AS líkir Andra Lucasi við Haaland Sindri Sverrisson skrifar 12. október 2021 13:31 Andri Lucas Guðjohnsen er farinn að láta til sín taka hjá varaliði Real Madrid, sigursælasta félags í sögu Meistaradeildar Evrópu, og íslenska landsliðinu. Samsett/Real Madrid og AS.com Spænska stórblaðið AS segir að Andri Lucas Guðjohnsen minni um margt á Erling Braut Haaland og muni mögulega leika sinn fyrsta leik fyrir aðallið Real Madrid í vetur.
Andri Lucas er farinn að láta til sín taka bæði með íslenska A-landsliðinu og varaliði Real Madrid þar sem hann leikur undir stjórn mikils markaskorara og einnar af goðsögnum félagsins; Raúl. Andri kom inn á sem varamaður gegn Norður-Makedóníu í síðasta mánuði og náði að tryggja Íslandi 2-2 jafntefli, og svipað var uppi á teningnum þegar hann nældi í vítaspyrnu og skoraði í 2-2 jafntefli varaliðs Real gegn Atlético Baleares. Hann skoraði svo sitt annað landsliðsmark í 4-0 sigrinum gegn Liechtenstein í gærkvöld. AS segir að Andri Lucas sé ólíkur föður sínum sem hafi viljað vera aðeins fyrir aftan fremsta mann og kunnað að splundra vörnum með eitruðum sendingum. Andri Lucas sé hreinræktuð, 189 sentímetra „nía“ með kraftmikinn leikstíl sem þjálfarar hans hjá Real Madrid viðurkenni að þurfi að fínpússa. Þeir hafi hins vegar þegar séð nokkuð sem ekki sé hægt að kenna; auga fyrir því að skora mörk. Þriðji eða fjórði kostur Ancelottis Real Madrid er á höttunum eftir stjörnuleikmönnunum Haaland og Kylian Mbappé. AS bendir hins vegar á að félagið eigi nú þegar leikmann sem minni á Haaland en tekur fram að Íslendingurinn eigi enn margt ólært. Hann hafi til að mynda minnt á ungan Haaland með þrennunni sem hann skoraði fyrir U17-landslið Íslands gegn Þýskalandi árið 2019. Samkvæmt AS er Andri Lucas fjórði í röðinni í keppninni um stöðu fremsta manns hjá aðalliði Real, á eftir Karim Benzema, Luka Jovic og Mariano. Hins vegar segir blaðið að í ljósi þess hve Mariano fái lítið að spila þá megi líta á Andra Lucas sem þriðja kost. Carlo Ancelotti, stjóri Real Madrid, valdi Andra Lucas á varalista í Meistaradeildarhóp Real Madrid fyrir leiktíðina og AS segir líklegt að hann muni koma við sögu með aðalliðinu á þessari leiktíð, mögulega í spænsku bikarkeppninni.
Spænski boltinn HM 2022 í Katar Tengdar fréttir 678 mínútum á undan pabba og yfir 1560 mínútum á undan afa Andri Lucas Guðjohnsen var miklu fljótari að skora landsliðsmark númer tvö heldur en bæði faðir sinn og afi sinn sem báðir eru meðal markahæstu landsliðsmanna Íslands frá upphafi. 12. október 2021 12:31 Bræðurnir mættu saman í viðtal: „Eitthvað sem mann dreymdi um þegar maður var yngri“ Bræðurnir Andri Lucas Guðjohnsen og Sveinn Aron Guðjohnsen mættu saman í viðtal eftir 4-0 sigur Íslands á Liechtenstein í undankeppni HM í kvöld. Báðir komu inn af bekknum og létu til sín taka. Andri Lucas skoraði eftir sendingu Sveins Arons sem fiskaði einnig víti. 11. október 2021 21:32 Umfjöllun: Ísland - Liechtenstein 4-0 | Lyklabörnin léku sér að Liechtenstein Ísland vann eins auðveldan og þægilegan sigur og hugsast getur í alþjóðlegum nútímafótbolta þegar liðið lagði Liechtenstein að velli, 4-0, í síðasta heimaleik sínum í undankeppni HM karla í Katar. 11. október 2021 21:15 Mest lesið „Ég sakna hennar á hverjum degi“ Handbolti Bakgarðshlaupið í beinni útsendingu Sport „Hún er með hjartagalla en í góðum höndum núna og vonandi fer allt vel“ Íslenski boltinn „Þetta er ekki boðlegt finnst mér“ Körfubolti DeAndre Kane sleppur við bann og spilar í kvöld Körfubolti Leik lokið: FH - Vestri 3-2 | FH kom til baka og vann fjórða leikinn í röð Íslenski boltinn Andrea á batavegi: „Gott fyrir alla að sjá hana brosandi“ Íslenski boltinn Arsenal menn kláruðu sitt og nú er pressan á Man. City Enski boltinn „Varhugavert er að ætla starfsmanni Stöðvar 2 að hafa brugðið talsvert“ Körfubolti Hætti óvænt: Fannst hann skulda fjölskyldunni smá tíma Handbolti Fleiri fréttir Newcastle fór illa með Jóa Berg og félaga á Turf Moor Í beinni: Man. City - Wolves | Meistararnir á miklu skriði Leik lokið: FH - Vestri 3-2 | FH kom til baka og vann fjórða leikinn í röð Eyjamenn byrja fótboltasumarið ekki vel Kristín Dís og Þórdís fögnuðu sigri en það gekk illa hjá Halmstad strákunum Diljá og félagar töpuðu toppslagnum á heimavelli Arsenal menn kláruðu sitt og nú er pressan á Man. City Ipswich Town aftur upp í ensku úrvalsdeildina eftir 22 ára fjarveru Þórir bæði með mark og stoðsendingu Andrea á batavegi: „Gott fyrir alla að sjá hana brosandi“ Glódís Perla þýskur meistari annað árið í röð Arteta segir að Gabriel Jesus sé ekki á förum í sumar Með sjö í þremur: „Kannski margir sem afskrifa mann en mér finnst ég eiga nóg eftir“ Clattenburg hættur og segist hafa verið skotmark sérfræðinga Óvænt úrslit í fyrstu umferð Lengjudeildarinnar „Hún er með hjartagalla en í góðum höndum núna og vonandi fer allt vel“ „Ég er spennt að fara heim að sofa“ Luton mistókst að koma sér úr fallsæti „Við vissum að við þyrftum að þjást“ Uppgjör, viðtöl og myndir: Breiðablik - FH 3-0 | Blikar héldu uppteknum hætti Uppgjörið: Stjarnan - Tindastóll 0-2 | Fyrstu mörkin og fyrsti sigurinn hjá Stólunum Sveindís sneri aftur í stórsigri Wolfsburg Ísak skoraði og Dusseldorf enn í baráttunni um sæti í efstu deild Sala drykkjarins í hæstu hæðum eftir myndirnar af Haaland Klopp ósáttur við álagið: „Hádegisleikir eru glæpur“ Sveindís mætt aftur í leikmannahóp Wolfsburg eftir meiðsli FH-ingar kynna besta lið sögunnar Ten Hag vildi fá Kane í sumar: „Þú veist að hann skorar þrjátíu mörk“ Fékk hrós frá Klopp: Vingjarnlegasti maður sem ég hef hitt Stórleikur á Samsung-vellinum og meistararnir fara í Mosó Sjá meira
678 mínútum á undan pabba og yfir 1560 mínútum á undan afa Andri Lucas Guðjohnsen var miklu fljótari að skora landsliðsmark númer tvö heldur en bæði faðir sinn og afi sinn sem báðir eru meðal markahæstu landsliðsmanna Íslands frá upphafi. 12. október 2021 12:31
Bræðurnir mættu saman í viðtal: „Eitthvað sem mann dreymdi um þegar maður var yngri“ Bræðurnir Andri Lucas Guðjohnsen og Sveinn Aron Guðjohnsen mættu saman í viðtal eftir 4-0 sigur Íslands á Liechtenstein í undankeppni HM í kvöld. Báðir komu inn af bekknum og létu til sín taka. Andri Lucas skoraði eftir sendingu Sveins Arons sem fiskaði einnig víti. 11. október 2021 21:32
Umfjöllun: Ísland - Liechtenstein 4-0 | Lyklabörnin léku sér að Liechtenstein Ísland vann eins auðveldan og þægilegan sigur og hugsast getur í alþjóðlegum nútímafótbolta þegar liðið lagði Liechtenstein að velli, 4-0, í síðasta heimaleik sínum í undankeppni HM karla í Katar. 11. október 2021 21:15