Hringdi í lögreglustjórann vegna Ásmundarsalar á aðfangadag Kristín Ólafsdóttir skrifar 23. febrúar 2021 20:16 Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra og Halla Bergþóra Björnsdóttir, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu. Samsett/Vísir/Vilhelm Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra ræddi tvisvar við Höllu Bergþóru Björnsdóttur lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu á aðfangadag eftir að lögregla tilkynnti fjölmiðlum um sóttvarnabrot í Ásmundarsal, hvar fjármálaráðherra var staddur. Ríkisútvarpið greinir frá þessu og hefur eftir Áslaugu að hún hafi ekki verið að skipta sér af rannsókn málsins.
Hátt í fimmtíu manns voru samankomnir í Ásmundarsal í Reykjavík á Þorláksmessu, þegar tíu manna samkomubann var í gildi. Lögregla hafði afskipti af samkomunni og greindi frá því í dagbókarfærslu til fjölmiðla að morgni aðfangadags að „einn háttvirtur ráðherra í ríkisstjórn Íslands“ hefði verið á staðnum. Síðar staðfesti Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra að hann hefði verið í salnum. Bæði Áslaug og Halla staðfesta við Ríkisútvarpið að þær hafi rætt saman í síma um málið á aðfangadag. Áslaug segir í svari sínu að hún hafi hringt í Höllu til að spyrja um verklagsreglur um dagbókarfærslur lögreglu og persónuverndarsjónarmið. Hún hafi ekki gert athugasemdir við framkvæmd lögreglu í málinu. Þá hafi hún ekki rætt málið frekar við lögreglustjórann og ekki haft afskipti af rannsókninni. Lögregla lauk rannsókn á Ásmundarsalarmálinu í lok janúar og sendi það ákærusviði. Þá greindi fréttastofa frá því nú í febrúar að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefði áréttað reglur um samskipti við fjölmiðla við starfsfólk sitt. Embættið hafði áður lagst í skoðun á því hvort dagbókarfærslan, sem þótti óvenju ítarleg, teldist öryggisbrestur í skilningi persónuverndarlaga.
Ráðherra í Ásmundarsal Lögreglumál Lögreglan Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Tengdar fréttir Söguleg dagbókarfærsla ekki tilkynningarskyldur öryggisbrestur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur áréttað þær reglur sem eru í gildi í samskiptum við fjölmiðla við þá sem starfsmenn embættisins sem sjá um gerð dagbókarfærslna sem sendar eru út á degi hverjum. 10. febrúar 2021 11:17 Rannsókn lokið: Ásmundarsalarmálið sent ákærusviði Lögregla hefur lokið rannsókn á mögulegum sóttvarnabrotum í Ásmundarsal á Þorláksmessu. Að sögn Jóhanns Karls Þórissonar aðstoðaryfirlögregluþjóns verður málið sent ákærusviði lögreglunnar í dag, ef það er ekki þegar komið þangað. 22. janúar 2021 10:22 Ósáttur við Ásmundarsalarumræðu með mótmælendur í baksýn Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra kom á framfæri óánægju og furðu með umfjöllun um heimsókn sína í Ásmundarsal undanfarna viku í áramótaþættinum Kryddsíld á Stöð 2 í dag. Hann sagði það skipta máli„að fara rétt með og horfa á staðreyndir“ og kvað það skjóta skökku við að stjórnarandstaða kallaði eftir þingfundi „til að ræða samkomu í húsi hér í bæ“ en ekki „stóru málin.“ 31. desember 2020 14:47 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Innlent Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Innlent Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu klukkustundum Innlent Rúður skotnar í spað í verslun innflytjenda Innlent Hjólastólinn í „tengdamömmuboxi“ á toppi bílsins Innlent Allt að fimm milljóna króna sekt á hvern fisk Innlent Arnór Sighvatsson settur varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika Innlent Hver er Kári Hansen? Innlent Quang Le hakkaður á Facebook Innlent Fleiri fréttir Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Arnór Sighvatsson settur varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum Hjólastólinn í „tengdamömmuboxi“ á toppi bílsins Gæti dregið til tíðinda á næstu klukkustundum Fallið frá ráðningarferli og Hermann fylgir Sigurði Inga Allt að fimm milljóna króna sekt á hvern fisk Gamla stjarnan þótti ekki henta nútímakröfum Ekkert eftirlit með veðmálasíðum, landris við Svartsengi og milljónasektir fyrir eldislax Facebook-hakkið hafi ekki áhrif á rannsóknina Hver er Kári Hansen? Nokkurra bíla árekstur á Miklubraut Hafa áhyggjur af fylgistapi flokksins Umferðartafir vegna elds í tengivagni Heimta hundrað milljóna króna tryggingu Engin merki um að kvikuhlaup sé hafið eða að hefjast Gæsluvarðhald beggja framlengt Rúður skotnar í spað í verslun innflytjenda Leggja til kröfu um sólarsellur á þaki nýbygginga Úrskurðaður í síbrotagæslu eftir ofsaaksturinn Svona var Pallborðið með Helgu Þóris og Eiríki Inga Birna sett sýslumaður á Vesturlandi Segir ekkert „dramatískt“ að frétta af eldgosinu Umdeildu frumvarpi um lagareldi breytt Matvælaráðherra segir fiskeldisfrumvarp mikla bragarbót fyrir umhverfið Quang Le hakkaður á Facebook Bein útsending: Kynna skýrslu um aðra orkukosti Aukin virkni í gosinu Grænt ljós á Láka og Flata en ekki Libyu Sjá meira
Söguleg dagbókarfærsla ekki tilkynningarskyldur öryggisbrestur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur áréttað þær reglur sem eru í gildi í samskiptum við fjölmiðla við þá sem starfsmenn embættisins sem sjá um gerð dagbókarfærslna sem sendar eru út á degi hverjum. 10. febrúar 2021 11:17
Rannsókn lokið: Ásmundarsalarmálið sent ákærusviði Lögregla hefur lokið rannsókn á mögulegum sóttvarnabrotum í Ásmundarsal á Þorláksmessu. Að sögn Jóhanns Karls Þórissonar aðstoðaryfirlögregluþjóns verður málið sent ákærusviði lögreglunnar í dag, ef það er ekki þegar komið þangað. 22. janúar 2021 10:22
Ósáttur við Ásmundarsalarumræðu með mótmælendur í baksýn Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra kom á framfæri óánægju og furðu með umfjöllun um heimsókn sína í Ásmundarsal undanfarna viku í áramótaþættinum Kryddsíld á Stöð 2 í dag. Hann sagði það skipta máli„að fara rétt með og horfa á staðreyndir“ og kvað það skjóta skökku við að stjórnarandstaða kallaði eftir þingfundi „til að ræða samkomu í húsi hér í bæ“ en ekki „stóru málin.“ 31. desember 2020 14:47