæmdur ólögmætur. Þá var þess krafist að útgefnar og greiddar ættbækur tíkar í eigu ræktendanna, yrðu úrskurðaðar eign skráðra hundaeigenda en ekki eign Hundaræktarfélagsins. Málið er enn til umfjöllunar hjá siðanefnd Hundaræktarfélagsins. Hundaræktarfélagið byggði mál sitt að miklu leyti á því að stefnan væri vanreifuð. Málatilbúnaður hafi verið óljós og erfitt væri að átta sig á þýðingu lagatilvísana í stefnu fyrir úrlausn málsins. Þá sneri bráðabirgðaúrskurðurinn að innri málefnum félagsins og ætti hann ekki undir lögsögu dómstóla. Auk þess væri úrskurðurinn fallinn úr gildi. Dómurinn féllst ekki á kröfur ræktendanna og vísaði málinu frá. Ræktendunum var þó gert að greiða málskostnað Hundaræktarfélagsins. Mynd sem áður fylgdi fréttinni sýndi hunda sem ekki tengjast málinu. Myndinni hefur verið skipt út fyrir ótengda mynd og er beðist forláts á þessu.
Dómsmál Hundar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Innlent „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Innlent Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent Búast má við slyddu Veður Ný sýn fékk meirihluta Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Innlent Frestun verkfalla kemur til greina Innlent „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Innlent Ísraelsmenn vísa fréttamönnum á dyr Erlent Fleiri fréttir Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Tíðindi í kjaradeilu flugvallarstarfsmanna og bein útsending úr Bakgarðshlaupinu Frestun verkfalla kemur til greina „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Sáttasemjari boðar til fundar: Fimm dagar til stefnu Orkuskipti, innflytjendalöggjöf og bensínstöðvalóðirnar „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Ný sýn fékk meirihluta Slagsmál enduðu með nefbroti Bíll logaði í Vesturbænum „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi „Ég get ekki annað en sagt satt“ Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Sólríkasta byrjun árs í Reykjavík í 77 ár Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Sjá meira