Fótbolti

Stórir íslenskir sigrar í norska bikarnum

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Norsku meistararnir í Bodo/Glimt unnu öruggan sigur í norska bikarnum í dag.
Norsku meistararnir í Bodo/Glimt unnu öruggan sigur í norska bikarnum í dag. Fabio Rossi/AS Roma via Getty Images

Fyrsta umferð norsku bikarkeppninnar fór fram í dag. Alls voru fimm Íslendingalið í eldlínunni og öll unnu þau stórsigra.

Samúel Kári Friðjónsson, Patrik Gunnarsson og félagar þeirra í Viking unnu sannfærandi 6-1 útisigur gegn Rosseland eftir að hafa komist í 3-0 á fyrstu 14 mínútum leiksins.

Viðar Örn Kjartansson og félagar hans í Vålerenga unnu 5-1 útisigur gegn Kolbu og norsku meistararnir í Bodø/Glimt með Alfons Sampsted innanborðs unnu4-0 útisigur gegn Rana FK.

Þá unnu Ari Leifsson og félagar hans í Strömsgodset 4-0 útisigur gegn Hønefoss í leik þar sem heimamenn nældu sér í tvö rauð spjöld í fyrri hálfleik.

Að lokum unnu Valdimar Þór Ingimundarson og félagar hans í Sogndal 5-0 útisigur gegn Floro.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×