Aldrei fleiri íslenskar myndir á dagskrá RIFF Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 21. september 2021 18:30 RIFF teymið ásamt sjálfboðaliðum á blaðamannafundinum í dag. RIFF Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík, RIFF, hefst með krafti í næstu viku, fimmtudaginn 30. september. Miðasalan opnaði formlega í dag á vef hátíðarinnar, www.riff.is en þar er hægt að kaupa hátíðarpassa og staka miða.
Á blaðamannafundi á upplýsinga- og gestastofu RIFF í dag, kom fram að kynjahlutfall leikstjóra í ár er nánast jafnt. Sýndar eru myndir frá 61. landi og hafa aldrei verið sýndar fleiri íslenskar myndir á hátíðinni. RIFF stækkar með hverju ári og þykir ein áhugaverðasta kvikmyndahátíðin í Evrópu. Til að setja stærð hátíðarinnar í samhengi voru sýndar innan við tuttugu myndir á fyrstu RIFF hátíðinni en nú eru þær hátt í hundrað. Hrönn Marinósdóttir, framkvæmdastjóri RIFF, kynnti dagskrá hátíðarinnar fyrir fjölmiðlum í dag.RIFF Opnunarmyndin í ár er Versta manneskja í heimi eftir Normanninn Joachim Trier, sem vakið hefur mikla athygli frá frumsýningu á kvikmyndahátíðinni í Cannes fyrrí sumar. Hátíðinni lýkur 10. október með sýningu myndarinnar Margrét fyrsta, þar sem danska stórleikkonan Trine Dyrholm túlkar fyrsta kvenkyns þjóðhöfðingja Norðurlanda. Trier og Dyrholm eru bæði meðal heiðursgesta hátíðarinnar. Fjórir erlendir heiðursgestir á leið til landsins Hátíðin er nú haldin í átjánda sinn og samanstendur dagskráin af 85 myndum í fullri lengd frá 61 landi. Þar að auki er sýndur fjöldi stuttmynda og sérstök barnadagskrá. Af myndum hátíðarinnar eru 41 Norðurlandafrumsýningar, átta Evrópufrumsýningar og tólf heimsfrumsýningar. Hátíðin leggur sig fram við að velja verk kvenna í dagskránna og eru 46 prósent kvikmyndanna eftir kvenkyns leikstjóra í ár. Það vakti líka athygli blaðamanns að aldrei hafa fleiri Íslenskar kvikmyndir verið sýndar á RIFF. RIFF frumsýnir sjö íslenskar myndir í fullri lengd sem telst vera met, í flokknum Ísland í sjónarrönd. Opnunarmynd flokksins er Wolka, síðasta mynd leikstjórans Árna Óla Ásgeirsson, sem féll frá á árin,u en honum til heiðurs verða sérstakar sýningar á höfundarverki hans. Upplýsinga- og gestastofa RIFF í ár er í gamla Geysishúsinu á Aðalstræti.RIFF Heiðurgestir hátíðarinnar eru fjórir eins og komið hefur fram síðustu daga. Heiðursgestirnir í ár eru tónlistarkonan Debbie Harry (Blondie), danska leikkona Trine Dyrholm, norski leikstjórinn Joachim Trier, og franski leikstjórinn Mia Hansen-Løve. Svo verður minningardagskrá um tvo kæra vini hátíðarinnar, þá Dimitri Eipides, fyrrum dagskrárstjóra RIFF, og Árna Óla Ásgeirsson, kvikmyndaleikstjóra, sem féllu frá á þessu ári. Vel heppnuð RIFF HEIMA Framkvæmdastjóri RIFF tilkynnti stolt að RIFF HEIMA verður aftur í boði í ár, svo þeir sem ekki eiga heimangengt, búa á landsbyggðinni eða eru í fangelsi, á sjúkrahúsi eða annars staðar, geta nú horft á RIFF myndir án þess að mæta í Bíó Paradís þar sem flestar sýningarnar fara fram, fyrir utan sérviðburði eins og til dæmis í bílabíó, bíó í helli, sýning ofan í sundlaug og í Hörpu. Auglýsingar fyrir RIFF hátíðina má nú sjá um alla borgina.RIFF Samhliða hátíðinni verður stóri hluti dagskrárinnar aðgengilegur á netinu, í gegnum RIFF HEIMA. Þetta var prófað í fyrsta skipti á síðasta ári vegna heimsfaraldursins og þar sem þetta fékk svo jákvæð viðbrögð var ákveðið að endurtaka leikinn í ár. Auk bílabíós, hellabíós, sundbíós og tónleikasýningar á Joker eru margir fleiri sérviðburðir á dagskrá. Í flokknum Nýjasta tækni og kvikmyndir, verða á boðstólnum spennandi nýjungar í kvikmyndagerð, sýndarveruleika, gagn auknum veruleika og tölvuleikjum. Saga Borgarættarinnar, fyrsta kvikmyndin sem tekin er upp á Íslandi, er sýnd í nýrri endurbættri útgáfu og tónlistarkonan Björk þeytir skífum á Hannesarholti, svo eitthvað sé nefnt. Átta myndir keppa um gullna lundann Keppnisflokkur hátíðarinnar nefnist Vitranir. Eins og komið hefur fram hér á Vísi keppa þar átta kvikmyndir eftir upprennandi höfunda um aðalverðlaun hátíðarinnar, Gullna lundann. Um er að ræða fyrsta eða aðra mynd höfunda og þannig er þetta mikil hvatning fyrir upprenandi kvikmyndahöfunda. Verðlaunin hafa verið veitt frá 2005 og leggur hátíðin á þennan máta áherslu á framsækna og unga kvikmyndagerðarmenn. Jafnt kynjahlutfall er meðal leikstjóra flokksins. Aðrir rótgrónir dagskrár flokkar eru Fyrir opnu hafi, Heimildarmyndir og Önnur framtíð. Myndir þessa flokka eiga það sammerkt að vera splunkunýjar, margar hverjar voru frumsýndar á fremstu kvikmyndahátíðum veraldar, í Cannes, Feneyjum, Tribeca, Toronto meðal annars og endurspegla það besta sem alþjóðleg kvikmyndagerð hefur uppá að bjóða. Aðra framtíð skipa heimildarmyndir sem einblína á samfélagslega mikilvæg málefni eins og umhverfismál, hinsegin mál og jafnréttisbaráttu. Einnig eru veitt verðlaun í þeim flokki. Þess má geta að 80 prósent mynda í flokknum eru eftir kvenkyns leikstjóra. Á fundinum í dag var talað um að um tíu prósent þjóðarinnar mæti á RIFF á hverju ári, ef horft er á fjölda gesta.RIFF Dómnefndir hátíðar í ár: Vitranir: Yorgos Krassakopoulos, Trine Dyrholm, leikkona, Gagga Jóns, Anita Briem, Gísli Örn Garðarsson. Önnur framtíð: Guillaume Calop, Marie Zeniter, Silja Hauksdóttir. Alþjóðlegar stuttmyndir: Sonja Wyss, Ninna Pálmadóttir, Óskar Páll . Íslenskar stuttmyndir: Nathalie Mierop, Þóra Björg Clausen, Anton Máni Svansson. Gullna eggið: Vincent Boy Kars, Halldóra Geirharðsdóttir, Rúnar Rúnarsson. Dómnefnd unga fólksins, skipuð í fyrsta sinn á RIFF.: Markús Loki Gunnarsson, Sigtýr Ægir Kárason, Snædís Björnsdóttir, Katla Gunnlaugsdóttir, Kolbrún Óskarsdóttir. Alla umfjöllun Lífsins um RIFF í ár má finna HÉR á Vísi.
Bíó og sjónvarp RIFF Reykjavík Kvikmyndagerð á Íslandi Tengdar fréttir Myndirnar sem keppa um Gullna lundann á RIFF í ár „Átta splunkunýjar myndir keppa um Gullna lundann, aðalverðlaun RIFF í ár. Myndirnar koma frá átta löndum, og er umfjöllunarefni þeirra og efnistök einstaklega spennandi í ár,“ segir í tilkynningu frá RIFF 17. september 2021 20:58 Joachim Trier og Mia Hansen - Löve hljóta heiðursverðlaun RIFF á Bessastöðum Kvikmyndaleikstjórarnir Joachim Trier frá Noregi og Mia Hansen - Löve frá Frakklandi hljóta heiðursverðlaun RIFF í ár fyrir framúrskarandi listræna sýn. 16. september 2021 18:00 Trine Dyrholm mætir á frumsýningu Margrétar fyrstu á RIFF Margrét fyrsta eða MARGRETE DEN FØRSTE er lokamynd RIFF Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í í Reykjavík í ár. Hátíðin verður haldin í átjánda sinn þann 30. september og stendur til 10. október. 16. september 2021 14:06 Síðasta mynd Árna Ólafs verður opnunarmynd flokksins Ísland í sjónarrönd á RIFF „Síðasta mynd hins ástkæra leikstjóra Árna Ólafs Ásgeirssonar sem lést fyrr á þessu ári verður frumsýnd sem opnunarmynd flokksins Ísland í sjónarrönd á RIFF sem hefst í lok mánaðar,“ segir í nýrri tilkynningu frá RIFF. 13. september 2021 10:32 Mest lesið Nígeríusvindlarinn reyndist vera bróðir hans Lífið Arkitekt dýrasta húss Íslandssögunnar selur í Fossvogi Lífið „Það má segja að þetta sé í raun sorg og uppgjör“ Tónlist Vítalía og Arnar Grant í kossaflensi Lífið Féllust í faðma á tilfinningaríkri stundu Lífið „Æskuheimilið hans er bara rústir“ Lífið Ási selur íbúðina eftir sambandsslitin Lífið Valgerður selur íbúðina í Vesturbænum Lífið Myndavél frá afa algjör fjársjóður Tíska og hönnun Lykilfólkið á bak við tjöldin hjá forsetaefnunum Lífið Fleiri fréttir Cox segir Phoenix ömurlegan sem Napóleon Komu saman vegna þrjátíu ára afmælis Pulp Fiction Á slóðum Arabíu Lárens með Anthony Hopkins Keanu Reeves mun leika helsta keppinaut Sonic Fyrsta plakatið og önnur kitlan úr Snertingu Hámhorfið: Hvað eru landsliðskonur í knattspyrnu að horfa á? Fylgdi Mari Jaersk á æskuslóðir: „Hann stakk hníf inn í lungun á pabba tvisvar“ Rowling enn bitur út í Harry Potter-stjörnurnar Frumsýning á Vísi: Fyrsta kitlan úr Snertingu Bridget Jones 4 kemur út á næsta ári Mun túlka Springsteen Finna enn gríðarlega sterk áhrif Eurovision-myndarinnar Verður aftur laglega ljóskan Elle Woods Svar Íslands og Sviss við Forrest Gump mætir á skjáinn Hámhorfið: Hvað eru prestar landsins að horfa á? Blendnar tilfinningar á frumsýningu Oppenheimer í Japan Sandler vinnur að Happy Gilmore 2 „Hann er með svona Connery áru yfir sér“ Spennuþáttaröðin Reykjavík Fusion í framleiðslu í sumar Báðar fylkingar House of the Dragon fá sína stiklu Bað hennar við sólsetrið á 100 mánaða afmælinu Nýir Star Wars þættir líta dagsins ljós Sagður vera næsti James Bond Sá Dune tvö hundruð sinnum og er búinn að fara nítján sinnum á Dune 2 í bíó Hámhorfið: Hvað eru listakonur landsins að horfa á? Heimaleikurinn með enn önnur verðlaunin í Glasgow Spáir í spilin: „Alveg eins hægt að afhenda Nolan styttuna nú þegar“ Hryllingsmyndin um Bangsímon valin sú versta á Razzie-verðlaununum Hámhorfið: Hvað er kvikmyndagerðafólkið að horfa á? Fyrsta stikla Fallout lítur dagsins ljós Sjá meira
Myndirnar sem keppa um Gullna lundann á RIFF í ár „Átta splunkunýjar myndir keppa um Gullna lundann, aðalverðlaun RIFF í ár. Myndirnar koma frá átta löndum, og er umfjöllunarefni þeirra og efnistök einstaklega spennandi í ár,“ segir í tilkynningu frá RIFF 17. september 2021 20:58
Joachim Trier og Mia Hansen - Löve hljóta heiðursverðlaun RIFF á Bessastöðum Kvikmyndaleikstjórarnir Joachim Trier frá Noregi og Mia Hansen - Löve frá Frakklandi hljóta heiðursverðlaun RIFF í ár fyrir framúrskarandi listræna sýn. 16. september 2021 18:00
Trine Dyrholm mætir á frumsýningu Margrétar fyrstu á RIFF Margrét fyrsta eða MARGRETE DEN FØRSTE er lokamynd RIFF Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í í Reykjavík í ár. Hátíðin verður haldin í átjánda sinn þann 30. september og stendur til 10. október. 16. september 2021 14:06
Síðasta mynd Árna Ólafs verður opnunarmynd flokksins Ísland í sjónarrönd á RIFF „Síðasta mynd hins ástkæra leikstjóra Árna Ólafs Ásgeirssonar sem lést fyrr á þessu ári verður frumsýnd sem opnunarmynd flokksins Ísland í sjónarrönd á RIFF sem hefst í lok mánaðar,“ segir í nýrri tilkynningu frá RIFF. 13. september 2021 10:32